14.04.1973
Neðri deild: 90. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3576 í B-deild Alþingistíðinda. (3187)
241. mál, veiðar með botnvörpu, flotvörpu og dragnót í fiskveiðilandhelginni
Ingvar Gíslason:
Herra forseti. Ég skal vera stuttorður um þetta mál að þessu sinni. Ég gerði grein fyrir afstöðu minni til frv. í ræðu í gær, og þar kom fram, að ég tók undir það meginsjónarmið, sem fiskveiðilaganefnd hefur starfað eftir, sem mér virðist vera friðunarsjónarmiðið. Ég tel það ákaflega mikilvægt og tel, að n. hafi unnið eftir því, og undir það vil ég taka. Hins vegar gat ég þess, að þrátt fyrir það frv., sem hún hefði lagt fram, væri eitt og annað, sem mætti athuga betur í frv. og í þessu máli. Þess vegna gerði ég það að till. minni hér eða benti á, að það væri heppilegri málsmeðferð, eins og nú væri komið, að málið yrði skoðað frekar, það yrði skoðað í sumar, það yrði sent til umsagnar þeim aðilum, sem ekki hefur gefizt kostur á að segja álit sitt á frv., eins og það liggur fyrir fullbúið frá hendi n. Ég er andstæður þeirri skoðun, sem hér hefur fram komið hjá þeim hv. þm. tveimur, sem talað hafa á undan mér, að það muni ekkert gerast á þessum tíma. Ég tel þvert á móti, að það muni verða til þess að auðvelda mjög farmgang þessa máls og sameina kraftana um þetta frv., ef við höfum þennan háttinn á. Þess vegna fagna ég þeirri yfirlýsingu, sem kemur frá hæstv. sjútvrh. að hann sé því hlynntur, að málinu verði frestað með það fyrir augum, að það verði skoðað betur í sumar og því verði vísað til umsagnar þeirra aðila utan þingsalanna, sem hafa á þessu áhuga. Þess vegna endurtek ég þá ábendingu, sem ég kom fram með í gær, að málinu verði frestað til haustsins.