07.11.1972
Sameinað þing: 12. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 570 í B-deild Alþingistíðinda. (319)
273. mál, reglugerð samkvæmt útvarpslögum
Jón Árm. Héðinsson:
Herra forseti. Ég vil í sambandi við þessa fyrirspurn leyfa mér að heina fyrirspurn til hæstv. ráðh. varðandi afkomumöguleika Ríkisútvarpsins og sjónvarpsins á árinu 1973. Til okkar í fjvn. kom útvarpsstjóri, og því er ekki að leyna, að eins og staðan er í dag, vantar marga tugi millj., svo að endar nái saman hjá Ríkisútvarpinu og sjónvarpinu. Það kom fram hjá útvarpsstjóra, að það mundi tryggja rekstur Ríkisútvarpsins í heild, ef sett yrði reglugerð. Þá vildi ég forvitnast um, hvað er í vændum til þess að tryggja öruggan rekstur þessara stofnana, en gífurleg fjárhagsvandræði eru framundan hjá þeim skv. orðum útvarpsstjóra.