16.04.1973
Sameinað þing: 73. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3651 í B-deild Alþingistíðinda. (3255)

Skýrsla um utanríkismál

Utanrrh. (Einar Ágústsson) :

Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til þess að halda hér langa ræðu, mun heldur ekki gera það. Ég vil þakka þeim, sem til máls hafa tekið, fyrir vinsamlegar undirtektir undir þá skýrslu, sem ég hef leyft mér að flytja hv. Alþ., og málefnalegar umr. um efni hennar.

Það hefur verið fundið að því, að skýrslan sé seint á ferðinni. Það má til sanns vegar færa, að hún sé seint fram komin. Ég hafði upphaflega ásett mér, að skýrslan kæmi strax að loknum utanrrh: fundi Norðurlandanna, svo að ég gæti haft í henni það, sem þar gerðist. Síðan eru að vísu liðnir nokkrir dagar og verður það að skrifast á minn reikning, að ég var ekki fljótari með skýrsluna en svo. En ég hygg, að þessi skýrsla, framkoma hennar og umr. um hana þoli samanburð við það, sem áður tíðkaðist um skýrslur um utanríkismál, það þykist ég muna frá minni fyrri þingmennskutíð. Það er ekkert langt síðan Alþ. fékk yfir höfuð engar skýrslur. Emil Jónsson, fyrrv. utanrrh. tók upp þennan sið, það er rétt, en umr. um þær skýrslur urðu ekki alltaf miklar, það get ég upplýst hv. þm. Geir Hallgrímsson um, af því að hann átti ekki þá sæti hér á þingi. En það er auðvitað ekki nein sérstök afsökun fyrir því, að skýrslan er seint fram komin. Ég skal kannast við það, að hún er seint fram komin. Hitt vildi ég vona, að menn gætu fengið tóm til að ræða hana á þessum fundi eða framhaldsfundi, ef þurfa þykir, eins og hæstv. forseti hefur gefið fyrirheit um. Og svo tímalausir erum við ekki, sem betur fer, að við getum ekki helgað þessum málum nokkurn veginn þann tíma, sem þau teljast þurfa.

Það er, eins og ég sagði í upphafi þessara orða, ekki margt, sem ég ætla að gera að umtalsefni úr þeim ræðum, sem hér hafa verið haldnar. Ég tók eftir því, að hv. 1. þm. Reykv. gerði að umtalsefni það mat, sem í skýrslunni felst á því, hvað líklegt sé að verða muni á fyrirhugaðri hafréttarráðstefnu. Ég hef ekkert um það að segja nema það, að þetta mat er ekki eingöngu mitt mat. Ég byggi þetta á viðtölum og samráði við þá menn, sem hafa sótt undirbúningsfundi hafréttarráðstefnunnar fyrir Íslands hönd, og þá fyrst og fremst á umsögn Hans Andersens, sem hefur verið formaður okkar n. á undirbúningsfundum. Ég hygg, að þetta mat láti nærri, það er a.m.k. mín skoðun, miðað við það, sem ég hef getað séð annars staðar frá, en auðvitað getur enginn sagt um það nú með nokkurri vissu, hvað verði á hafréttarráðstefnunni.

Hv. þm. talaði um efnahagslögsögu sem nýyrði og væri honum ekki algerlega ljóst, hvað við væri átt. Ég hef fengið svofellda skýringu á orðinu efnahagslögsaga. Það er lögsaga ríkja, sem nær yfir öll efnahagsleg verðmæti hafsins og hafsbotnsins, þar með fiskveiðar. Þetta hugtak hafa Suður-Ameríkuríkin alllengi notað um kröfur sínar til 200 mílna landhelgi, og ég hygg, að sendinefnd okkar í New York hafi af ásettu ráði notað þetta hugtak til þess að reyna að fá sem flesta til fylgis við þá till., sem við bárum þarna fram. Ég varð ekki var við neinn gagnrýnistón hjá hv. 1. þm. Reykv. yfir því, að þetta orð væri notað, og ég er ekki að segja þetta til andsvara, heldur einungis til upplýsinga, af því að mér fannst koma fram, að hann væri lítt kunnugur þessu orði, og má vera, að svo sé um fleiri.

Það hefur ekki farið á milli mála í málflutningi okkar á alþjóðavettvangi, að takmarkið er landgrunnið allt. Við höfum þráfaldlega tekið það fram, að allur okkar málflutningur sé byggður á landgrunnslögunum frá 1948 og að 50 mílur séu ekki keppikefli í sjálfu sér, heldur áfangi á þeirri leið að ná öllu landgrunninu. Menn hafa haft misjafnar skoðanir á því, hversu langt ætti að ganga núna. Ég fer ekki út í það en undirstrika, að 50 mílna markið er áfangi eftir okkar hugsun, en ekki takmark í sjálfu sér.

Ég get mjög tekið undir það, sem hv. 1. þm. Reykv. sagði, að okkur í ríkisstj. beri að halda góðu samráði og samvinnu við landhelgisnefnd. Það hefur verið nokkuð reynt, má e.t.v. gera meira að því, og ég fyrir mitt leyti mun beita mér fyrir því, að enn ríkara og nánara samstarf sé haft við landhelgisnefnd en verið hefur.

Ég get ekki að öllu leyti varizt því að vera sammála hv. 3. landsk. þm. um það, að e.t.v. sé landhelgisnefnd við hlið utanrmn. óþarfi. Það vill nú svo til, að það eru næstum því sömu mennirnir í báðum n., og ég hef fyrir mitt leyti kappkostað að hafa gott samstarf við utanrmn. Ég skal viðurkenna, að það geti átt sér stað, að í sumum tilvikum hafi láðst að kalla saman landhelgisnefnd, þar eð málin höfðu verið rædd í utanrmn., og þá öfugt. En úr þessu ætti að vera auðvelt að bæta, og ég skal reyna eftir minni litlu getu að stuðla að því, að svo verði gert.

Ég vil þakka hv. 7. þm. Reykv. fyrir þau ummæli, sem hann lét falla um það, að hann vilji styðja ríkisstj. í þeirri viðleitni, sem hún heldur uppi í sambandi við öryggismálaráðstefnu Evrópu í Helsingfors og umr. um gagnkvæma takmörkun á herafla, sem fram fara í Vínarborg. Ég hygg, að við getum allir hv. þm. verið sammála um, að þetta séu merkar tilraunir, sem þarna er verið að gera. Ég býst við því, að við getum allir sameinazt í voninni um, að þær megi bera árangur, því að a.m.k. fyrir okkur Íslendinga eru það mjög merk mál, sem þar eru rædd, og mundu breyta aðstæðum okkar verulega, ef fram næðu að ganga.

Hv. 7. þm. Reykv. ræddi um varnarmálin og kvaðst vona, að ástandið yrði þannig, að samningar gætu komið í stað hernaðarbandalaga. Undir þetta vil ég mjög eindregið taka. Hann gerði að umtalsefni þáltill. Alþfl.-manna, sem flutt var hér fyrr í vetur um nokkra þátttöku Íslendinga í vörnum landsins eða varnarkerfinu. Ég lýsti hinn 30. nóv. s.l. afstöðu minni til þeirrar till. Hún er óbreytt. Ég tel, að sú till. hafi verið merk og það sé sjálfsagt og raunar leiði af sjálfu sér, að einmitt þessi tilhögun, sem Alþfl. hefur gert að sinni till., verði eitt af því, sem a.m.k. kemur til greina, þegar endurskoðun varnarsamningsins fer fram. Það er vissulega alveg rétt, sem hv. þm. sagði, að það blandast engum hugur um, að endurskoðun sé tímabær á 20 ára gömlum samningi.

Ég ætla aðeins að víkja að ummælum hv. 3. landsk. um stöðu utanrmn. Ég tel, að það sé margt til í því, sem hann sagði um utanrmn., og hún mætti gjarnan gegna enn þá þýðingarmeira hlutverki og hafa meiri verkefni að vinna en hún hefur. Nú hefur verið afráðið, að utanrmn. starfi milli þinga og haldi reglulega fundi, þó að Alþ. sé ekki saman kvatt. Ég tel það góða tilhögun og fagna því fyrir mitt leyti að eiga kost á því að bera saman bækurnar við utanrmn. utan þinghalds, því að það er mikill styrkur fyrir utanrrh. hverju sinni, a.m.k. hefur mér reynzt það að geta ráðfært sig við þá reyndu menn, sem skipa utanrmn. Alþ. Það samstarf hefur verið gott, og ég vildi ekki af því missa.

Hv. 3. landsk. talaði um, að það gæti verið örðugt fyrir ríkisstj. og þá utanrrh. að starfa með mönnum, sem hefðu áður haft ólíkar skoðanir á utanríkismálum og hefðu kannske enn. Þetta er sums staðar tekið svo alvarlega, að það er skipt um alla sendiherra, þegar ný stjórn kemur. Hvorki við né nágrannaþjóðir okkar á Norðurlöndum a.m.k. höfum haft þennan sið, og ég skal láta það liggja á milli hluta, hvort við gætum tekið þennan sið upp, jafnvel þótt æskilegur teldist og við vildum. En hitt vil ég segja að þessu gefna tilefni, að ég hef ekki þurft undan samstarfi við starfsmenn utanrrn. að kvarta. Þó að tekin hafi verið upp að ýmsu leyti ný stefna, virðist mér, og ég held, að ég geti sagt það með fullkomnum sanni, að þeir hafa reynzt trúir hverju því máli, sem þeim hefur verið fengið til úrlausnar. Ég vil gjarnan láta þetta koma fram, til þess að ég hafi ekki með þögninni a.m.k. samþykkt það, að þessir menn hafi ekki staðið í stöðum sínum, því að það hafa þeir að mínu viti gert.

Um það, hvort senda skuli mann til Haag eða ekki, ætla ég ekki að ræða hér. Ég hef lýst þeirri skoðun, sem ég hef á því máli, í skýrslunni, og hef oft gert það endranær. Ég endurtók það síðast í þeirri skýrslu, sem ég var að lesa upp hér í dag, og hef ekki um það fleiri orð. En ég get staðfest það, sem ég hef áður sagt, að mér finnst eðlilegt, að landhelgisnefnd og utanrmn. fjalli um þetta mál, áður en endanleg ákvörðun er um það tekin. Þetta hef ég sagt áður. Þetta eru engin ný sannindi frekar en svo margt, sem ég verð að segja hér, en ég endurtek það að gefnu tilefni.

Hv. þm. Ragnar Arnalds sagði, að öryggismálaráðstefna Evrópu mundi taka langan tíma og væri ekki eina leiðin til slökunar. Þetta er vissulega rétt, ég er algerlega sammála honum um þetta. Hins vegar er ég ósammála honum um það, að við eigum til þess að flýta fyrir þróuninni að segja okkur úr NATO. Ég þarf ekki að hafa um það mörg orð. Ég hef verið stuðningsmaður þess, að við Íslendingar værum í NATO, og er það enn að óbreyttum aðstæðum. Hins vegar endurtek ég það, sem ég áðan sagði, að ég vona, að sá dagur sé ekki langt undan, að samningar milli ríkja leysi hernaðarbandalögin af hólmi, svo að ég vitni enn á ný í ummæli hv. 7. þm. Reykv. Ég ætla ekki heldur að deila um það, hvorki við einn né annan, hvort mér hafi tekizt að halda þannig á utanríkismálastefnu Íslands, að hún sé að einhverju leyti frábrugðin því, sem áður hefur verið. Um það verða verkin að bera vitni, og ég tel mig ekki réttan mann, hvorki til þess að hælast um né játa, að mér hafi ekki tekizt þetta. Um það verða aðrir að dæma. Og ég vísa fyrst og fremst til afstöðunnar á erlendum vettvangi, til þess að menn geti borið þetta saman og hlíti þeim dómi, sem úr því máli kann að koma.

Hv. 2. þm. Reykv. ræddi nokkuð um varnarmálin og endurskoðun varnarsamningsins og það, hvort meiningin væri að láta 7. gr. varnarsamningsins frá 1951 koma til framkvæmda. Í þessari 7. gr. eru, að því er mig minnir, tvö atriði, eins og hann benti á. Það er annars vegar, að hvor ríkisstj. geti hvenær sem er að undanfarinni tilkynningu til hinnar ríkisstj. farið þess á leit við ráð Norður-Atlantshafsbandalagsins, að það endurskoði, hvort lengur þurfi á að halda framangreindri aðstöðu, og geri till. til beggja ríkisstj. um það, hvort samningur þessi skuli gilda áfram. Þetta er það, sem ég hef kallað endurskoðun, og ég vona, að það orð verði ekki dregið í efa, að eigi við í þessu tilviki. Þetta er endurskoðun. Um endurskoðun hefur mér virzt, að allir væru sammála. Og þær viðræður, sem fram hafa farið, eru til undirbúnings undir þá endurskoðun. Það verður svo að meta við áframhaldandi meðferð málsins, hvernig halda eigi á málinu.

Hitt atriði 7. gr. er svona: „Ef slík málaleitan um endurskoðun leiðir ekki til þess, að ríkisstj. verði ásáttar innan 6 mánaða, frá því að málaleitunin var borin fram, getur hvor ríkisstj. sem er eftir það sagt samningnum upp, og skal hann þá falla úr gildi 12 mánuðum síðar“.

Því hef ég lofað og mun standa við, ef til minna kasta kemur, að áður en til þessarar uppsagnar kemur samkv. ákvæðum 7. gr. varnarsamningsins, mun verða haft samráð við Alþ., og það verður ekkert gert í þeim efnum án vilja og vitundar Alþ. Hinu get ég líka lofað að beita mér fyrir, að áður en til rannverulegrar endurskoðunar kemur, verði málið rætt í utanrmn. Það hefur ekki verið ákveðið, hvenær frestir séu byrjaðir að líða, og ríkisstj. hefur ekki tekið ákvörðun um þetta. Það er sjálfsagt, og ég skal beita mér fyrir því, eftir því sem ég get, að utanrmn. verði látin vita af þessu og hún fái tækifæri til þess að fjalla um það, áður en til þess kemur.

Þetta var það, sem ég vildi segja um ræðu hv. 2. þm. Reykv., og ég vona, að hann geti tekið þessi svör gild. Ég held, að ég þurfi ekki að hafa þessi orð fleiri. Ég endurtek þakkir mínar til þm. fyrir málefnalegar umr. um þessa skýrslu. Ég skal gjarnan afsaka það. að hún er óþarflega seint á ferðinni. En ég vona engu að síður, að með framlagningu hennar og þeim umr., sem hér hafa farið fram í dag og eiga eftir að fara fram, hafi verið fullnægt loforði stjórnarsáttmálans um, að skýrsla um utanríkismál skuli flutt og rædd.