17.04.1973
Efri deild: 98. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3696 í B-deild Alþingistíðinda. (3313)

76. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Frsm. minni hl. (Magnús Jónsson):

Herra forseti. Það hefði vitanlega verið ástæða til þess að hafa allmiklar umr. um skattamál í sambandi við þetta frv. Það skal ég hins vegar ekki gera, vegna þess að þetta mun vera síðasti þingdagur. Það er rétt, sem hv. frsm. meiri hl. n. sagði hér áðan, að þetta mál er fyrst og fremst staðfesting á brbl., sem gefin voru út með mjög einstæðum hætti á s.l. sumri eða eftir að skattar höfðu verið á lagðir og eftir að það hafði komið í ljós, að hæstv. ríkisstj. hafði fundið, að breiðustu bökin í þjóðfélaginu væru gamla fólkið, þannig að álögur á það höfðu stórkostlega aukizt við skattalögin, sem sett voru á síðasta ári, og í ofurkappi sínu við að koma fyrir kattarnef l., sem sett höfðu verið í tíð fyrrv. ríkisstj., höfðu meira að segja verið afnumin ákvæði, sem veittu ellilífeyrisþegum veruleg skattfríðindi, en hæstv. ríkisstj. neyddist svo vegna ofboðslegrar gagnrýni til þess að lagfæra aftur með þessum brbl., sem eins og ég segi munu vera einsdæmi í okkar sögu, að brbl. skuli breyta sköttum, eftir að skattarnir hafa verið á lagðir. Það held ég, að þekkist ekki. En það er auðvitað betra seint en aldrei, og ríkisstj. sá þó að sér þarna, þó að hún hefði skellt skollaeyrum við aðvörunum, sem bornar voru fram, meðan málið var til meðferðar í Alþ., og ekki viljað hlusta á orð stjórnarandstæðinga þar, okkar sjálfstæðismanna, sem bentum á, að þetta mundi hafa þessar afleiðingar.

Vitanlega er enginn ágreiningur hér á hinu háa Alþ. um, að þessar lagfæringar séu réttmæt. og sjálfsagðar, heldur er það spurning, hvort ekki hefði verið eðlilegt og sjálfsagt að ganga lengri í þessu efni, miðað við allar aðstæður og fylgja því fram, sem hefur verið gert, t.d. í fjölda sveitarfélaga, að það sé ekki lagt á ellilífeyri og örorkubætur, a.m.k. ekki ellilífeyri.

Við höfum leyft okkur í minni hl. n. eða við fulltrúar Sjálfstfl. í n. að leggja fram sömu brtt. og flutt var af hálfu fulltrúa Sjálfstfl. í fjh: og viðskn. Nd. um það, að til viðbótar þessum frádrætti, sem hér er um að ræða, komi ákvæði þess eðlis, að frádráttarbær skuli vera ellilífeyrir og örorkulífeyrir. Það er einfaldlega þessi breyting, sem við leggjum til, að sé gerð á frv.

Hv. frsm. meiri hl. gat um það, að nokkrar fleiri breytingar hefðu verið gerðar á frv. þessu í Nd., eftir ósk fjmrh., skilst mér vera. Það verður nú að segjast eins og það er, að sumar þessar breytingar eru nánast skringilegar. Það er t.d., að því er ég bezt sé, gerð sú breyting í 9. gr., að þar er sett inn aðskilið ellihrörleiki og veikindi. Ég hef haldið, að ellihrörleiki væri veikindi, en þetta þykir víst orka svo mikið tvímælis, að það er sett hér inn heil grein, sem tekin er upp úr lögunum, til þess að koma þessu ákvæði inn. En það er eitt efnislegt atriði, sem mér finnst skipta máli og nánast sagt er óskiljanlegt. Ég veit ekki, hvort hv. formaður n. getur upplýst, hver meiningin er með þessu ákvæði, en mér þætti það þá mjög fróðlegt og reyndar hefði gjarnan óskað eftir því, að fjmrh. hefði skýrt málið. En með leyfi hæstv. forseta ætla ég að lesa upp þetta atriði eða þessa klausu úr frv. en hún hljóðar þannig, það er í 8. gr.:

„Fjmrh. getur með reglugerð ákveðið, að innheimta skuli fyrir fram upp í væntanleg þinggjöld yfirstandandi árs hjá hverjum gjaldanda fjárupphæð, er nemi ákveðnum hluta þeirra þinggjalda, sem honum ber að greiða næstliðið ár“. — Hvernig veit nokkur um það, hvað honum beri að greiða næstliðið ár, fyrr en álagðir eru skattarnir.—Áfram heldur: „Við ákvörðun fyrirframgreiðslunnar skal gætt þeirra tekjubreytinga, sem orðið hafa, og almenns efnahagsástands í landinu. Ráðh. er heimilt að miða fyrirframgreiðslu samkv. þessari mgr. við hlutfall af tekjum yfirstandandi árs í stað hlutfalls af gjöldum næstliðins árs, telji hann þá aðferð betur henta. Þar sem innheimta opinberra gjalda er sameiginleg“ — o.s.frv. — „skulu heimildir þessarar mgr. taka með sama hætti til innheimtu annarra gjalda en þinggj.“ — Svo kemur næsta setning: „Nú verður ljóst, þegar álagningu skatta lýkur, að gjaldandi hefur þegar greitt meira en álagða skatta,“ — þ.e.a.s. á miðju ári, — „og skal þá endurgreiða það, sem ofgreitt var, ásamt 1/2 % vöxtum fyrir hvern mánuð eða brot úr mánuði, sem fé var í vörzlu ríkissjóðs“.

Ég man eftir, að það þóttu ósköp, þegar ég lagði til, að það fengist heimild til að innheimta á næsta innheimtuári 55% eða allt upp í 60% e.t.v. af sköttum, sem maður hafði greitt s.l. ár. En hér er sannast sagna, að í fyrsta lagi er ákvæðið gersamlega óskiljanlegt, hvað þeir eru að fara, við hvað eru þeir að miða, og í annan stað að hugsa sér það, ef á að ganga það langt í skattheimtunni, að menn gera því skóna, að maður sé á miðju ári búinn að greiða alla sína skatta. Þetta er harla gott fyrir ríkissjóð, miðað við, hvað beinir skattar eru orðnir geysilega þungur liður í hans tekjum. Nú orkar það ekki tvímælis, og það var einmitt gagnrýnt, þegar var lagt til, að þetta fyrra ákvæði væri tekið upp, sem ég gat um, að það væru 55 eða 60% af álögðum sköttum fyrra árs, þá var því mótmælt á þeim grundvelli, sem út af fyrir sig var rétt, að þá væri þetta íþyngjandi að því leyti, að meðan dýrtíð væri vaxandi, — og það eru ekki miklar líkur til a.m.k., að hún sé að dragast saman nú fremur en endranær, nema síður sé, — þá sé auðvitað léttbærara fyrir menn að þurfa ekki að borga strax á næsta ári meiri hluta af sköttum sínum, þegar laun fari stöðugt hækkandi, þá verði það léttbærara þeim mönnum að greiða seinni hluta ársins hærri prósentutölu. Þetta er út af fyrir sig efnislega rétt. Þess vegna verð ég að segja það, að mér blöskrar í rauninni þetta ákvæði, að svo miklu leyti sem hægt er að skilja það, ef menn, eins og ég segi, gera ráð fyrir því, að það sé hugsanlegt, að það sé á fyrri hluta næsta árs búið að innheimta alla skatta skattþegns á viðkomandi ári, þannig að ríkissjóður sé jafnvel búinn á miðju árinu að fá lán hjá skattgreiðendum til þess að fjármagna sín útgjöld. Ég hef ekki heyrt og það kom ekki fram í Nd. nokkur skýring á því, — ég veit ekki einu sinni, hvort þar var um það spurt, —en ég vil nú leyfa mér að óska eftir því, að annað hvort hv. formaður n. eða hæstv. fjmrh., — ef þeir hafa hæfi til að skilja þetta sjálfir, en ég kalla þá mjög snjalla menn, ef þeir skilja það, — gæfi skýringu á því, hver meiningin er með þessu dæmalausa ákvæði, því að þarna virðist vera gert ráð fyrir tveimur, ef ekki þremur reglum, sem fjmrh. geti valið á milli, eftir því sem honum hentar. Ég skal ekki orðlengja um þetta frekar, en mundi mjög óska eftir að fá .á þessu skýringu, en mun nú víkja að hinni brtt. okkar hv. 2. þm. Reykv., en hún er um skattvísitöluna.

Skattvísitala hefur aldrei verið ákveðin á þessu ári með lögmætum hætti. Hún skal samkv. skattal. ákveðin í fjárl. Hún er hvergi ákveðin í fjárl. Það hefur gersamlega gleymzt. Það er getið um hana í grg. með fjárlagafrv., að það sé gert ráð fyrir, að hún verði 128 stig, en það er ekki sama og lögfesta hana að gera ráð fyrir því í grg., þannig að mér sýnist það vera alveg augljóst mál, að til þess að heimilt sé að beita skattvísitölu, verði að fá með einhverjum hætti lagaheimild í því efni. Því hefur okkur sýnzt rétt að setja hér bráðabirgðaákvæði, sem gildi aðeins fyrir skattárið 1972, að skattvísitala skuli ákveðin, og við höfum miðað við töluna 135. Ég held, að það sé ekkert yfirboð af þeirri einföldu ástæðu, að ég veit ekki betur og ég hef séð það í sérstöku minnisblaði, sem hæstv. fjmrh. sendi Alþýðusambandi Íslands, — og ég verð þá leiðréttur, ef ég fer skakkt með það, — að hann býst þar við að hafa skattvísitölu 135 stig, og þess vegna sýnist vera rétt og eðlilegt að afla fjmrh. heimildar til þess að framkvæma skattvísitöluna á þennan hátt, sem hann hefur boðið. Í fyrsta lagi ber auðvitað að afla einhverrar heimildar, það liggur í augum uppi, að það verður að gera, því að hún er ekki til, það hefur verið vanrækt í sambandi við afgreiðslu fjárl., og í annan stað að miða þá heimildina við það, sem hæstv. ráðh. hefur boðið launþegasamtökunum, að ákveða skuli skattvísitölu í samræmi við það, sem hann gerði í sínu tilboði til verkalýðssamtakanna. Ég geri naumast ráð fyrir því, að hann hugsi sér að taka aftur það tilboð.