17.04.1973
Neðri deild: 95. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3713 í B-deild Alþingistíðinda. (3337)
214. mál, atvinnuréttindi skipstjórnarmanna
Frsm. (Garðar Sigurðsson) :
Herra forseti. Eins og fram kemur í nál. á þskj. 788, hefur hv. samgn. rætt þetta mál á fundum sínum og lagt til, að frv. verði samþ.
Það var ekki ágreiningur um málið í Ed. og ekki heldur meðal þeirra fundarmanna í n., sem viðstaddir voru afgreiðslu málsins. En það er tekið fram, að þeir. voru hvorugur viðstaddur, hv. þm. Friðjón Þórðarson og Sverrir Hermannsson.
Með þessu frv. eru prentuð sem fskj. umsagnir þriggja aðila, þ.e. umsagnir frá Siglingamálastofnun ríkisins, L.Í.Ú. og Farmanna- og fiskimannasambandi Íslands. Tveir umsagnaraðilanna hafa ýmislegt við frv. að athuga, en L.Í.Ú. mælir með því, að það verði samþ. Eru aths. frá Siglingamálastofnuninni um nokkur atriði, og þá tel ég helzt það atriði, að þeir finna að því, að skipstjórnarréttindi geti menn fengið á verzlunarskipum, þó að möguleikar séu á, að þeir hafi aðeins verið á varðskipum. Meiri hl. n. taldi þetta praktískt talað ekki mikilvægt atriði, þar sem varla kæmi til þess, að menn yrðu ráðnir skipstjórar á verzlnnarskipi utan einhverrar reynslu, sem flestir, sem sækja um slíkt starf, hefðu sjálfsagt. Hins vegar áleit n. það mikilvægt þrátt fyrir þetta atriði, að málið kæmist áfram, og vildi ekki fara að flytja brtt., hvorki um þetta né annað.