17.04.1973
Neðri deild: 95. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3713 í B-deild Alþingistíðinda. (3338)

214. mál, atvinnuréttindi skipstjórnarmanna

Sverrir Hermannsson:

Herra forseti. Afgreiðsla þessa máls, eins og lagt er til af hv. meiri hl. samgn. Nd., er lýsandi dæmi um það, hvernig ekki á að standa að afgreiðslu mála. N. hefur ekkert rætt þetta mál, hefur ekkert athugað það, ekki lesið frv., hvað þá meir. Þess er getið hér vinsamlegast í nál. meiri hl., að 2 nm, hafi ekki verið mættir. Af hverju skyldi það hafa verið? Það var fyrir það, að báðir voru uppteknir við umr. hér í þingi, þeir áttu báðir fsp. hér á dagskrá og komust ekki á nefndarfundinn. Það var ekki rætt eitt eða neitt á þessum nefndarfundi, málamyndanefndarfundi, og alls ekkert lesið, fyrr en þá nú af hv. þm., frsm. þessarar nefndar, þegar hann var að vitna í aðfinnslur Siglingamálastofnunar, sem eiga fyllilega rétt á sér. Ég geri helzt ráð fyrir því, að þannig hafi þetta verið afgreitt af hv. Ed. líka. Þetta eru að sjálfsögðu forkastanleg vinnubrögð. Ef þetta mál verður afgreitt sem lög frá Alþ., þá er það gert sem fljótaskrift að óathuguðu máli og gersamlega án þess, að menn viti, hvað þeir eru að gera.