17.04.1973
Sameinað þing: 74. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3726 í B-deild Alþingistíðinda. (3358)

211. mál, flugvallargerð við Seyðisfjörð

Fyrirspyrjandi (Sverrir Hermannsson):

Herra forseti. Um nokkurt skeið hafa verið uppi áform um að byggja sjúkraflugvöll við Seyðisfjörð. Mér er kunnugt um, að fyrirsvarsmenn í félagsmálum þar eystra töldu, að munnlegt leyfi hæstv. samgrh. um byggingu flugvallarins hefði legið fyrir þegar á s.l. ári, en vegna ónógs undirbúnings hefði ekki getað af framkvæmdum orðið. Þetta mál er mjög brýnt og mikilvægt og til þess að fá svar frá fyrstu hendi hef ég leyft mér að beina eftirfarandi fsp. til hæstv. samgrh.: „Hvenær verður hafizt handa um gerð sjúkraflugvallar við Seyðisfjörð?“