17.04.1973
Sameinað þing: 74. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3738 í B-deild Alþingistíðinda. (3374)
312. mál, endurskoðun á loftferðalögum
Fyrirspyrjandi (Axel Jónsson):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. hans svör. Ég gerði það af ásettu ráði til þess að spara tíma að fara ekki að endurtaka það, sem tekið er fram í grg. með þál. né nokkuð af þeim rökum, sem fram voru færð gagnvart henni á sínum tíma. En hefði það verið gert með fsp., hefði svar ráðh. getað verið miklu skemmra, því að þar er einmitt tekið skýrt fram, að ákvæði íslenzkra loftferðalaga varðandi farþegaflug, þ.e.a.s. atvinnuflugið, séu mjög ítarleg og í algeru samræmi við milliríkjasamninga. Það, sem fyrst og fremst vakti fyrir okkur flm., var að fá nánari og skýrari ákvæði um einkaflugið og hina svokölluðu flugklúbba, ef ég má nota það orð. Um þetta eru ekki neinir milliríkjasamningar til, og ákvæði um það í loftferðalögum nágrannalanda okkar eru mjög ófullnægjandi. Þar af leiðandi er kannske ekki um að sakast, þó að í íslenzkum loftferðalögum séu ekki enn komin skýrari ákvæði þar um en raun er á. En það reyndi á viss atriði þessara laga fyrir ekki löngu, og tók langan tíma að fá úr því skorið fyrir hæstarétti, hvernig bæri að skilja þau. Hæstiréttur Íslands klofnaði í málinu. Það, sem hafa ber þó umfram allt í huga, er, að það er nauðsynlegt, að við fylgjum þarna alfarið og í öllu ákvæðum erlendra þjóða varðandi öryggi um flug. En íslenzkar aðstæður eru oft og tíðum sérstæðar og erfiðar, alveg sérstaklega fyrir þessar litlu vélar. Það vakti einmitt fyrir okkur flm., að það þyrfti að setja inn miklu nákvæmari og strangari ákvæði í loftferðalögin íslenzku varðandi einkaflugið og flug hinna litlu véla. Ég vænti þess, — og veit, að ég mæli þar fyrir munn meðflm. að umræddri þál., — að hæstv. samgrh. beiti sér fyrir því, að þarna verði sett ótvíræðari og ákveðnari ákvæði, jafnvel ákveðnari en fyrirfinnast í nágrannalöndum okkar, varðandi þennan þátt flugsins