17.04.1973
Sameinað þing: 74. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3741 í B-deild Alþingistíðinda. (3381)
249. mál, endurskoðun bankakerfisins
Ingólfur Jónsson:
Herra forseti. Það eru víst aðeins 2 mínútur, sem ég hef yfir að ráða, og því ekki margt hægt að segja. Hv. 3. landsk. má taka á þolinmæðinni sem stuðningsmaður hæstv. ríkisstj. Hann hefur nú fengið svör frá hæstv. viðskrh. við fsp. sínum, og hvert var svarið? Það var það, að ráðh. hefði látið semja frv. um sameiningu tveggja banka, þ.e. Búnaðarbankans og Útvegsbankans. Ekkert liggur fyrir um það, hvort það muni leiða til sparnaðar. Sumir segja, að ekkert mundi sparast við það, og þess vegna eins og hæstv. ríkisstj. hafi sniðgengið það, sem ætlazt var til með samdrætti í bankakerfinu. Það virðist vera, að lítið hafi verið gert á þeim nærri tveimur árum, sem hæstv. ríkisstjórn hefur setið við völd, í þessu skyni, annað en að semja frv. um sameiningu tveggja banka.
Hæstv. viðskrh. sagði hér áðan og reyndar einnig fyrr í vetur, að frv. mundi verða lagt fram um sameiningu banka. Og enn segir hæstv. ráðh., að það muni fyrr eða seinna verða lagt fram frv. um þetta efni, sameiningu banka. Nú vil ég spyrja: Hvernig getur hæstv. ráðh. fullyrt, að þetta verði gert? Og í tilefni af þessu vildi ég spyrja: Er samkomulag um það í hæstv. ríkisstj. að sameina Útvegsbankann og Búnaðarbankann? Í öðru lagi: Eru nokkrar líkur til þess, að hér á hv. Alþ. sé meiri hl. fyrir því að gera þessa sameiningu? Ég held, að hæstv. ríkisstj. verði að muna það, að til þess að geta fengið þetta lögfest, þarf að hafa meiri hl. í þingi. Og áður en frv. væri lagt fram, væri æskilegt, að ríkisstj. kæmi sér saman um, hvað hún vill fá lögfest. En hæstv. ríkisstjórn hefur á þessu þingi lagt fram mörg stjfrv., sem stjórnin hefur alls ekki í heild staðið að. Þess má nú minnast. En ég hefði haldið, að hæstv. ríkisstj. væri búin að læra af reynslunni og ætlaði sér ekki að endurtaka það.