17.04.1973
Sameinað þing: 74. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3744 í B-deild Alþingistíðinda. (3386)

251. mál, bætt aðstaða ferðafólks og verndun ferðamannastaða

Jón Árm. Héðinsson:

Herra forseti. Af því að það var talað um fjárveitingavaldið af fyrirspyrjanda, vil ég aðeins minna á það, að fjárveitingavaldið var ekki verra en það við náttúruverndarráð að það veitti 17 millj. kr., ef ég man töluna rétt, en sótt var um nokkru hærri tölu. Þar sem hér er hreyft mjög mikilvægu máli í sambandi við umgengni við náttúruna, væri ekki óhugsandi, að hinir ágætu náttúruverndarmenn hugleiddu þetta vandamál eða ráðstöfun þess fjár, sem fjárveitingavaldið veitti nú á fyrsta heila starfsári ráðsins, sem ég tel ekki lítið. Ég tel það ekki lítið að byrja með 17 millj. Þetta er viðkvæmt mál og ber að taka það föstum tökum, eins og hæstv. ráðh. hefur drepið á og fyrirspyrjandi undirstrikað. Ég tel, að fjárveitingavaldið hafi ekki verið mjög smásálarlegt við náttúruverndarráð, og það væri vel viðeigandi, að það hugleiddi þetta mál og léti eitthvað af hendi rakna af sinni fjárveitingu.