17.04.1973
Sameinað þing: 74. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3745 í B-deild Alþingistíðinda. (3388)

251. mál, bætt aðstaða ferðafólks og verndun ferðamannastaða

Fyrirspyrjandi (Jónas Jónsson) :

Herra forseti. Það er örstutt aths. vegna ummæla hv. 5. þm. Reykn., sem jafnframt er fjvn: maður. Ég lít ekki aðeins á þetta sem náttúruverndarmálefni eða málefni náttúruverndarráðs og vil rökstyðja það þannig, að ferðaútvegur sé atvinnugrein, sem skilar gjaldeyri, sköttum til þjóðarinnar. Hvort sem ferðaútvegurinn væri skattlagður til þessa eða ekki, er það samfélagsins að sjá til þess, að þessir staðir séu ekki lagðir í örtröð, þeir séu ekki rányrktir.