17.04.1973
Sameinað þing: 75. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3766 í B-deild Alþingistíðinda. (3399)

Skýrsla forsætisráðherra um Framkvæmdastofnun ríkisins

Ingólfur Jónsson:

Herra forseti. Ég fer ekki að ræða þessa skýrslu, sem hæstv. forsrh. gaf hér áðan, til þess finnst mér ekki vera tækifæri, vegna þess að þm. höfðu ekki heyrt hana áður og sumt af því, sem hæstv. forsrh. sagði, heyrðist ekki vel yzt út í horn í salnum. Ég stend hér upp af sérstöku tilefni, þ.e. vegna Suðurlandsáætlunar.

Eins og hv. alþm. muna, var í ársbyrjun 1972 samþ. þál. hér í hv. Alþ. um áætlunargerð fyrir Suðurland. Hæstv. forsrh. skrifaði Framkvæmdastofnuninni, að ég ætla í maí, og lagði fyrir hana að vinna að þessari áætlunargerð. Sveitarstjórnarsamband Suðurlands hefur haft samband við Framkvæmdastofnunina, forstjóra hennar, framkvæmdaráðið, og með samþykki Framkvæmdastofnunarinnar hefur verið unnið sleitulaust að áætlunargerð fyrir Suðurland. Út af fyrir sig finnst mér það vera þakkarvert, að Framkvæmdastofnunin samþykkti það, að ráðizt væri í þessa áætlunargerð. Framkvæmdastofnunin tók fram, að hún hefði ekki mannafla til þess að flýta þessu verki, en samþykkti, að verkið væri unnið utan stofnunarinnar. Hagvangur h/f og fleiri hafa unnið að áætlunargerðinni í samráði við framkvæmdastjóra sveitarstjórnasambands Suðurlands. Þetta hefur gengið tiltölulega vel, og fyrri hluti áætlunargerðarinnar hefur verið gefinn út í bókarformi. Er nú unnið að seinni hluta áætlunargerðarinnar. Áfallinn kostnaður er 2.6 millj. kr., og það, sem er ógreitt, er 1.4 millj. kr. Ágreiningur hefur risið upp á milli sveitarstjórnasambandsins og Framkvæmdastofnunarinnar um greiðslu, ekki um það, hvort Framkvæmdastofnunin muni greiða kostnaðinn, því að vitanlega stendur Framkvæmdastofnunin við að greiða kostnaðinn, þar sem verkið hefur verið unnið með samþykki stofnunarinnar. Ágreiningurinn hlýtur þess vegna að vera aðeins um það, hvenær þetta verður greitt. Og ég vil afsaka Framkvæmdastofnunina að nokkru leyti með því, að þeir hafa sagt, að þeir hefðu ekki fjármagn að sinni til þess að greiða þetta. Út af fyrir sig getur það verið afsakanlegt, og ég vil aðeins við þetta tækifæri draga þetta fram. Í sannleika sagt hef ég ekki haft stórar áhyggjur út af þessum ágreiningi, sem upp hefur komið á milli stofnunarinnar og sveitarstjórnarsambandsins, vegna þess að ég er handviss um, að þetta verður greitt, vegna þess að verkið er unnið í samráði við stofnunina. Hæstv. forsrh. gerði það, sem vænzt var af honum, að skrifa bréfið á s.l. vori. Ég vil í tilefni af því, sem hefur gerzt í þessum málum, vænta þess, að forsrh. ljái því lið, ef með þarf, að kostnaðurinn við áætlunargerðina verði að fullu greiddur, ef ekki á þessu ári, vegna þess að fjármagn vantar, þá verði gert ráð fyrir því í áætlun stofnunarinnar á næsta ári. Við þm. Sunnl. erum sanngjarnir menn og skilningsríkir, ef í það fer, og gerum ekki ósanngjarnar kröfur. Þess vegna finnst mér ekki vera tilefni til þess að hefja neinar ádeilur hér á Framkvæmdastofnunina, þótt hún hafi ekki snarað út þessu fjármagni.

Ég vil aðeins nota tækifærið til þess að geta um það, sem hefur gerzt í þessu, og minna á það, að enn er unnið að áætlunargerðinni, og reikna má með, að þegar verkinu er lokið, verði ógreiddur kostnaður talsvert á 3. millj. kr. Ef ekki er unnt að fá þetta fjármagn á þessu ári, verður með einhverjum hætti að ýta þessari skuld á undan sér fram á næsta ár.

Ég sé, að formaður framkvæmdaráðsins er hér í hv. d., og gleðst ég yfir því, að hann hlustar á mál mitt og skrifar þetta til minnis.

Í sjálfu sér var erindi mitt hingað í ræðustólinn að þessu sinni ekki annað en þetta. Ég sé ekki ástæðu til, — sérstaklega líka vegna þess, að hæstv. forsrh. hefur boðað, að þm. verði send sú skýrsla, sem hann gaf hér í dag, — ástæðu til að ræða þetta mál frekar nú. Það verður sjálfsagt gert í haust, þegar þm. hafa kynnt sér allt innihald skýrslunnar, sem hlýtur þá að vitna um starfsemi stofnunarinnar. Og vitanlega verður forvitnilegt að sjá upplýsingar um lánveitingar og annað til hinna ýmsu atvinnugreina og til hinna ýmsu kjördæma í landinu, hvernig stofnuninni hefur tekizt að úthluta fjármagninu á sem réttlátastan hátt og þannig, að það hafi sem mest þjóðhagslegt gildi fyrir þjóðfélagið.

Hæstv. forsrh. sagði hér áðan, að hann væri reiðubúinn til þess að beita sér fyrir breytingu á stofnuninni, ef reynslan sýndi, að þess væri þörf. Þetta finnst mér ágætt. Ég fyrir mitt leyti hef talið, að það væri þörf á að breyta stofnuninni, enda þótt ég hafi ekki enn mjög náin kynni af henni. Og mér finnst satt að segja, að lesa megi það út úr orðum hæstv. forsrh., að hann telji þetta jafnvel vera nauðsynlegt. Ef hæstv. forsrh. liti svo á, að stofnunin væri harla góð í því formi, sem hún nú er, þá held ég, að hann hefði látið það ótvírætt í ljós. En ég heyrði hæstv. forsrh. alls ekki minnast á það, að stofnunin væri ágæt af verkum sínum, heldur miklu frekar minna hv. þm. á það, sem ætti þá að verða til þess að sætta þá við það, sem gert hefur verið, að hann, hæstv. forsrh., væri reiðubúinn að beita sér fyrir breytingum, ef reynslan sýndi, að þarna mætti margt betur fara. Mér finnst þetta vera vel mælt.

Ég tel eðlilegt, að það sé leiðrétt hér nokkuð, sem hæstv. forsrh. sagði um kostnað við stofnunina og hv. 2. þm. Vestf. leiðrétti ekki, enda þótt hann gerði kostnaðinn að umtalsefni. Hæstv. forsrh. sagði, að kostnaður við stofnunina árið 1972 hefði numið 32.8 millj. kr. Nú man ég ekki, hvenær stofnunin tók til starfa. Ég held, að það sé alveg útilokað, að hún hafi starfað meira en 9 mánuði á árinu 1972, kannske ekki nema 8. Þess vegna er það, að ef stofnunin hefði starfað allt árið, hefði kostnaðurinn ekki orðið 32.8 millj., hann hefði alla vega farið yfir 40 millj., sé miðað við það, að þessar 32.8 millj. séu fyrir 9 mánaða starfstíma. Svo koma 7 millj. í stofnkostnað, teppin og gluggatjöldin, sem endast vitanlega lengur en eitt ár, og ekki sanngjarnt að færa það allt saman á kostnað ársins 1972. En af þessu sýnist mér vera ljóst, að stofnunin sé nokkuð dýr. Hæstv. forsrh. hefur afsökun og hann hafði vaðið fyrir neðan sig, þegar verið var að ræða frv. til laga um Framkvæmdastofnunina. Ég man eftir því, að ég kom með fsp. til hæstv. forsrh. um það, hvað ætla mætti, að stofnunin mundi kosta, eða hve mikil kostnaðaraukning yrði af rekstri stofnunarinnar, miðað við það, sem framkvæmdasjóður, atvinnujöfnunarsjóður og Efnahagsstofnunin höfðu kostað. Hæstv. forsrh. sagði: Eg veit það ekki: Og það getur enginn álasað honum fyrir það. Það hefði verið miklu frekar ámælisvert, ef hann hefði sagt: Þetta verður sem sagt enginn kostnaðarauki. En mér sýnist, að stofnunin sé nú allt að því helmingi dýrari í rekstri en hinar þrjár stofnanir, sem ég áður nefndi, og sannleikurinn er sá, að það er grunur minn og margra annarra hv. þm., að afköst stofnunarinnar séu ekki meiri að verkum heldur en hinna þriggja stofnana, sem kostuðu helmingi minna en Stofnunin (með stóra essinu).

Hæstv. forseti. Ég ætla ekki að þreyta þm. meira á tali um þetta að sinni, tel eðlilegt, að það bíði til haustsins, þegar við vonandi aftur komum öll saman. Þá höfum við fengið þá skýrslu, sem hæstv. forsrh. lofaði að útbýta, og þá verður þetta allt ljósara en það er enn í dag.