17.04.1973
Sameinað þing: 75. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3768 í B-deild Alþingistíðinda. (3400)
Skýrsla forsætisráðherra um Framkvæmdastofnun ríkisins
Forsrh. (Ólafur Jóhannesson):
Herra forseti. Það eru aðeins örfá atriði. Ég vil endurtaka það, sem ég sagði í minni frumræðu, að mér finnst það eðlileg vinnubrögð, að þessi mál verði rædd á haustþingi, og það sé ekkert því til fyrirstöðu, eftir að menn hafa fengið í hendur prentaða skýrslu og geta athugað þessi mál. Ég er ekkert að leyna því eða afsaka það, að ég tel þetta í raun og veru ekki heppilegt, að leggja skýrslu sem þessa svo seint fram sem nú er gert, og ég verð að taka það á mig. Ég tel líka, að í þessu ákvæði, 11. gr., felist ekki endilega, að það þurfi að lesa upp þessa skýrslu, heldur álit ég fyrir mitt leyti, að það séu heppilegri vinnubrögð, að sú skýrsla sé fjölrituð eða prentuð og henni deilt út á meðal þm., og þann hátt mundi ég vilja hafa á, ef það félli í minn hlut að gefa slíka skýrslu oftar.
Ég er ekkert að mæla mig undan ábyrgð í þessu sambandi, en verð þó að segja það, að 12. febr. s.l. sendi ég bréf til stjórnar Framkvæmdastofnunarinnar og óskaði eftir þessari skýrslu. Það er mjög stutt síðan þessi skýrsla barst mér í hendur og því miður þá ekki alveg fullfrágengin. Þess vegna get ég ekki tekið undir og mér kemur það dálitið ókunnuglega fyrir sjónir, að hv. þm. Benedikt Gröndal skuli deila á mig fyrir að lesa ekki upp alla skýrsluna, sem er full af talnaröðum og slíkum uppsetningum, að hún er í sjálfu sér óhæf til upplesturs. Þess vegna valdi ég þann kost að taka, að mér fannst, nokkuð skýran útdrátt úr þessari skýrslu, útdrátt, sem var kominn frá þeim deildum sérstaklega, sem fjölluðu um hvern þann þátt fyrir sig, sem undir þær heyrði.
Mér þótti það í sjálfu sér nokkuð merkilegt, að hér skyldu taka fyrstir til máls og ríða á vaðið tveir stjórnarmenn í Framkvæmdastofnuninni. Nú er það svo samkv. skýrum lögum Framkvæmdastofnunarinnar, og þannig er það í framkvæmd, að allar lánveitingar, allar styrkveitingar eru ákveðnar af stjórn Framkvæmdastofnunarinnar, en ekki af framkvæmdaráðinu. Enn fremur eru allar almennar ákvarðanir um áætlanir teknar af stjórninni, en ekki framkvæmdaráðinu. Það er rétt, að ég sendi að sjálfsögðu Framkvæmdastofnuninni allar þær þál., sem hér voru samþ. um áætlanagerðir, en síðan var það svo auðvitað verkefni stjórnar Framkvæmdastofnunarinnar að taka þær til athugunar og ákveða, í hvaða röð starfsmenn stofnunarinnar, í þessu tilfelli áætlanadeildin, skyldu taka þau til meðferðar. Og það er stjórn stofnunarinnar, sem hefur raðað því niður, hvaða áætlanir skyldu teknar fyrir af áætlanadeildinni og unnið að, en ekki sú pólitíska stjórn, sem fundið er að, að sett hafi verið yfir þessa stofnun.
Ég fæ fundargerðir stjórnar Framkvæmdastofnunarinnar, og auðvitað hefðu þessir ágætu stjórnarmenn eðlilega haft færi á því að koma á framfæri á fundum stjórnar Framkvæmdastofnunarinnar þeim áhugamálum sínum, sem þeir lýstu hér áðan, um eflingu áætlanagerðar o.fl. Ég hef ekki rekizt á neina sérstaka liði í fundargerðunum um það frá þeirra hálfu. En það má vera, að mér hafi nú yfirsézt eitthvað í því efni. En vill þá þessi hv. þm. og þeir, sem í stjórn stofnunarinnar sitja, halda því fram, að það hafi verið beitt pólitískri misnotkun við úthlutun lána og styrkja eða ákvörðun um áætlanagerðir? Ég hef veitt því athygli, að langoftast eru þessar ákvarðanir teknar með shlj. atkv., en þó ekki alltaf. En þá hef ég líka veitt því athygli, að atkvgr. um einstakar lánveitingar eða styrkveitingar hafa ekki farið eftir pólitískum línum, heldur hafa þá verið einhver önnur sjónarmið, sem þar hafa ráðið. Ég geri ekki ráð fyrir því, að þessir hv. stjórnarmenn Framkvæmdastofnunarinnar vilji halda því fram að pólitísk misnotkun hafi átt sér stað við ákarðanir í þessu efni. Ég vona, að þeir viðurkenni, að þessi verk hafi verið unnin eftir beztu samvizku, og það eru ekki framkvæmdaráðsmennirnir, sem taka ákvarðanirnar um það. Hitt er auðvitað rétt, að þeir undirbúa málin og gefa sínar skýrslur og upplýsingar til stjórnarinnar.
Þá kem ég að því, sem ég tel, að hafi orðið framför við þessa stofnun, og það er það, að framkvæmdastjórarnir, a.m.k. sumir hverjir, hafa gert allmikið að því ásamt ýmsum starfsmönnum þessarar stofnunar að ferðast út um land og kynna sér aðstæður þar og fyrirtæki þau, sem óskað hefur verið eftir fyrirgreiðslu til, og þeir hafa síðan gefið skýrslur um það. Ég efast ekkert um, að með þessum hætti hefur verið hægt að komast að skynsamlegri niðurstöðu um ýmis atriði en annars hefði verið hægt. Ég á ekki von á því, að hv. stjórnarmenn Framkvæmdastofnunarinnar lasti þessi vinnubrögð, a.m.k. er mjög skammt síðan ég las það í sjálfstæðisblaði frá Siglufirði, að þangað hafi einn framkvæmdaráðsmaður komið, og það var látið mikið yfir hans komu þangað og þeim skiptum, sem hann hefði átt þar við fyrirtæki nokkurt, og hvernig hann hefði kynnt sér málið, þannig að ég get ekki fallizt á, að þar hafi verið um að ræða nokkra pólitíska misnotkun í þessu sambandi. Ég á ekki heldur von á því, að þeir vilji halda því fram í alvöru, að svo hafi verið.
Ég endurtek enn, að allar hinar raunverulegu ákvarðanir eru í höndum þessarar stóru stjórnar Framkvæmdastofnunarinnar, sem er skipuð fulltrúum allra flokka, og eftir því sem ég veit bezt, eru engan veginn fátíðir fundir í þeirri stjórn. Ég hygg, að það sé um það bil hálfsmánaðarlega eða því sem næst, — má þó vera, að það falli niður fundir einstöku sinnum, ég skal ekki fullyrða það, — en ég hef séð það á fundargerðunum, að það eru æði oft fundir haldnir í þessari stjórn og þar eru einmitt æðimörg mál tekin fyrir. En hlutverk framkvæmdastjóranna er, má segja, að vissu leyti venjuleg framkvæmdastjórastörf, að sjá um framkvæmd þeirra ákvarðana, sem teknar eru í stjórn stofnunarinnar, undirbúa mál fyrir fundi stofnunarinnar o.fl. í því sambandi.
Það er alveg rétt, sem hv. þm. Matthías Bjarnason sagði um hin sjálfvirku lán til skipa og báta og eitthvað fleira. Það er mjög stór upphæð, og þær reglur giltu allt árið 1972. En þeim var breytt um áramót, þannig að þau lán eru ekki sjálfvirk lengur. Það þýðir auðvitað ekki, að það séu ekki eftir sem áður veitt þessi eða sams konar lán til fyrirgreiðslu við bátakaup og skipasmíðar, þegar ástæða er til að mati stjórnar Framkvæmdastofnunarinnar.
Það má vel vera, að ég og aðrir hefðum kosið, að það væri hægt að efla áætlanagerð meira en gert hefur verið. Ég hygg þó, að það geti engum blandazt hugur um, að það hefur orðið ótvíræð framför í því efni. Hins vegar er það svo, eins og ég hygg að ég hafi tekið fram, þegar ég mælti fyrir frv. á sínum tíma, að áætlun er ekki neitt, sem unnið er á einum degi eða í skyndingu. Það tekur sinn tíma að vinna að áætlunum, og þær verður að undirbyggja með ýmsum þáttum. Það er ekki alltaf auðvelt að sjá árangurinn af áætlunarstarfinu alveg í skyndingu. Það get ég líka sagt í sambandi við það, sem hv. þm. Lárus Jónsson sagði, að hann hefur einmitt unnið að þessum störfum og er kunnugur því, hvernig þau gerast. Hann veit það kannske manna bezt, þeirra sem hér eru, að það er ekkert áhlaupaverk að gera áætlun. Hann hafði einu sinni það hlutverk að vinna að áætlanagerð, — áætlanagerð fyrir Norðurland. Hann skilaði áætlanagerð, sem kölluð var atvinnumálakafli, skulum við segja, fyrir Norðurland. Það var ekki sundurliðuð áætlun, sem ég vil ekkert vera að álasa honum fyrir, vegna þess að það er ekki auðvelt verk að vinna alveg sundurliðaða áætlun. En það tók sinn tíma að gera þetta almenna yfirlit, enda þótt það væri ekki frekar sundurliðað en það var. Og sjálfsagt er það alveg eins með þá starfsmenn, sem vinna í áætlanadeildinni nú, að þeir vilja vinna verk sitt vel. Það tekur sinn tíma að láta frá sér fara alveg. sundurliðaðar áætlanir. Það eru mörg atriði, sem þarf að kanna, ef á að vera nokkurt vit í áætlununum.
Út af þeirri spurningu, sem hv. þm. beindi til mín viðvíkjandi skiptingu vegafjár samkv. Norðurlandsáætlun, vil ég segja það, að ég vænti þess, að sú skipting geti átt sér stað innan skamms. Sú skipting verður eðlilega, eins og alltaf hefur átt sér stað, gerð í samráði við þm. Norðurlands. Það eru ekki nema nokkrir dagar síðan framkvæmdaáætlunin var endanlega afgreidd, og þó að þetta hafi staðið í frv. og áætlun, þá var ekki tímabært í sjálfu sér að fara að taka ákvarðanir þar um, fyrr en það lá endanlega fyrir, að frá þessu mundi verða gengið á þennan hátt. Ég vona, að þetta svar dugi við því, sem hann spurði um.
Viðvíkjandi því, sem hv. 1. þm. Sunnl., Ingólfur Jónsson, sagði varðandi framkvæmdaáætlun fyrir Suðurland, þá hefur Framkvæmdastofnunin látið frá sér fara aths. við það, sem var haldið fram af framkvæmdastjóra sveitarfélagasambandsins í Suðurlandskjördæmi. Þær aths. voru á þá lund, að í fyrsta lagi hefði framkvæmdastjórinn haft mikil samráð við ýmsa starfsmenn stofnunarinnar, þannig að þeir með þeim hætti hefðu e.t.v. lagt sitt af mörkum til áætlanagerðarinnar. Í öðru lagi var tekið fram í þeim aths., sem frá stofnuninni komu, að sum atriði í þessari Suðurlandsáætlun eða 1. hefti, sem út er komið, hefðu beinlínis verið unnin í Framkvæmdastofnuninni, eins og t.d. arðsemisathugun og áætlun um vegaframkvæmdir. Enn fremur var skýrt frá því, að fundir hefðu verið haldnir með framkvæmdaráði á Suðurlandi, skilst mér, og framkvæmdaráðsmenn hefðu tekið þátt í fundum sveitarfélagasambandsins á Suðurlandi um þessi mál. Þeir bentu enn fremur á það í þessum aths., að þeir hefðu í sambandi við greiðslu kostnaðar við þessa áætlun notað þær ítrustu lagaheimildir, sem þeir teldu sig hafa, og greiddu kostnað 1972 að upphæð 500 þús., og 1973 er áætlað að greiða 640 þús. En viðvíkjandi því, sem hann sagði að öðru leyti um þetta, vil ég svara því til, að ef þessi áætlun verður unnin þannig, að hún fullnægi algerlega þeim kröfum, sem Framkvæmdastofnunin gerir um áætlanagerðir, þá finnst mér það aðalatriði, en ekki hitt, hvort hún er unnin af takmörkuðu starfsliði í Framkvæmdastofnuninni eða af öðrum hæfum mönnum, sem aðrir hafa á að skipa. Og ef áætlanagerðin verður sem sagt þannig úr garði gerð, þá get ég svarað því til, að ég mundi vilja beita áhrifum mínum til þess, að stofnunin tæki þátt í þeim kostnaði eða að hann yrði greiddur. Ég verð að. vísu að segja þetta með þeim fyrirvara, að ég veit ekki, hve áhrif mín í þessu efni ná langt og hvort ég hef nokkuð í sjálfu sér um þetta að segja, því að stjórn Framkvæmdastofnunarinnar er mjög sjálfstæð og tekur sínar ákvarðanir. En a.m.k. get ég og er mér frjálst að beina tilmælum til hennar, og það mundi ég sem sagt gera, ef þetta yrði fullkomin áætlanagerð.
Ég skal svo, herra forseti, ekki lengja þetta mál meira. Ég vænti þess, að það verði hægt að fella sig við það, sem ég hef stungið upp á, að það verði hægt að hafa ítarlegri umr. um þetta málefni, þegar menn hafa gleggri gögn í höndunum.