18.04.1973
Efri deild: 100. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3809 í B-deild Alþingistíðinda. (3448)

Starfslok efri deildar

Forseti (BJ) :

Sennilegt er, að hér verði um að ræða síðasta fund hv. þd. á því þingi, sem nú situr, og vil ég því nota tækifærið til þess að þakka öllum hv. þdm. fyrir ágæta samvinnu á því þingi, sem nú er að ljúka, ljúfmennsku í minn garð sem forseta og góða samvinnu í hvívetna. Skrifurum d. vil ég þakka sérstaklega ágæt störf, sem þeir hafa unnið af mikilli kostgæfni, og ekki síður varaforsetum, sem hafa veitt mér ómetanlega hjálp við stjórn funda í hv. þd. Þeim hv. þdm., sem langan veg eiga heim að sækja að þingi loknu, óska ég góðrar heimferðar, og öllum hv. þdm. óska ég góðrar heimkomu og einnig þess, að við megum öll hér heil hittast, þegar þing kemur saman að nýju að loknu sumarleyfi