18.04.1973
Neðri deild: 97. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3822 í B-deild Alþingistíðinda. (3462)

214. mál, atvinnuréttindi skipstjórnarmanna

Sverrir Hermannsson:

Herra forseti. Hv. þm. Björn Pálsson hélt því fram, að hann hefði lesið frv. þrem sinnum. Og þá hefur haninn galað þrisvar og hann brotið af sér gagnvart hæstv. forsrh. og lagt Ólafskver á hilluna, sem hann hafði þó lofað og undirgengizt að lesa á hverju kvöldi. Það hefur hann ekki gert, þessi hv. þm., og orðið uppvís að svikum við sjálfan hæstv. forsrh. Að vísu hefur hann sagt, og ég kann að meta það, að hann vildi gera þetta fyrir hann Bala gamla, eins og hann talar um hæstv. samgrh. Mitt álit er, að það þurfi ekki að draga allt óþvegið upp úr þeim bala, sem hér þarf að fara í gegn.

En hér eru allt saman hálfkveðnar vísur í sambandi við umsagnir þeirra aðila, sem eiga um þetta mál að fjalla. Það er látið í veðri vaka, að það sé mælt með þessu. Að vísu er því ekki andmælt ströngum orðum, að frv. gangi óbreytt fram, í umsögnum þeirra aðila, sem leitað er til. L.Í.Ú. hefur greinilega ekki lesið þetta fremur en hæstv. samgrh. og hefur þess vegna ekkert um þetta að segja. En hvað segir, ef lesið er gaumgæfilega það, sem stendur í umsögn Siglingamálastofnunar ríkisins? Þar segir siglingamálastjóri eða fulltrúi hans: „Ég tel, að lögin gangi of skammt í kröfum sínum til þeirra, sem öðlazt mega skipstjóraréttindi á fiskiskipum, af hvaða stærð sem er.“ Af hverju var þetta ekki lagfært í hv. Ed.? Af því að þetta var aldrei lesið þar né heldur hér í hv. Nd. Það var boðaður fundur í samgn., meðan við 2 nm. vorum á mælendaskrá sem fyrirspyrjendur, og fundurinn stóð í 5 mín. Ég var á leiðinni út, þegar ég mætti hv. nm. Stefáni Valgeirssyni í stiganum í Þórshamri, þar sem hann tilkynnti mér, að búið væri að afgreiða málið. Síðan segir hér áfram í umsögn Siglingamálastofnunar: „Einnig tel ég lögin of væg í kröfunum til skipstjórnarréttinda á verzlunarskipum af öllum stærðum.“ Hann telur þau of væg. Vita menn, um hvað þeir eru að fjalla? Einhverja þýðingarmestu atvinnugrein landsmanna, og enginn hreyfir hönd né fót til þess að taka þetta upp til umr. né rannsóknar. Þetta segir Siglingamálastofnunin. Undir þetta tekur Ingólfur Stefánsson hjá Farmanna- og fiskimannasambandinu, þar sem hann segir: „Skoðun okkar er sú, að þau réttindi, sem veitt eru samkv. 4. gr., þurfi athugunar við, ef ekki eigi að leggja þau alveg niður.“ Hvað segir svo í 4. gr.,ef hv. þm. vilja gera svo vel að fletta þar upp? Þar eru hvorki meira né minna en talin upp öll þau skilyrði, sem þarf til þess að öðlast réttindin. Þetta sýnir, svo að ekki er um að villast, að hér er kastað til höndunum.

Enda þótt einhverjir embættismenn segi, að þetta þurfi að ná fram að ganga, erum við þó löggjafinn, og það getur ekki gengið svo í framtíðinni, að það sé hlaðið á sjálfan löggjafann einhverju, sem embættismenn fullyrða, að sé sjálfsagt, og við gefum okkur ekki tíma til að rannsaka. Ég er ekkert að fullyrða um, að þetta frv. sé í sjálfu sér óhæft. En ég segi, að hér hefur enginn kostur gefizt á því að athuga neitt af því, sem þarna kemur fram, og er ósæmilegt að taka það til afgreiðslu nú.