18.04.1973
Neðri deild: 98. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3823 í B-deild Alþingistíðinda. (3465)

214. mál, atvinnuréttindi skipstjórnarmanna

Pétur Sigurðsson:

Herra forseti. Á þeim fáu mínútum, sem mál þetta hefur verið hér til efnislegar umr. í hv. d., hefur komið fram mikil gagnrýni á meðferð þess. Það hefur m.a. komið fram sú gagnrýni, að það hafi ekki verið ræddar einstakar greinar þess eða efnið í heild, heldur hafi málinu verið hent hráu hér inn í deildina, án þess að nokkur viðhlítandi skýring væri gefin á efni þess, þótt hæstv. samgrh. hafi haft nokkra tilburði til þess í ræðu sinni við 2. umr. málsins. Ég tel með hliðsjón af því, sem ég hef áður sagt, að þessu máli ætti að tengja það, sem er orðin hefð hjá hæstv. rn. viðkomandi ráðh., sem þetta frv. leggur fram, að veita atvinnuréttindi til skipstjórnarmanna fyrir ákveðið gjald, 200 kr. gjald, að mér er sagt. Þetta tel ég að þurfi að koma til umr. um leið og þetta frv., þegar við erum að myndast við á síðustu dögum þingsins að samþ. lög, sem fjalla um öll þau skilyrði, sem skipstjórnarmenn verða að hlíta í sinni atvinnu, allt frá 6 metra löngum bátum og upp í stærstu verzlunarskip, að ég nú tali ekki um herskipin, sem hæstv. forsrh. var að lýsa hér áðan í öðru máli, þegar hann sagði, að við værum í stríði, en vildum samt aðeins leggja herkostnaðinn á eina stétt manna, sjómannastéttina.

Í 2. gr. er sú breyt. gerð á gildandi lögum, að frá því er horfið að miða við rúmlestir, þegar stærð skips er ákveðin. Nú er miðað við lágmarksstærð 8 m að lengd. Þetta er út af fyrir sig atriði í þessu frv., sem ég er sammála. Þetta er í samræmi við það, sem ég hef flutt hér á Alþ. ár eftir ár í sambandi við lögskráningu skipshafna, að það verði ekki miðað við rúmlestafjölda, eins og nú er, 12 rúmlestir, heldur verði miðað við þessa lágmarksstærð, sem er skoðunarskyld hjá siglingamálastjóra. Er enginn vafi á því, að þarna er verið á réttri leið.

Síðan má segja, að það eru óbreytt ákvæði frá því, sem nú er, nema eins og hér hefur komið fram, að gerð sé sú breyting á, að þeir, sem ljúka prófi frá 2. bekk í farmannadeild við stýrimannaskólana í Reykjavík eða Vestmannaeyjum, fá um leið sömu réttindi og þeir, sem eru með lokapróf úr fiskimannadeild úr 2. bekk. Samkv. eldra fyrirkomulagi var þessu ekki svona varið. Í grg. segir, með leyfi hæstv. forseta:

„Þau réttindi, sem 2. bekkjarpróf veitir nú samkv. nýjum lögum um stýrimannaskólana, eru skipstjórnarréttindi á fiskiskipum af hvaða stærð sem er og hvar sem er og skipstjórnarréttindi á verzlunarskipum allt að 400 rúmlestir í innan- og utanlandssiglingum, eða sams konar réttindi og fiskimannapróf 2. stigs veitir nú. Enn fremur undirstýrimannsréttindi á verzlunar- og varðskipum, eða sams konar og farmannapróf 2. stigs veitir nú. Þessi réttindi, þ.e. undirstýrimannsréttindi á verzlunarskipum og varðskipum eru tímabundin samkv. gildandi lögum, en samkv. frv. er gert ráð fyrir því, að þau verði varanleg.“

Í grg. með frv. segir áfram orðrétt, með leyfi hæstv. forseta: „Rétt þykir, að skipstjórnarréttindi á hverri tegund skipa verði þó ekki veitt nema eftir ákveðinn siglingatíma á viðkomandi tegund, þannig að ekki verði veitt skipstjórnarréttindi á fiskiskipum við veiðar nema eftir ákveðinn siglingatíma á slíkum skipum og ekki á verzlunar- eða varðskipum nema eftir ákveðinn siglingatíma á þeim. Í frv. þessu eru tekin upp orðin „skipstjórapróf 1., 2. og 3. stigs“ í stað „farmanna- og fiskimannapróf viðkomandi stiga“. Þykir það heppilegra orðalag og lýsa betur þeim lokaréttindum, sem fást að loknu viðkomandi prófi, þ.e. skipstjóraréttindi.“ Hnígur þetta nokkuð í átt að því, sem lagt var til af mér og fyrrv. hæstv. sjútvrh., er ég flutti þáltill., að mig minnir á þinginu 1961-1962, um endurskoðun laga um stýrimannaskólann og það námsefni, sem þar var, þó að yfirvöld hafi ekki enn orðið við því að koma á móti þeim ábendingum, sem þar voru gerðar, en þær voru m.a. þær, að leitazt yrði við að sníða námsefni stýrimannaskólanna þannig, sérstaklega þó þeirra nemenda, sem lærðu undir fiskimannapróf, að þeir fengju með sínu námi í skólunum réttindi, sem þeir gætu notað jafnframt í landi, þegar og ef þeir þyrftu að hverfa frá sínu starfi um borð í skipunum og leita starfa í landi. Það var bent þá á ýmsar leiðir í þessu efni, en þáv. hæstv. menntmrh., sem tók við þessum málum stuttu síðar, hv. þm. Reykv. Gylfi Þ. Gíslason, sá ekki ástæðu til að verða við þessari ályktun Alþ., þótt hann léti tómstundakennara endurskoða lögin á sínum tíma, eins og gert var réttilega, en þó ekki með meiri alúð en kom í ljós á eftir.

Ég minntist nokkuð á það við 2. umr. málsins, að það væri ósamræmi í frv. gagnvart aldursákvæðum þeirra, sem skipstjórn geta hlotið. Í 4. gr. segir, að ef skip fari yfir ákveðna stærð, verði maður að vera búinn að ná ákveðnum aldri til þess að hljóta skipstjórnarréttindi, en í öðrum greinum er sama aldursmark í þessu sambandi, það er talað um lögræði, en í þessu tilviki þarf maðurinn ekki að hafa náð þessum aldri. Þetta tel ég rangt. Auðvitað er sama ábyrgðin, þó að maðurinn sé aðeins með sig og það far, sem hann stjórnar. Ef maður hefur fullnægt skilyrðum um siglingatíma og nám, á ekki að vera að binda þetta við aldur, enda er útilokað samkv. ákvæðum um siglingatíma að ná þessum réttindum fyrr en á ákveðnum aldri, þannig að í sjálfu sér eru þetta óþörf ákvæði á hinum stærri skipum.

Það hefur verið fundið að frv. af þeim, sem leitað hefur verið til og eru í sjálfu sér allt of fáir. Þar á meðal var Siglingamálastofnun ríkisins, ég mun koma að hagsmunaaðilunum síðar. Varasiglingamálastjóri, sem skrifar undir þessa umsögn, Páll Ragnarsson, skipstjóri og einn af okkar bezt menntuðu mönnum í þessari stétt, bæði hér heima og erlendis, gagnrýnir og segir í sinni umsögn, að lögin gangi of skammt í kröfum sínum til þeirra, sem öðlast eiga skipstjóraréttindi á fiskiskipum af hvaða stærð sem er. Með leyfi forseta, segir orðrétt í hans umsögn:

„Ég tel að lögin gangi of skammt í kröfum sínum til þeirra, sem öðlast eiga skipstjóraréttindi á fiskiskipum af hvaða stærð sem er, þar sem þau heimila, að maður, sem lokið hefur skipstjóraprófi 2. stigs, fái fyllstu réttindi, þó að hann hafi e.t.v. átt allan sinn sjómennskuferil á 31 rúmlestar báti.“ `

Það, sem hæstv. samgrh. talaði um og dró fram sem aðalatriði í umsögn hv. umsagnaraðila, Páls Ragnarssonar, var það, sem við bætist, að þar segir orðrétt, með leyfi hæstv. forseta:

„Vera má, að slíkt tilfelli kæmi ekki til greina í praksís, en heimildin er fyrir hendi engu síður. Til bóta væri að binda hinn fyrirskipaða stýrimannstíma við miklu stærri skip en 30 rúmlestir.“

Þetta er auðvitað hárrétt, að það er allt annað að stunda sjómennsku á skipi undir 30 rúmlestum, sem í flestum tilfellum er innanflóa eða á því, sem við köllum grunnmið, eða á hinum stærri fiskiskipum, sem sækja dýpra og lengra, eru ekki í sjónmáli við land, ef menn hafa kannske ekki þekkingu eða reynslu —þá kem ég aftur að undanþágumönnunum, þegar þeir fara að sækja dýpra á hinum stærri skipum, að þá hafa þeir ekki þá þekkingu, sem til þarf til þess að nýta siglingatæki, og þá þekkingu, sem siglingafræðin veitir, til þess að geta náð til lands aftur. Auk þess eru auðvitað mörg önnur atriði, fjölmörg önnur, sem koma til greina í sambandi við þær kröfur, sem gera verður til þeirra, sem skipstjórnarréttindi fá.

Þessi sami aðili segir í sinni umsögn, með leyfi hæstv. forseta, orðrétt:

„Einnig tel ég lögin of væg í kröfunum til skipstjórnarréttinda á verzlunarskipum af öllum stærðum, þar sem þau leyfa, að menn, sem kannske aldrei hafa starfað á verzlunarskipi, megi vera skipstjórar á þeim. Á ég þar við menn, sem alla sína tíð hafa verið á varðskipum, en til skipstjórastarfa á verzlunarskipum þarf þekkingu, sem aðeins verður aflað á þeim.“

Hér á Alþ. í gær voru samþ. breytingar á lögum um tollheimtu og tolleftirlit, og í þeim breytingum voru m.a. gerðar miklar kröfur til þeirra manna, sem skipstjórnarréttindi hafa á verzlunarskipum. það eru gerðar kröfur til þeirra, að þeir þekki ekki aðeins íslenzk lög, sem fjalla um þessi mál, heldur og hvernig eigi að haga sér gagnvart þeim hættum, sem þeir mega búast við, ekki aðeins hér heima, heldur og erlendis, þannig að þeir geti fylgt bæði íslenzkum lögum og öðrum, sem þeir verða að gangast undir í öðrum löndum, sem þeir koma til. Ég þekki ekki til þess, að skipstjórar eða skipstjórnendur á þeim skipum, sem til landhelgisgæzlunnar teljist, — með fullri virðingu fyrir þeim ágætu mönnum, — ef þeir hafa ekki þurft að leita erlendra hafna, að þeir hafi nokkurn tíma þurft á þessari þekkingu að halda. Auk þess hafa þeir ekki hlotið þá löngu reynslu, þá löngu þjálfun, það langa verklega nám, sem krafizt er af þeim mönnum, sem slíkum störfum gegna á verzlunarskipum, varðandi farm, ekki aðeins farm, sem telst til stykkjagóss, ekki farm, sem telst til fljótandi góss, eins og olíu, síldarolíu og bræðsluolíu, heldur og annan farm, sem er margvíslegur. Þetta hefur ekki verið í verkahring yfirmanna hjá landhelgisgæzlunni, enda held ég, að það detti ekki nokkrum manni í hug að ætlast til þess eða fara fram á það, þótt skortur væri á skipstjórnendum á skipum landhelgisgæzlunnar, að maður, þótt hann hefði hin fyllstu réttindi og hefði starfað sem skipstjórnarmaður á verzlunarskipi, geti gengið beint inn í það að verða skipherra hjá landhelgisgæzlunni, það er gjörólíkt starf. Má segja að það sé álíka skylt og að vera samgrh. og vera fjmrh.

Í þessari sömu umsögn segir áfram, með leyfi hæstv. forseta: „Tel ég því að gera ætti kröfur um 12 mánaða yfirstýrimannstíma á verzlunarskipi til allra, sem öðlast vilja skipstjóraréttindi á þeim“. Þetta leggur hann til, einn reyndasti kennari í þessum fögum hérlendis nú hin síðari ár, maður, sem hefur unnið hjá siglingamálastjóra og verið hans hægri hönd í öllum hans málum, ekki aðeins frá því að sú stofnun varð til, Siglingamálastofnunin, heldur og um langan tíma áður, meðan siglingamálastjóri gengdi embætti skipaskoðunarstjóra og það embætti hét embætti skipaskoðunarstjóra.

Þá segir sami aðili í umsögn sinni orðrétt, með leyfi forseta: „21. gr. frv. er mér ekki alveg ljós, að því er varðar fjölda stýrimanna á verzlunarskipum, sem stunda innanlandssiglingar, eru stærri en 200 rúmlestir og flytja ekki farþega og póst. Sýnist mér mega túlka gr. á þann veg, að sigla megi slíku skipi með einum stýrimanni, þótt stærð þess sé allt að 500 rúmlestir“.

Nú væri ákaflega æskilegt að heyra það frá hæstv. samgrh., sem er svo vel heima í frv. þessu og hefur sjálfsagt tekið þátt í samningu þess, að hann útskýri fyrir hv. þm., hvað þessi grein þýði, hvað felist í gr., hvort þetta sé hægt, sem aðstoðarsiglingamálastjóri telur að muni geta gerzt samkv. þessu lagafrv., ef að lögum verður. Vænti ég þess, að hæstv. samgrh. geti svarað því hér á eftir, þegar hann tekur til máls um þetta mál, og auðvitað búast allir fastlega við því.

Það eru fleiri aðilar, sem hafa tjáð sig um málið, þar á meðal L.Í.Ú. Það má vera, að það sé rétt, sem kom fram hjá síðasta ræðumanni, sem talaði við 2. umr. málsins, að það væri engu líkara en þeir hefðu alls ekki lesið málið, en þeir mæla með samþykkt þess. Ég geri ráð fyrir því, að samtök útvegsmanna sjái, að hér er auðvitað ekkert nýtt á ferðinni, allra sízt nokkuð, sem geti hamlað gegn þeirri óheillaþróun, sem hefur átt sér stað á undanförnum árum, og ég skal viðurkenna fúslega, að það er ekki aðeins í tíð núv. hæstv. samgrh., heldur og í tíð fyrrv. samgrh., sem þessi óheillaþróun hefur átt sér stað, undanþáguþróunin. En því er verr og miður, að þessi sómi, sverð og skjöldur íslenzkrar verkalýðshreyfingar hér áður fyrr, hæstv. samgrh., skuli ekki sjá sóma sinn í því eftir ítrekaðar óskir stéttarfélaga sjómanna, bæði yfir- og undirmanna, um það, að einhvern veginn verði spornað við þessum ósóma, þegar hann í fyrsta skipti í sínu embætti leggur fram frv. um atvinnuréttindi skipstjórnarmanna, skuli hann ekki setja einhver ákvæði inn í þetta frv. m.a. þess efnis að gera þá kröfu til þeirra, sem undanþáguna fá í ráðuneyti hans fyrir 200 kr., að þeir verði a.m.k. að skila bæði augnvottorðum, heyrnarvottorðum og kannske að þeir komi og láti sjá sig, þannig að þeir, sem skrifa undir atvinnuréttindi þeirra, þ.e. ráðuneytisatvinnuréttindi skipstjórnarmanna, geti gengið úr skugga um, að þeir séu ekki stórbæklaðir eða vanti á þá kannske útlimi eða eitthvað þess háttar, en að þeir fái þetta ekki afgreitt í gegnum síma og geti bara borgað sínar 200 kr. fyrir atvinnuréttindi með því að senda ávísun í pósti. En þetta er svo sem ekkert gamanmál, að draga fram slíka hluti, en samkv. þeirri hefð, sem á hefur komizt í þessu hv. ráðuneyti, má ætla, að þróunin verði þessi í framtíðinni.

Hæstv. ráðherra er mjög óspar á yfirlýsingar. Hann gaf yfirlýsingu áðan um þetta atriði, og ég geri ráð fyrir því, að hann eigi eftir að gefa fleiri yfirlýsingar, áður en við ljúkum þessu þingi nú hér á eftir, eins og ætlazt er til væntanlega, að hann gefi þá yfirlýsingu, að hann ætli að ganga í það í eitt skipti fyrir öll að ráða bót á þessu máli. Að vísu tók hann fram, að hann ætli að gera það í samráði við viðkomandi hagsmunaaðila, en því ekki að gera það um leið og þetta frv. er lögfest. Hvað liggur á því að samþykkja hér ný lög um atvinnuréttindi skipstjórnarmanna, en taka ekki inn nein ákvæði um atvinnuréttindi þeirra skipstjórnarmanna, sem hljóta þau með því að borga 200 kr. upp í ráðuneyti hæstv. ráðherra, þegar búið er að benda honum á, að það er ekkert, sem knýr á um það, að þetta frv. verði samþ. nú, ekki nokkur skapaður hlutur? Það er alveg

jafnauðvelt að veita þessum mönnum, sem ljúka sínu námi í vor úr þessum skóla, undanþágu, og hæstv. ráðherra gæti þá komið til móts við þá í þessum málum, ef frv. verður ekki samþ., og gefið þeim eftir þessar 200 kr., þannig að það verði engin móðgun í hans garð, þótt þeir þurfi að fá undanþágu til næsta þings, þangað til búið er að ganga frá frv. í þeirri æskilegustu mynd, sem það þarf að vera.

Umsögn er hér frá Farmanna- og fiskimannasambandi Íslands og er undirrituð af framkvæmdastjóra þess, Ingólfi Stefánssyni. Ég vil taka það fram, að það hefur þegar heyrzt frá aðildarfélögum þessa sambands, einstökum félögum skipstjórnarmanna, bæði stýrimanna og skipstjóra, að þeir séu sáróánægðir með, að inn í þetta nýja frv. séu ekki teknar ákveðnar leiðréttingar samkv. ábendingum, sem þeir hafa árum saman beint til viðkomandi yfirvalda um breytingar á þessum lögum, og hef ég minnzt á nokkrar þeirra. En þær hafa ekki komið fram, vegna þess að þessir aðilar hafa ekki fengið neitt tækifæri til þess að tjá sig um málið. Tíminn hefur verið svo skammur, eftir að ákveðið var að húrra frv. í gegn, eins og einn orðaði það í umr. í gærkvöld, að þeir hafa ekki haft tækifæri til þess að tjá sig um málið, enda datt engum lifandi manni í hug, að það ætti að afgreiða málið á þennan hátt, heldur að það yrði sýnt nú á þessu þingi, en yrði svo afgreitt í haust, þá eftir rækilega skoðun og eftir að ábendingar viðkomandi aðila hefðu a.m.k. verið athugaðar og væntanlega margar hverjar teknar til greina. — Í umsögn Farmanna- og fiskimannasambands Íslands, sem er jafnrétthár lagalegur aðili í launþegamálum og A.S.Í., sem hæstv. samgrh. gengdi forsetastörfum fyrir um langa hríð af mikilli prýði og snilld, segir m.a., með leyfi hæstv. forseta: „Skóla skipstjórnarmanna þarf að færa mikið út, kennsla í að sigla staða á milli verður aðeins hluti af því námi, sem þarf til atvinnuréttinda. Ekki hefur verið hjá því komizt að taka upp fasta kennslu í meðferð afla, veiðarfæra og í verkstjórn, auk þess þurfa formenn kennslu í meðferð og frágangi á farmi“ - og kemur síðan í gæsalöppum orð, sem hljóðar svo: „skipting“. Það er í gæsalöppum, og ég vænti þess, að hæstv. ráðherra, sem leggur frv. fram, geti útskýrt fyrir þm. á eftir, hvað þetta orð þýðir, en ég skil það ekki og hef aldrei heyrt það áður í sambandi við neitt, sem viðkemur skipstjórnarmálum.

Þetta er auðvitað hárrétt, sem þarna kemur fram, og þetta er einmitt það, sem bent var á í þeirri ályktun, sem Alþ. samþykkti á sínum tíma og ég flutti ásamt fyrrv. hæstv. sjútvrh., Eggert G. Þorsteinssyni, um endurskoðun laga um stýrimannaskóla. Þar var tekið upp allt það, sem nú er tekið í umsögn Farmannasambandsins, að það þyrfti að taka upp fasta kennslu í meðferð afla og veiðarfæra og í verkstjórn og líka í því að ganga frá og sjá um farm í skipi.

Við vorum líka með þá till., að það ætti að vera kennsla í hagræðingarmálum, en eins og allir vita, sem til þekkja, er auðvitað verkstjórn stór hluti af því námi. Þetta hefur ekki enn verið gert og var ekki gert í þeirri endurskoðun, sem gerð var á lögunum um stýrimannaskóla hér á síðasta þingi, því miður, vil ég leyfa mér að segja.

Áfram heldur umsögn Farmanna- og fiskimannasambands Íslands, með leyfi hæstv. forseta: „Til athugunar væri, að viðbótarkennsla færi fram á námskeiðum, áður en viðkomandi maður tekur við 1. stýrimanns- eða skipstjórnarstöðu“. Þetta er hárrétt mælt hjá framkvæmdastjóra Farmannasambandsins, og ætti að gera meira að því að hafa lifandi kennslu fyrir þessa menn, þegar þeir breyta um stöðu, hækka í stöðu eða fara kannske á milli skipa. En það kemur þá annað inn í þetta, og kemur þá aftur að því, sem ég ræddi um hér áðan í sambandi við undanþágurnar. Ég leyfði mér við síðustu umr. í seinni d. í máli, sem fjallaði um vélstjóranám og kom frá Ed., að benda á, að það er rangt, sem þar var samþ. í d., að binda efni þess frv. við ákveðinn tíma á árinu. Þetta frv. fjallaði um, að efna ætti til námskeiða víðs vegar um landið fyrir þá menn, sem vélstjórn stunda, þannig að það gæti komið nokkuð á móti þeim miklu vandræðum, sem eru í sambandi við að fá vélstjóramenntaða menn á okkar fiskiskipaflota. Ég tók heils hugar undir þetta frv., vegna þess að ég tel, að þar hafi verið stigið spor í rétta átt til þess að veita frumkennslu, bráðabirgðakennslu, þeim mönnum, sem við þessi störf fást, þannig að a.m.k. bæði búnaðar skipsins og öryggis skipshafnar væri gætt, en það hlýtur að vera það fyrsta, sem þessum mönnum er kennt. Eitthvað á þessa leið hefði mátt vera í þessu frv. gagnvart skipstjórnarmönnunum, einhver ákvæði um það, að fyrsta stigs kennsla gæti farið fram víðs vegar um land, til þess að þeir menn, sem undanþágur fá til þess að gegna yfirmannsstöðum á fiskiskipaflotanum, gætu hlotið grundvallarkennslu, frumkennslu í sínu fagi, þannig að þeir væru færir til þess að fara með ekki aðeins dýrmæt atvinnutæki, heldur og þau mannslif, sem á skipinu eru, og gæta öryggis bæði þeirra, sem um borð eru, og farsins sjálfs um leið. En á þetta hefur hæstv. samgrh. ekki viljað fallast.

Farmannasambandið gerir fleiri athugasemdir við frv. þetta. M.a. gerir það athugasemd við 4. gr. frv., en í þeirri grein eru ákvæði um, hverju þurfi að skila til þess að geta orðið skipstjóri eða stýrimaður í innanlandssiglingum á íslenzku skipi 6—30 rúmlestir að stærð. Nú er eitt ósamræmi í sambandi við 4. gr., strax í 2. línu þessarar gr. Þarna er talað um 6–30 rúmlestir, en í 2. gr. er talað um 6 metra langt skip og tekið fram í grg., að það sé verið að hverfa frá rúmlestatölunni. Þá allt í einu skýtur skollinn þarna inn þessum óskapnaði að tala um 6 rúmlestir. Ég veit ekki, hvaðan þetta kemur. Þetta hefur líklega verið fundið upp í ráðuneyti hæstv. ráðherra, þessi 6 rúmlesta tala. Ég minnist ekki að hafa séð hana áður. En gott væri að fá líka skýringu hjá hæstv, ráðherra á því, af hverju þessi tala komi allt í einu inn, sem stangast svona berlega á við það, sem segir í 2. gr. frv., en þar segir í staflið a, með leyfi hæstv. forseta: „Skip merkir í

lögum þessum hvert það far, sem er 6 metra langt eða meira og skráð er á skipaskrár, án tillits til þess, hvort það gengur fyrir seglum eða vél eða hvoru tveggja“. Og svo í 4. gr., sem ég gat um áðan, er verið að ræða um það minnsta far, sem skipstjórnarmenntunar er krafizt á, en þá er allt í einu horfið frá þessari 6 metra lengdar stærð og farið upp í 6 rúmlestir. Gott væri, ef hæstv. ráðherra vildi gefa nokkra skýringu á, af hverju þetta sé svona. Það kemur fram í umsögn frá Farmanna- og fiskimannasambandinu, að þeir telji, að það, sem krafizt sé í 4. gr., sé helzt til of mikið til afgreiðslu aðeins frá siglingafróðum manni, þarna þyrfti að vera um kennslu að ræða.

Er þá komið að því, sem ég var að segja áðan í sambandi við undanþágufarganið á fiskiskipunum, að auðvitað hefði átt að samræma efni þessarar gr. því, sem ég var að tala um í sambandi við nauðsynlega kennslu þeirra manna, sem fá undanþágu til þess að gegna yfirmannsstörfum, ég tala ekki um skipstjórastörfum á okkar fiskiskipaflota. Ég veit um marga ágæta menn siglingafróða, sem . hafa kennt öðrum mönnum það, sem krafizt er í þessari grein, þannig að þeir hafa fengið það, sem þarna er krafizt, og hafa gegnt sínu starfi með mikilli prýði. Það er rétt að taka fram, að það er ekkert einhlítt í sambandi við slys eða meðferð skipa, það geta hent slys, bæði áhöfn og skip, þótt menn séu búnir að ljúka æðstu gráðu prófum úr stýrimannaskólum. Þeir eru auðvitað haldnir sínum mannlega breyskleika eins og aðrir, og þeim getur orðið á eins og öðrum. En til þess erum við nú að gera kröfur á þessu sviði og öðrum í sambandi við þekkingu að fyrirbyggja ekki aðeins slys, sem í mörgum tilfellum er kannske ekki aðalatriðið, þótt ég telji, að það eigi að vera aðalatriðið, öryggi þeirra, sem vinna, heldur er það til þessa, að þau atvinnutæki, sem viðkomandi aðilar starfa á, nýtist sem bezt og sem hagkvæmast og verði til gagns ekki aðeins þeim sjálfum, heldur og þeim, sem þau eiga, og þeim byggðarlögum, sem þurfa á þeim að halda til þess að geta haldizt í byggð

Ég hefði sem sagt talið, að það hefði átt að breyta þessari 4. gr. frv. og samræma 4. gr. þeim kröfum, sem gera verður til þeirra aðila, sem undanþágur hljóta til skipstjórnar á okkar fiskiskipum. Ég tel, að þetta hefði átt að koma nú inn í þetta frv., og því óskaði ég eftir því við 1. umr. málsins hér í d., að málinu yrði frestað. Á það var ekki hlustað og ekki heldur við 2. umr., þótt margsinnis væri bent á, að það liggur ekki á því að afgreiða málið nú. Það er engin goðgá fyrir hæstv. ráðh. að veita undanþágur þeim mönnum, sem ljúka. prófi úr 2. bekk bæði farmannadeildar og fiskimannadeildar í stýrimannaskólanum í vor, eins og hann og hans rn. hafa gefið tugum, ef ekki hundruðum manna til þessa í hans ráðherratíð. Og til þess að hann kæmi ekki illa fram við þá aðila, sem þá undanþágu þyrftu að hljóta, mætti jafnvel gefa þeim eftir þær 200 kr., sem kostar þá nú að hljóta atvinnuréttindi skipstjórnarmanna, sem við erum hér á síðustu mínútu að burðast við að samþykkja heilan lagabálk um, sem er ekki nema pappírsgagnið eitt.