18.04.1973
Neðri deild: 98. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3831 í B-deild Alþingistíðinda. (3466)

214. mál, atvinnuréttindi skipstjórnarmanna

Félmrh. (Hannibal Valdimarsson):

Herra forseti. Í því fundarhléi, sem hér var nú gert, hefur það orðið að samkomulagi milli mín og hv. 10. þm. Reykv., Péturs Sigurðssonar, og hv. 4. þm. Austf., Sverris Hermannssonar, að niður falli frekari umr. um dagskrármálið, og erum við sammála um, að það sé æskilegt, að samræmi verði á milli lagaákvæða um atvinnuréttindi skipstjórnarmanna og ákvæða um kennslu í stýrimannaskólanum. En það spannar ekki yfir þau vandamál, sem hér er um að ræða varðandi réttindi og skyldur skipstjórnarmanna, og hef ég heitið því að setja þegar að þingi loknu í gang endurskoðun laga um skipstjórnarréttindi með það fyrir augum að leysa þann mikla undanþáguvanda, sem við höfum staðið frammi fyrir, og skal starfað að því í fullu samráði við samtök sjómanna og farmanna. Ég vona, að þessi yfirlýsing mín sé í samræmi við það, sem við höfum komið okkur saman um, og málið gangi þannig eðlilegan gang til fullrar afgreiðslu.