18.04.1973
Sameinað þing: 77. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3834 í B-deild Alþingistíðinda. (3472)

Kosning tveggja endurskoðenda reikninga Útvegsbanka Íslands

Gunnar Thoroddsen:

Herra forseti. Ég veit, að ég mæli fyrir hönd allra alþm., er ég þakka hæstv. forseta Sþ. góðar óskir okkur til handa og votta honum um leið þakkir fyrir góða fundarstjórn og ánægjulega samvinnu. Ég vil óska hæstv. forseta gleðilegs sumars og bið þingheim að taka undir orð mín og óskir með því að risa úr sætum. —[Þm. risu úr sætum.]