09.11.1972
Sameinað þing: 14. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 647 í B-deild Alþingistíðinda. (367)
52. mál, kavíarverksmiðja á Norðausturlandi
Stefán Valgeirsson:
Herra forseti. Aðeins örfá orð vegna þess, að síðasti ræðumaður kom inn á það, að iðnþróunarsjóðurinn ætti að lána einmitt í svona verksmiðjur. Þeir á Dalvík hafa sótt um lán þangað og fengið synjun, og í bréfi því stendur, að að svo komnu máli muni þeir ekki lána í slíkar verksmiðjur. Þeir hafa hafnað því, a.m.k. fyrst um sinn. Mér skilst, að það, sem er á bak við, sé, að verið er að athuga um markaðshorfur og ef eitthvað kemur jákvætt út úr því, þá endurskoða þeir afstöðu sína, en fyrr ekki. Það er alveg rétt, sem kom fram hjá síðasta ræðumanni, að þetta er auðvitað þeirra mál. En þeir hafa tekið þessa afstöðu, og það er einmitt vegna þess, að verið er að gera átak í þessum málum og reyna að kynna framleiðslu okkar á erlendum mörkuðum meira en áður hefur verið.
Ég held, að það hljóti að verða markmiðið að reyna að fullvinna hrognin, reyna að afla markaða, en ekki að senda hrognin út söltuð, eins og við höfum gert. Ef það er svo, sem ég vona, að reynslan eigi eftir að sýna, að hægt sé að reka með góðum árangri verksmiðjur af þeirri stærð, sem ég gat um áðan, þá finnst mér það vera mjög eðlilegt, að það sé á nokkrum stöðum, ef það kemur ekki í veg fyrir, að þessi rekstur verði neikvæður með því að vera of lítill. En það er alveg rétt, sem hv. 2. þm. Vesturl. sagði áðan, að slík verksmiðja mun kosta einhvers staðar á milli 10 og 20 millj. Þá er bara spurningin: Hvað þarf verksmiðjan að vera stór til þess að hún beri sig? Ég held, að þetta væri stórt spor og það ætti að reyna, hvernig Dalvíkingunum gengur. Ég vona, að þeir geti brátt haldið áfram sínum byggingum, þannig að það verði hægt að taka þessa verksmiðju í notkun og hún geti hafið framleiðslu sina á næsta hausti. Auðvitað á ekki að setja upp margar verksmiðjur, fyrr en komin er reynsla á þessa, sem nú er í undirbúningi, því er ég sammála. En hins vegar á að kanna þetta og reyna að afla markaða fyrir bæði grásleppuhrognin og ýmiss konar sjávarafla og fullvinna hann, eins og hér hefur komið fram.