09.11.1972
Sameinað þing: 14. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 649 í B-deild Alþingistíðinda. (372)
55. mál, Hafrannsóknastofnunin
Flm. (Jón Árnason):
Herra forseti. Á þskj. 58 hef ég ásamt hv. 3. þm. Sunnl. og hv. 4. þm. Vesturl. leyft mér að flytja till. til þál. um bætta aðstöðu fyrir Hafrannsóknastofnunina. Tillgr. orðast svo, með leyfi forseta:
„Alþingi ályktar að heimila ríkisstj. að láta smíða í íslenzkum skipasmíðastöðvum tvo vélbáta af stærðinni 50–80 rúmlestir til afnota fyrir Hafrannsóknastofnunina.“
Það er öllum löngu ljóst, að þjóð, sem á lífsafkomu sína jafnmikið undir hagnýtingu sjávarafla og íslenzka þjóðin á, hlýtur að vera mikil nauðsyn að efla hvers konar rannsóknaraðstöðu, sem lýtur að fiskileit og fiskirannsóknum. Aðstaða Hafrannsóknastofnunarinnar hefur sem betur fer verið stórbætt á undanförnum árum. Stofnunin hefur nú, sem kunnugt er, tvö stór og góð rannsóknaskip til starfsemi sinnar. Annað er m/s Bjarni Sæmundsson, sem er 777 rúmlestir að stærð. Hann var byggður í Þýzkalandi og kom til landsins á árinu 1970. Hitt skipið er Árni Friðriksson, sem er 449 rúmlestir að stærð og var byggður í Englandi, en kom til landsins á árinu 1967.
Svo sem kunnugt er, var aðdragandi þess, að Árni Friðriksson var byggður, sá, að íslenzkir síldveiðiskipstjórar og síldveiðisjómenn skoruðu á stjórnvöld að hefjast handa um byggingu skipsins, en hétu jafnframt fjárhagslegum stuðningi við málið, sem var í því fólgið, að sérstakt gjald var lagt á útfluttar síldarafurðir, sem verja skyldi til þess að standa undir byggingarkostnaði skipsins. Engum var það ljósara en sjómönnunum sjálfum, hvers virði það gat verið fyrir veiðarnar að hafa til aðstoðar fyrir síldveiðiflotann fullkomið skip, sem stjórnað var af færum fiskifræðingum, er gáfu sjómönnunum ómetanlegar upplýsingar um allt, er laut að útliti um aflamagn og staðsetningu síldarinnar á hverjum tíma. Þá hefur Hafrannsóknastofnunin haft til ráðstöfunar nú um nokkur ár mótorskipið Hafþór, sem er 250 rúmlestir að stærð og er eitt þeirra togskipa, sem um 1959 voru byggð fyrir íslendinga í Austur-Þýzkalandi. Með þessum skipakosti má segja, að á viðunandi hátt sé séð fyrir fiskileit og fiskirannsóknum á djúpmiðum, a.m.k. miðað við þann mannafla, sem Hafrannsóknastofnunin hefur á að skipa. Hitt vandamálið, að hafa hentugan skipakost til að stunda fiskileit og fiskirannsóknir á grunnmiðum, er hins vegar enn þá óleyst, og það er sú hlið málsins, sem þessari þáltill. er ætlað að leysa.
Segja má, að það sé ótrúlega stutt síðan Íslendingar fóru fyrst að hagnýta verðmikinn afla, sem veiðist á grunnmiðum við strendur landsins, svo sem rækju, humar og nú síðast hörpudisk. Orsök þessa er fyrst og fremst sú, að hér hafa legið ókannaðir möguleikar um aldaraðir, og Íslendingar hafa lengst af lagt meira upp úr miklu fiskmagni, en verðmæti, og stundum sézt hrapallega yfir í þessum efnum. Er gleggsta dæmið hér um í sambandi við smásíldarveiðarnar, sem áttu sér stað á árunum 1963–1985 við Suðvesturlandið með þeim afleiðingum, að Suðvesturlandssíldarstofninum var því sem næst gereytt.
Til þess að gera sér nokkra grein fyrir þeim verðmætum, sem um er að ræða varðandi þá þrjá fiskistofna, sem ég gat um áðan, hef ég aflað mér þeirra upplýsinga um, hvert aflamagnið og útflutningsverðmætið á þeim var á s.l. ári. Af rækju var útflutningsmagnið 1109 smálestir og útflutningsverðmæti 283 millj. kr., af humar voru fluttar út 1119 smálestir fyrir 435 millj. kr. og af hörpudisk 362 smálestir fyrir um 90 millj. kr. Um hörpudisksveiðarnar má segja, að þær séu á algeru byrjunarstigi. Þær veiðar hafa aðeins verið stundaðar í 3 ár, og þar er um að ræða mikið rannsóknarefni. Gildir það jafnt um upplýsingar um það, hvar möguleikar séu fyrir hendi um arðbæran afla, og eins um að rannsaka, hvað þessi fiskstofn þoli að verða veiddur, án þess að um rányrkju sé að ræða.
Veiði á hörpudiski var hafin fyrir nokkrum árum af útgerðarfyrirtæki Einars Guðfinnssonar í Bolungarvík, og var sú veiði stunduð við Ísafjarðardjúpi. En nú s.l. ár, eins og ég gat um áðan, hafa veiðarnar hins vegar aðallega verið stundaðar í Breiðafirði. Þar eru mikil hörpudisksmið, og hafa nú um þriggja ára skeið verið veiddar rúmlega 10 þús. smálestir í Breiðafirði. Árið 1970 voru veiddar 2300 smálestir, 1971 3000 smálestir og nú á yfirstandandi ári var búið að veiða rúmlega 5000 smálestir, þegar veiði var stöðvuð um s.l. mánaðamót.
Af því, sem ég hef nú sagt, er augljóst mál, að við strendur Íslands liggja enn ónumin fiskimið og verðmæti, sem íslenzka þjóðin á að hagnýta á skynsamlegan hátt. Með tilliti til þessa og þeirrar staðreyndar, að íslenzka þjóðin muni enn um langa framtíð eiga lífsafkomu sína öðru fremur undir sjávarafla og hagnýtingu hans, ber þjóðinni skylda til að skapa Hafrannsóknastofnun ríkisins nauðsynlega starfsaðstöðu, svo að hún geti innt af hendi þær rannsóknir, sem hafa grundvallarþýðingu fyrir framtíð íslenzks sjávarátvegs. Með það fyrir augum er þessi þáltill. um bætta aðstöðu fyrir Hafrannsóknastofnunina flutt. Ég vil leyfa mér að vona, að hv. alþm. séu mér sammála um þetta nauðsynjamál og tryggi samþykkt till.
Ég vil svo, herra forseti, leyfa mér að leggja til, að till. verði að lokinni þessari umr., vísað til síðari umr. og hv. fjvn.