13.11.1972
Efri deild: 12. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 656 í B-deild Alþingistíðinda. (377)

73. mál, búfjárræktarlög

Fjmrh. (Halldór E. Sigurðsson):

Herra forseti. Frv. á þskj. 77 er frv. til nýrra búfjárræktarlaga. Búfjárræktarlög þau, sem nú eru í gildi, eru frá árinu 1965, en Búnaðarþing 1971 kaus þriggja manna nefnd til þess að endurskoða þessi lög. Í þeirri n. voru Egill Bjarnason ráðunautur á Sauðárkróki, Jón Helgason bóndi á Seglbúðum og Magnús Sigurðsson bóndi á Gilsbakka. Þetta frv., sem þeir síðar sömdu, þessir nm., var til meðferðar á Búnaðarþingi á s.l. vetri og kom þaðan svo sem það er nú flutt hér, því að á því hafa ekki verið gerðar aðrar breytingar í landbrn. heldur en smávegis orðalagsbreytingar.

Megintilgangur með þessu frv. er að marka ákveðna stefnu í búfjárrækt, stefnu, sem á að vera heildarstefna fyrir landið í heild og miðist við að taka þá tækni, þakkingu og þá bættu aðstöðu, sem nú er á sviði búfjárræktar, í þjónustu búfjárræktar í landinu í heild og framkvæma hana samkv. þessu lagafrv., sem hér liggur fyrir.

Þetta lagafrv. skiptist í 7 kafla, en meginkaflarnir eru 4. I. kaflinn fjallar um félagsstjórn og félagskerfi og leiðbeiningaþjónustu. 1. gr. kveður svo á um það, að Búnaðarfélag íslands hafi fyrir hönd landbrn. yfirumsjón með búfjárrækt í landinu, og eru það nýmæli í lögum, að þannig sé ákveðið.

Skv. 2. gr. er öllum búnaðarsamböndum skylt að hafa búfjárræktarsamþykkt, og lagaákvæði um sérsambönd eru þannig, að þau falla inn í heildarkerfi búnaðarsambandanna. Búnaðarfélag Íslands á að annast margvíslega fyrirgreiðslu um félagsmálastarf búnaðarsambandanna, m.a. með því að gera fyrirmyndir að samþykktum þeim, sem áður er getið. Í frv. er mælt fyrir um ráðunautaþjónustu Búnaðarfélags Íslands, en hefur ekki verið lögákveðið áður. Jafnframt er mælt fyrir um menntunarskilyrði þeirra, sem ráðunautar eiga að verða. Frv. gerir ráð fyrir því, að ferðakostnaður ráðunauta verði greiddur í sama hlutfalli og laun þeirra.

Meginákvæðið í II. kafla frv., sem er um nautgriparækt, er einn meginþátturinn í lagabreytingu þessari fyrir utan stjórnunina, sem ég hef hér gert grein fyrir. Frv. gerir ráð fyrir því, að í lög sé sett, að Búnaðarfélag Íslands reki nautastöð til framleiðslu á djúpfrystu sæði. Þetta ákvæði hefur ekki áður verið í lögum. Þá gerir frv. ráð fyrir því, að á vegum Búnaðarfélags Íslands verði skipuð kynbótanefnd, sem hafi sem nánast samband við alla landshluta, þannig að stefnan í ræktunarmálum verði samræmd um land allt. Núgildandi ákvæði um kynbótanefndir í hverjum hreppi falla nú niður, en þau verkefni, sem þar hafa verið unnin, fara nú til búnaðarsambandanna og nautgripasambandanna.

Í III. kafla þessa frv. er gert ráð fyrir nokkrum breytingum í sambandi við sauðfjárrækt, en það er fylgt þeirri meginstefnu, sem ég hef hér lýst, að gera stefnuna samræmda um land allt og að hvetja til þess með sýningum og auknum verðlaunum að ná þessari stefnu fram.

IV. kafli frv. er svo um hrossaræktina. Þar er gert ráð fyrir því að fella niður kynbótanefndir, sem áður störfuðu í hverjum hreppi, en hins vegar er nú gert ráð fyrir, að saman fari samstarf Búnaðarfélags Íslands og áhugamanna um hrossarækt, þ.e. Landssambands hestamanna, sem eigi tvo fulltrúa í sýningarnefnd þeirri, sem gert er ráð fyrir að setja upp samkv. þessu frv. Það er gert ráð fyrir því að auka verðlaun vegna sýningar á hrossum, og fleiri nýmæli eru í sambandi við hrossaræktina og hún gerð þarna meiri búgrein en áður hefur verið, meira virði í búskap landsmanna en hún hefur verið metin til þessa. Þá er og lagt verulega í það að koma upp ræktun hrossa og hafa stjórn á útflutningi og hestasölu.

Fleiri atriði í þessu frv. eru ekki stórvægileg, og það er talið, að heildarkostnaður aukist við þetta frv. um 3–4 millj. kr., svo að ekki getur þar verið um stóra fjárhæð að ræða, þó að það færi eitthvað fram úr þessu. En meginatriði frv. er það, sem ég gat um í upphafi, að marka heildarstefnu um land allt og hafa meiri festu í búfjárræktarmálum en áður hefur verið.

Ég legg svo til herra forseti, að að lokinni þessari umr. verði frv. vísað til 2. umr. og hv. landbn.