14.11.1972
Sameinað þing: 15. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 679 í B-deild Alþingistíðinda. (398)
51. mál, samgöngur milli Akraness og Reykjavíkur
Fyrirspyrjandi (Benedikt Gröndal):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir svör hans við fsp. mínum þrem.
Það kemur í ljós af svari hans við fyrsta lið, að mig hefur grunað rétt, að svo verði litið á, að Alþ. hafi nú þegar samþykkt þessa skýrslu í heild, af því að það samþykkti hraðbraut fyrir botn Hvalfjarðar í vegáætlun s. I. vor. Ég vil þó benda á, að ég er ekki viss um hvort alþm. hafi almennt gert sér ljóst, að um leið og þeir samþykktu þennan veg fyrir Hvalfjörð, væru þeir að útiloka alla aðra möguleika, sem kunnir hafa verið og ræddir, þ. á m. að útiloka þjónustu, sem hefur verið fyrir hendi í áratugi, og á ég þar við bílaferju milli Reykjavíkur og Akraness. Að sjálfsögðu er ekki við því að búast, að ég eða aðrir greiði atkv. á móti, þegar möguleikar skapast til að leggja varanlegan veg fyrir Hvalfjörð og stytta þá leið. En það er ekki eðlileg afgreiðsla á svo stóru máli að telja samþykkt þessarar vegalagningar nægilega til þess, að allir aðrir möguleikar, sem við sjáum nú fyrst athugaða og rannsakaða í skýrslunni sem heild, hafi þar með verið útilokaðir. Þess vegna tel ég, að a.m.k. sumir þeirra möguleika hljóti að koma til frekari athugunar.
Ég get skilið, að hæstv. ráðh. hafi ekki gert upp við sig enn þá, hvort hann ætlar að fara eftir till. Hvalfjarðarnefndar um frekari rannsókn á fólksflutningum milli Reykjavíkur og Akraness. Ég vil vona, að hann fylgi þó þeirri till. og láti slíka athugun fara fram hið fyrsta. Er ekki óeðlilegt, eins og hann stakk upp á, að hann hafi um það samstarf við nefndir Alþingis. Hins vegar fannst mér hæstv. ráðh. taka heldur lítið undir það, sem viðkvæmast er gagnvart stóru bæjarfélagi, þ.e. Akranesi, að fella ekki niður bílaferju milli höfuðstaðarins og Akraness. Ráðh. bendir á, að í skýrslu sérfræðinganna sé sýnt fram á, að rekstur slíkrar bílaferju sé ekki arðbært fyrirtæki. En hve margir flóabátar á Íslandi eru arðbærir? Eru þeir ekki nauðsynlegir samt? Þetta er sá flóabátur, sem flytur fleiri farþega en allir hinir til samtals. Og í öðru lagi: Er ríkisskip arðbært fyrirtæki? Ef það er ætlun hæstv. samgrh. að taka bílaferju af þessari leið á þeim grundvelli, að hún sé ekki fullkomlega arðbær, þá finnst mér, að hann mætti stöðva býsna mörg önnur skip, sem sigla meðfram ströndum landsins.
Ég vil benda hæstv. ráðh, á, að þetta er alls ekki einfalt mál. Meginröksemdin gegn því að reka bílaferju milli Akraness og Reykjavíkur er sú, að vegurinn verði svo góður, að það muni muna litlu, hvort ekið er fyrir fjörðinn eða siglt yfir hann. En eftir þeim framkvæmdahraða, sem er á vegáætlun samþykktri s.l. vor, er varla við því að búast, að slíkur vegur verði kominn til Akraness fyrr en eftir 12 ár, og 12 ár er langur tími, sem við getum ekki gengið fram hjá eins og það væru 12 dagar.