14.11.1972
Sameinað þing: 15. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 686 í B-deild Alþingistíðinda. (403)

274. mál, orkumál Norðurlands

Fyrirspyrjandi (Ellert B. Schram):

Herra forseti. Ég hef á þskj. 61 leyft mér að bera fram svo hljóðandi fsp. til hæstv. menntmrh.:

„Húsfriðunarnefnd hefur lagt til við menntmrh., að húsaröðin við austanverða Lækjargötu milli Bankastrætis og Amtmannsstigs svonefnd Bernhöftstorfa, verði friðlýst samkvæmt þjóðminjalögum. Hver er afstaða ráðh. til þessarar till. nefndarinnar?“

Það er kunnara en frá þurfi að segja, að allmiklar deilur hafa risið á síðustu missirum um tilveru þessarar Bernhöftstorfu, sem stendur við Bankastræti, Skólastræti og Amtmannsstíg í Reykjavík. Hús þessi standa á lóð ríkissjóðs, og það• mun hafa verið í tilefni af 50 ára afmæli stjórnarráðs á Íslandi 1954, sem stjórnvöld tóku þá ákvörðun að reisa stjórnarráðsbyggingu á þessari lóð. Sú bygging hefði það í för með sér, að Bernhöftstorfuna svonefndu þyrfti að rífa eða fjarlægja. Sú ákvörðun hefur kallað á mótmæli þeirra, sem telja, að með þeim ráðstöfunum yrði fórnað sögulegum minjum og yfirbragði þessa borgarhverfis, götumyndinni austan Lækjargötu, yrði spillt til mikils tjóns. Í því sambandi er bent á, að húsfriðunarnefnd, sem einróma hefur mælt með friðun og varðveizlu þessara húsa, hefur talið þessi hús vera mikil menningarverðmæti, sem undir engum kringumstæðum megi skemma, því að þarna sé einstakt tækifæri til að varðveita svolítinn hluta af yfirbragði Reykjavíkur um miðja 19. öld, eins og segir í áliti nefndarinnar.

Jafnframt auknum skilningi á umhverfisvandamálum mannkynsins og umræðum um mengun og náttúruvernd hefur þeirri stefnu mjög vaxið ásmegin, sem leggur áherzlu á varðveizlu sögulegra bygginga, sérstæðra bargarhverfa og manneskjulegs umhverfis. Það má e.t.v. heimfæra þessi sjónarmið upp á þá vistfræðilegu pólitík, sem við fengum lexíu um hér í síðustu viku. Íslendingar hafa löngum borið virðingu fyrir minjagripum og heimildum frá frumbýlisárum þjóðarinnar, en mínna birt um varðveizlu muna eða verndun umhverfis, sem skoðazt geta sem heimildir um sögu og menningu síðari tíma. Smám saman hefur þó skilningur vaknað fyrir því, að þróunarsaga í lifnaðarháttum, menningarstraumum og umhverfismálum er ekki síður merkileg, þótt hún sé ekki frá landnámstíð. Viða má fínna slíkar heimíldir og söguminjar, enda þótt stundum hafi tillitssemi og varðveizlusjónarmið mátt sín lítils í samkeppninni við kappsfulla uppbyggingu nútíma þjóðfélags.

Húsin og umhverfið austast í kvos gamla miðbæjarins í Reykjavík bera sina sögu. Þar er að finna afar merkilega heimild um byggingarstíl á síðustu öld. Menn geta deilt um, hversu þarft eða merkilegt starf hafi verið innt af hendi í þeim húsum, sem til eru af Bernhöftstorfunni, og sjálfsagt má gera lítið úr þeim „dönsku fúaspýtum“, sem halda þessum húsum uppi. En enginn getur neitað því, að sú húsalína, sem markast af stjórnarráðshúsinu annars vegar og menntaskólanum eða Íþöku hins vegar, hefur á sér sérstakt yfirbragð, sem setur sterkan og eftirminnilegan svip á þennan borgarhluta. Þessi húsaröð er elzta ósnerta húsaröðin í Reykjavík frá síðustu öld og er, eins og fyrr segir, bezta dæmið um byggingarstíl þeirra tíma. Þjóðminjavörður hefur gefið þá umsögn, að það væri til mikils sóma, ef takast mætti að vernda þessar menningarminjar á komandi tímum. Öll getum við verið sammála um, að menningarverðmæti megi ekki fara forgörðum vegna ótímabærra ráðstafana eða vegna þess, að hlaupið sé í framkvæmdir að óathuguðu máli. Framhlaup í þessu máli verða ekki aftur tekin.

Því er þessi fsp. borin fram, að í sumar bárust þær fréttir að hæstv. ríkisstj. hefði ítrekað fyrri boð til borgarstjórnar Reykjavíkur um að gefa borginni byggingar þær, sem hér um ræðir til endurbyggingar í Árbæ, væntanlega með þeim ásetningi að hefja byggingu nýs stjórnarráðshúss á þessari lóð. Eins og fyrr segir, hefur húsfriðunarnefnd einróma lagt til að till. n. verði staðfestar af menntmrh., eins og lög um húsafriðun frá 1969 gera ráð fyrir. N. hefur margsinnis ritað ríkisstj., bæði fyrrv. og núv., erindisbréf, þar sem óskað er eftir,þessari staðfestingu, og síðast var það gert í sumar, en engin svör hafa borizt önnur en bréfaskrif ríkisstj. til borgarstjórnar Reykjavíkur, sem bera það með sér, að ríkisstj. hyggst halda sig við þá ráðstöfun, að Bernhöftstorfan verði rifin eða fjarlægð. Samkvæmt þjóðminjal. frá 1969 er það á valdi hæstv. menntmrh. að taka af skarið í þessum efnum, og því er spurt um afstöðu hans til þessa máls.