14.11.1972
Sameinað þing: 15. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 695 í B-deild Alþingistíðinda. (412)

64. mál, skipulag vöruflutninga

Steingrímur Björnsson:

Herra forseti. Mér þykir rétt að vekja athygli á því, að á síðasta þingi lagði ég fram fsp. um framkvæmd þál. frá 5. apríl 1971, hinnar sömu og hér er rætt um, og þá heyrði ég á svari hæstv. ráðh., að lítið hefði verið gert eða ekkert, en hins vegar skildist mér, að framkvæmd yrði fljótlega hafin.

Ég heyri, að eitthvað er unnið að þessu máli, en mér þykir hlýða að láta í ljós vonbrigði mín með það, – og tek undir með síðasta hv. ræðumanni og fyrirspyrjanda, — að lítið hefur unnizt og langtum hægar en ég hafði gert mér vonir um.

Það er eflaust rétt hjá hæstv. ráðh., að það eru margir þættir, sem valda þessum ójöfnuði. Hann er gífurlega mikill, eins og fram kom hjá hæstv. síðasta ræðumanni. Það má vel vera, að það sé ekki fyrst og fremst samgöngukerfið sem slíkt, sem þarna ræður mestu, en það er sannfæring mín, að ýmiss konar framkvæmd á flutningi um landið er þarna mikill þáttur. Ekki er tími til að ræða þetta ítarlega í stuttri aths., en ég vil t.d. vekja athygli á því, að söluskattur er lagður á útskipun og uppskipun á flutningum út á land, og veldur það eitt út af fyrir sig töluverðri hækkun á vöruverði. Þarna er nefndur þáttur, sem er á valdi hins opinbera, og sýnist mér, að athugun og jöfnun á flutningskostnaði þurfi að ná til slíks alls, og vil ég leyfa mér að vona, að framkvæmd og athugun á þessu sviði verði hraðað.