14.11.1972
Sameinað þing: 16. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 699 í B-deild Alþingistíðinda. (424)

44. mál, leiga og sala íbúðarhúsnæðis

Flm. (Ragnar Arnalds):

Herra forseti. Ég hef leyft mér á þskj. 46 að flytja till. til þál. um leigu og sölu íbúðarhúsnæðis. Efni þessarar till. er það, að ríkisstj. láti undirbúa frv. til l. um leigu og sölu íbúðarhúsnæðis og leggi það fyrir Alþ. og að í frv. verði kveðið á um hámark leigu og að þar verði einnig fjallað um skipulag fasteignasölu í landinu. Það er svo, að engin lög eru nú til um þessi efni.

Árið 1943 samþ. Alþ. lög um húsaleigu, sem voru lengi í gildi, en smám saman urðu þau úrelt vegna verðlagsþróunar í landinu. Það voru að vísu gerðar á þeim breyt. 1950 og 1952, en þegar var komið fram á 7. áratuginn var ljóst, að vegna þess að engar breyt. voru á þeim gerðar, voru þau orðin svo gersamlega úrelt, að enginn tók lengur mark á þeim, og þessar lagaslitrur hurfu endanlega úr sögunni 1965, um leið og lög voru sett um húsnæðismál. Þá var verið að lögfesta samninga verkalýðshreyfingarinnar við ríkisstj. og vinnuveitendur, þá hluta af þeim samningum, sem fjölluðu um húsnæðismál. Ríkisstj. hafði þá um sumarið gefið út yfirlýsingu um húsnæðismál. sem seinna varð undirstaða svokallaðra Breiðholtsframkvæmda, og þá var tækifærið notað, um leið og þau lög voru samþ. hér í þinginu, til að afnema þessi gömlu lög um húsaleigu, en ekkert annað kom í staðinn, og þar af leiðandi eru engin lög og engar reglur um þetta efni til. Ég held, að mér sé óhætt að segja, að óvíða muni vera svo ástatt í nálægum löndum, að engin lög og engar reglur séu um þetta efni. Víðast hvar er einhver rammalöggjöf til og víða einnig hámarksákvæði um húsaleigu. Þetta er þeim mun einkennilegra hvað Ísland snertir, þegar haft er í huga, að verðlagsákvæði á flestum sviðum eru hér nokkuð ströng. Við reynum hvað við getum til að hemja verðlagið og koma í veg fyrir verðhækkanir, að vísu með heldur misjöfnum árangri, og við reynum hvað við getum til að halda niðri álagningu, en í húsnæðismálum hefur það verið svo, að allt hefur verið laust á þessu sviði, og það gildir jafnt um leiguhúsnæði og söluverð á húsnæði.

Hvað snertir húsaleiguna sjálfa, er staðreyndin sú, að leiga hér á landi er mjög misjöfn. Ég veit ekki til þess, að nein skipuleg athugun hafi verið gerð á því, hvað húsaleiga er almennt há, t.d. hér á höfuðborgarsvæðinu, en af þeim fréttum, sem ég hef haft af þessu sviði, er út af fyrir sig ekki ósennilegt, að meiri hluti húseigenda, sem leigja út íbúðir, heimli fyrir það verð, sem getur talizt eftir atvikum hóflegt og eðlilegt, ef tekið er tillit til fasteignamatsverðs, vaxtakostnaðar og annars eðlilegs kostnaðar við húseignir. Hins vegar fer ekkert milli mála, að sums staðar a.m.k. er húsaleiga svimandi há og jafnvel margföld á við það, sem eðlilegt getur talizt. Leiga á íbúðum er aðallega uppsprengd, að því er virðist, þegar um er að ræða litlar og gamlar íbúðir. Það þarf út af fyrir sig enginn að vera hissa á því, að nýjar dýrar og stórar íbúðir séu leigðar út fyrir hátt verð í krónum talið. En staðreyndin er sú, að hér á höfuðborgarsvæðinu úir og grúir af eins og tveggja herbergja kjallaraholum, sem ekki standast jafnvel einföldustu heilbrigðiskröfur, og eru þó leigðar út fyrir býsna hátt verð. Ég sé ekki ástæðu til að nefna nein sérstök dæmi eða fara að fjölyrða frekar um það hörmulega ástand, sem ríkir á þessu sviði, vegna þess að það hefur verið gert að umtalsefni æðioft, bæði í dagblöðum í Reykjavík, í bæjarstjórn Reykjavíkur og víðar, og ég býst við, að flestum hv. þm, sé kunnugt um, að svona er þetta.

Ástæðan til þess, að ástand af þessu tagi getur skapazt, er að sjálfsögðu sú, að framboð á leiguhúsnæði er allt of lítið. Að öðrum kosti kæmust menn ekki upp með það, að misnota sér neyð fólksins á þann hátt, sem nú tíðkast allt of víða. Hins vegar er það eftirtektarvert fyrir þá, sem trúa og treysta á lögmál hins frjálsa markaðar, lögmál framboðs og eftirspurnar, að á þessu sviði virðist litlu skipta, þótt gróðaöflin hafi haft næstum ótakmarkaða möguleika árum saman. Peningaöfl þjóðfélagsins virðast ganga út frá því, að á öðrum sviðum sé þrátt fyrir allt skjótteknari gróði, og framboð á leiguhúsnæði er því eftir sem áður tiltölulega lítið. Á þessu vandamáli er að sjálfsögðu ekki til nema ein varanleg lausn. Opinberir aðilar verða að eiga frumkvæðið að byggingu leiguhúsnæðis í miklu stærri stíl en verið hefur. Það er út af fyrir sig ánægjulegt í sjálfu sér, hve margir hér á íslandi búa í eigin húsnæði, og er engin ástæða til að fara að metast um það, hvort réttara sé, að meiri hluti fólks búi í leiguhúsnæði eða eigin húsnæði. Það er atriði, sem ég ætla ekki að taka til umr. Hins vegar ætti að vera hverjum manni ljóst, að það er algjörlega fráleitt, að fólk geti yfirleitt ekki fengið þak yfir höfuðið öðruvísi en að byggja eða kaupa íbúðir fyrir 1 eða 2 millj. kr.

Meiri hlutinn af ungu fólki hefur ekki minnstu möguleika til að eignast íbúðir, það mun öllum vera ljóst, ekki fyrr en þá mörgum árum eftir að það hefur stofnað heimili. Það er því alveg sérstaklega þetta unga fólk, sem er í húsnæðisklemmunni og verður að láta sér lynda þröngan og heilsuspillandi húsakost og þá oft með svo og svo mörg kornabörn.

Það verður að stórauka framboð á leiguhúsnæði, ekki aðeins hér á höfuðborgarsvæðinu, heldur einnig víðs vegar um land, þar sem viða stendur svo á, að ekki er unnt að fá aðflutta hæfileikamenn til að setjast þar að og gegna nauðsynlegustu störfum, vegna þess að svo til ekkert leiguhúsnæði er fyrir hendi á slíkum stöðum, og það er nú svo, að enginn snarar upp húsnæði fyrir sig og fjölskyldu sína á fáum dögum. Jafnframt því, að einhver varanleg lausn sé fundin á þessu vandamáli, og um það fjallar í sjálfu sér ekki þessi till. til þál., þá er hitt málið, sem eftir stendur og er ekki síður mikilvægt, að sett verði heildarlöggjöf um leiguhúsnæði, bæði hámarksákvæði um leigu og eftirlit með því, að reglur af þessu tagi séu haldnar. Ég vil lýsa því yfir, að ég hef þá trú, að séu þessi lög skynsamlega samin og hámarksákvæðin eðlileg og sanngjörn, sé þess að vænta, að lög af slíku tagi verði virt og að það þurfi ekki að fara fyrir þeim eins og lögunum, sem sett voru hér um árið, að þau yrðu nánast sjálfdauð. Í lögunum um húsaleigu frá 1943 voru hámarksákvæðin þannig orðuð, með leyfi forseta, eftir þær breyt., sem gerðar voru á þeim 1950 og 1952:

„Hámark þeirrar húsaleigu, að viðbættri vísitöluuppbót skv. 6. gr., sem ákveða má fyrir íbúðarhúsnæði, skal vera 7 kr. á mánuði fyrir hvern fermetra gólfflatar íbúðarinnar, séu húsin byggð fyrir árslok 1944, en 8–9 kr. fyrir hvern fermetra í húsum, sem byggð eru 1945 og síðar. Nú er lofthæð íbúðar minni en 2.5 metrar, og lækkar þá hámark þetta hlutfallslega sem því nemur.“

Ég les ekki meira af þessum ákvæðum, en ég býst við, að flestir hv. þm, geti verið mér sammála um, að ákvæði af þessu tagi séu ekki skynsamleg og að ekki komi til greina að hafa ákvæðin í væntanlegri löggjöf af þessu tagi. Það er augljóst mál. að íbúðir eru mjög mismunandi að gæðum, og það er alveg vonlaust að ætla sér að láta fermetratöluna ráða því, hver hámarksleigan skuli vera, og þá enn síður að fara að binda það í lögum, miðað við þá verðlagsþróun, sem hér hefur verið í gildi. En þetta er vafalaust meginástæðan fyrir því, að lögin stóðust ekki þróun tímans og urðu, eins og ég sagði áðan, sjálfdauð, urðu svo ómerk, að engum þótti taka því lengur að eltast við það, hvað í þeim stóð. Ég held, að í væntanlegum lögum, sem sett yrðu um þetta efni, yrði eðlilegast að miða við t.d. fasteignamat, sem nú hefur verið framkvæmt um land allt og ætti að geta orðið skynsamlegur grundvöllur að slíkum hámarksákvæðum, og ég tel því í sjálfu sér ekkert því til fyrirstöðu, að ársleigan yrði t.d. ákveðin sem einhver ákveðin prósentutala af matinu. Þetta skipulag hefur ýmsa kosti og m.a. þann, að húseigendur mundu þá væntanlega leitast við að hafa matið á sinni húseign í einhverju samræmi við raunveruleikann. Það er líka svo, að fasteignamat þarf að vera í sæmilegu lagi, sæmilega áreiðanlegt á hverjum tíma. Ég ætla ekki að rökræða frekar um þennan hluta till., þ.e.a.s. þann, sem fjallar um leiguhúsnæði og hámarksleigu. En eins og fram kemur í þáltill., fjallar hún einnig um sölu á húsnæði. Það er svo, að núna á einu ári er talið af þeim, sem til þekkja, að íbúðarhúsnæði í Reykjavík hafi hækkað um ekki minna en helming og sennilega ívið meira, kannske um 60–70%, og það á aðeins einu ári. Það hlýtur að vera algjörlega óviðunandi, að á sama tíma og reynt er með mjög harðvitugum ráðstöfunum að koma í veg fyrir hækkun verðlags yfirleitt, þá séu engar hömlur yfirleitt lagðar á verðhækkanir íbúðarhúsnæðis, þó að öllum eigi að vera ljóst, að verðlag á húsnæði hlýtur að snerta lífsafkomu almennings meira en flest annað. Þetta atriði hef ég talið sjálfsagt og eðlilegt að yrði skoðað, um leið og tekin yrðu til athugunar þau mál, sem snerta húsaleiguna, hvað hægt er að gera til að stemma stigu við hömlulausum hækkunum verðlags á íbúðarhúsnæði.

Það er fleira, sem þarf að hyggja að í sambandi við sölu á húsnæði, og þá ekki sízt, hvernig salan fer fram og hvernig skipulag á fasteignasölu er. Eins og mönnum er kunnugt, eru það svonefndir fasteignasalar, sem annast sölu íbúðarhúsnæðis hér á landi. Hér á höfuðborgarsvæðinu, í Reykjavík og nálægum bæjum, eru fasteignasölur líklega einar 30–40 talsins, og eru vonandi flestir sammála mér um, að þær mættu vera svo sem 10 sinnum færri. Víða á smærri stöðum úti á landi er hins vegar svo lítið um eigendaskipti á fasteignum, að afskipti fasteignasala þekkjast nánast ekki. Fólk, sem vill selja fasteign, veit varla lengur, hvert það á að snúa sér eða hvernig það á að fara að því að kaupa eða selja fasteignir.

Ég álít, að það skipulag á fasteignasölu, sem nú er ríkjandi, sé í raun og veru algjörlega fráleitt og þurfi gagngerðrar endurskoðunar við. Í fyrsta lagi álít ég, að það þurfi að koma því þannig fyrir, að fólk um allt land geti leitað til einhverra aðila, þegar það þarf að losna við fasteignir eða kaupa fasteignir, og kæmi til greina, að opinberir aðilar gerðu þetta auðveldara. En í öðru lagi er það skoðun mín, að þjónusta fasteignasala við kaupendur íbúða, þar sem þeir á annað borð bjóða þjónustu sína, sé langt fyrir neðan þær kröfur, sem við eigum að gera til fasteignasala. Þetta eru menn, sem taka 30–40 þús. kr. fyrir að selja eina íbúð, og það segir sig nokkuð sjálft, að fyrir slíkar upphæðir á eitthvað töluvert að koma á móti. En hver er svo þjónustan, sem menn fá, ef þeir leita til fasteignasala? Ég held, að flestir hafi þá reynslu, að þær upplýsingar, sem þeir fá hjá slíkum aðilum, séu æðioft af skornum skammti og ekki alltaf áreiðanlegar. Það er að vísu svo, að fasteignasalarnir telja sig hafa skoðað íbúðirnar til þess að kasta á þær einhverju verði, en flestir munu kannast við það, að gallar á íbúðum koma aðallega fram, eftir að íbúðin hefur verið seld, og ekki áður, eins og vera þyrfti. Annar galli er sá, að fasteignasalar taka raunverulega enga ábyrgð á því, að þær upplýsingar, sem þeir hafa safnað saman um þær íbúðir, sem þeir eru að selja, séu réttar. Ég get nefnt það dæmi, að til þess að kjallaraíbúð sé lánshæf hjá ýmsum lánastofnunum, þarf hún að vera samþykkt. Kaupandi fær sem sagt ekki lán út á íbúðina öðruvísi en að yfirvöld hafi samþykkt, að þarna skyldi vera íbúð. En það er nú svo, að æðioft áttar kaupandi sig ekki á því, að þessar upplýsingar þurfa að liggja fyrir, og sér ekki fyrr en eftir á, að hann hefur keypt íbúð, sem alls ekki var samþykkt. Ég lít svo á, að það sé raunveruleg skylda fasteignasalans að sjá um, að upplýsingar af þessu tagi komist örugglega til skila til kaupandans, þannig að hann sé ekki blekktur í viðskiptunum, og að fasteignasali eigi ekki að njóta þess í þjóðfélaginu að fá tugi þúsunda fyrir sína þjónustu öðruvísi En hún komi að fullkomnu gagni. Ég þarf ekki að fjölyrða hér um þau vandræði, sem saklaus almenningur á við að stríða, þegar tilvik af þessu tagi koma upp, hvort heldur er um að ræða galla á íbúð eða að hún er ekki samþykkt, og menu lenda í því að verða að standa í málaþrasi, sem oftast tekur mörg ár, — tekur kannske tvö ár að fá málið tekið fyrir hjá viðkomandi dómstól, og svo eru kannske liðin 3–4 ár, áður en fallinn er hæstaréttardómur í málinu. Langflestir telja sig ekki hafa neina aðstöðu til þess að standa í þess háttar þrasi og láta því málið kyrrt liggja og hugsa með sér, að það sé aðalatriðið að láta ekki plata sig í næsta sinn.

Ég vil leggja áherzlu á það hér, að ég tel, að þessi mál þyrfti að taka til athugunar, þ.e.a.s. skipulag fasteignasölu yfirleitt. Það er skoðun mín að fasteignasölur eigi að vera fáar og um leið skyldar til að bjóða fullkomnustu þjónustu og að fasteignasalarnir eigi almennt að bera ábyrgð á upplýsingum, sem þeir gefa. Ég hef áður lýst því yfir og get endurtekið það hér, að ég tel, að vel komi til greina, að opinberir aðilar skipuleggi þjónustufyrirtæki, sem hafi það verkefni að bjóða fullkomnustu þjónustu við sölu fasteigna um allt land og tryggi þá að sjálfsögðu um leið sanngjarnt verð fyrir þá þjónustu. Ég vil taka fram, að það er ekki endilega víst, að þetta þyrfti að skipuleggja á vegum ríkisins. Það mætti kannske skipuleggja þessa þjónustu á vegum sveitarfélaganna undir yfirstjórn Sambands ísl. sveitarfélaga. Það má ekki síður láta sér detta í hug, að samvinnusamtökin fyndu hjá sér hvöt til þess að ráðast inn á þetta svið og taka að sér þetta hlutverk og létu þá kaupfélögin annast þessa þjónustu. Ég nefni bara þetta tvennt sem hugsanlegar leiðir, vegna þess að það er ekki skoðun mín, að það þurfi endilega að vera ríkið, sem taki þessa þjónustu að sér. En hvernig sem að því verður staðið, þá er hitt ljóst, að það þarf einhver félagslegur aðili að koma þarna til skjalanna til þess að veita fasteignasölunum nauðsynlegt og strangt aðhald og stranga samkeppni. Það þarf að athuga gaumgæfilega, hvernig má endurskipuleggja fasteignasölu almennt og um leið að sporna við hömlulausum hækkunum verðlags á íbúðarhúsnæði, því að ég tel mig ekki vera að fara með neinar svívirðingar til einnar eða neinnar stéttar, þó að ég lýsi því yfir, að ég tel. að fasteignasalar hafi oft átt hlut að máli, þegar um hefur verið að ræða þessar miklu og hóflausu verðhækkanir. Það þarf sem sagt að minni hyggju að setja heildarlöggjöf um þessi mál öll, um leigu og sölu íbúðarhúsnæðis.

Ég vil leyfa mér herra forseti, að leggja til, að lokinni þessari umr. verði till. vísað til hv. allshn.