15.11.1972
Neðri deild: 13. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 722 í B-deild Alþingistíðinda. (438)
75. mál, gjaldaviðauki
Fjmrh. (Halldór E. Sigurðsson):
Herra forseti. Frv. á þskj. 79 er um innheimtu ýmissa gjalda með viðauka, og er það gamall kunningi hér á hv. Alþ. Þó er það svo, að það hefur heldur stytzt í meðförum undanfarinna ára, því að nú er gert ráð fyrir færri heimildum til viðauka en áður hefur verið, og stafar það af því, að sumt af því, sem hér var áður til meðferðar, hefur nú verið fellt inn í önnur lög. En hér er ekki um nein nýmæli að ræða, heldur farið fram á að mega innheimta með 140% viðauka stimpilgjald af öðru en afsölum fyrir fasteignum og skipum, leigusamninga um jarðir og lóðir og af kaupmálum, en þau mál hafa verið fest í annað form, og með sama viðauka leyfisbréfagjöld, önnur en þau, er ræðir í aukatekjulögum, nr. 104 1966.
Þetta. mál hefur gengið yfirleitt í gegn hér á hv. Alþ. án þess, að til mikillar umr. hafi komið. Ég vona, að það verði eins í þetta sinn, og legg til. herra forseti, að málinu verði að lokinni umr. vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.