15.11.1972
Neðri deild: 13. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 726 í B-deild Alþingistíðinda. (444)
16. mál, Verðjöfnunarsjóður fiskiðnaðarins
Frsm. 2. minni hl. (Guðlaugur Gíslason):
Herra forseti. Ég vil, áður en ég hef mál mitt, beina því til hæstv. forseta og spyrja hann um það, hvort honum finnist það viðeigandi eða forsvaranlegt að ljúka hér 2. umr. um þetta mál, ef hæstv. sjútvrh. er ekki viðstaddur í d. Eftir því sem ég bezt veit, mun hann vera hér á landi og hefur því fulla aðstöðu til þess að mæta hér, og mundi ég hiklaust telja það eðlilegt og sjálfsagt frá hans hendi, því að þótt það virðist á yfirborðinu ekki vera um miklar deilur að ræða í þessu máli, þá er það öllum vitanlegt, að um þá stefnu, sem þarna er verið að marka, að taka fé út úr verðjöfnunarsjóði umfram það, sem lög heimila, eru mjög miklar deilur og andmæli alls staðar frá á landinu. Ég skal svo ekki hafa um þetta fleiri orð í byrjun.
Eins og fram kemur af nál. og fram kom hjá frsm. bæði meiri hl. og 1. minni hl. sjútvn., hefur n. langt frá því orðið sammála um afgreiðslu á málinu. Meiri hl. leggur til. að frv. verði samþ. óbreytt, 1. minni hl., að því verði vísað frá, en við, sem stöndum að áliti 2. minni hl., teljum, að vart verði komizt hjá þeim ráðstöfunum, eins og málum er komið, sem frv. gerir ráð fyrir, en teljum aftur á móti mjög varhugavert að samþykkja frv. óbreytt og höfum því leyft okkur að flytja við það brtt. í nál. okkar, og mun ég koma að henni síðar.
Þegar frv. var hér til 1. umr., urðu um það allmiklar umr., sem vonlegt var, þar sem ákvæði í 1. gr. þess raska raunverulega grundvellinum að stofnun Verðjöfnunarsjóðs fiskiðnaðarins. Ég benti á það við 1. umr., að samkv. 1. gr. l. um verðjöfnunarsjóð var tilgangurinn með stofnun hans sá einn að draga úr áhrifum verðsveiflna, er verða kunna á útflutningsafurðum fiskiðnaðar. Þetta kemur greinilega fram í 1. gr. l. um verðjöfnunarsjóð, og er þar ekki að finna neina heimild til greiðslu úr sjóðnum, nema um verðsveiflur á erlendum markaði sé að ræða í sambandi við sjávarafurðir. Með ákvæðum til bráðabirgða í 1. gr. frv. er hins vegar beinlínis gert ráð fyrir því að nota hluta af sjóðnum til að hækka fiskverð og bæta afkomu fiskiðnaðarins umfram það, sem verðlag á frystum og söltuðum sjávarafurðum á erlendum markaði leyfir. Hæstv. sjútvrh. vildi halda því fram við 1. umr. um frv., að 7. gr. I. um verðjöfnunarsjóð leyfði jafnvel slíka ráðstöfun. Við, sem stöndum að nál. 2, minni hl., teljum þetta grundvallarmisskilning. Viðmiðun sú, sem þar er rætt um, getur aldrei gengið lengra en að greitt verði út að fullu það verð, sem fæst fyrir sjávarafurðir erlendis eða fullt markaðsverð. Útilokað verður að teljast, að hægt sé að túlka ákvæði þessarar gr. á þann veg, að heimilt sé að nota fé sjóðsins til uppbóta á fiskverði eða til greiðslu rekstrarkostnaðar fiskiðnaðarins umfram það, sem fullt markaðsverð leyfir, enda hefði verið gersamlega ástæðulaust að leggja frv. það fram, sem hér um ræðir, ef lögin um verðjöfnunarsjóðinn hefðu heimilað slíkt. Það segir sig reyndar alveg sjálft, að hæstv. sjútvrh. hefði ekki farið að setja sig í þá aðstöðu að þurfa að standa hér í umr. um jafnviðamikið mál og breytingin á lögum um verðjöfnunarsjóðinn er, ef hann hefði ekki beinlínis talið sig knúinn til að lögfesta þær breytingar, sem frv. gerir ráð fyrir.
Það kom fram hjá hv. frsm. meiri hl. sjútvn., að stjórn sjóðsins og fulltrúar eigenda hefðu mælt með frv. Þetta er rétt. En á þessu er vissulega skýring, sem frsm., hv. 5. þm. Sunnl., lét alveg undir höfuð leggjast að geta um, en hún er sú, að þessum aðilum var í haust beinlínis stillt upp við vegg og þeim tjáð af stjórnvöldum, að ef koma ætti í veg fyrir rekstrarstöðvun bátaflotans og fiskvinnslunnar, væri um ekkert annað að ræða en framlag úr verðjöfnunarsjóði. Frammi fyrir þessu stóð stjórn sjóðsins og fulltrúar Landssambands ísl. útvegsmanna og fulltrúar fiskiðnaðarins. Þessir aðilar féllust því nauðugir á þetta til að afstýra því, að til algerrar stöðvunar kæmi hjá bátaflotanum og fiskvinnslunni. Og eins og fram kemur í umsögn sjávarafurðadeildar Sambands ísl. samvinnufélaga, er með umsögn hennar aðeins verið að staðfesta það nauðungarsamkomulag, sem gert var til að halda þessum atvinnuvegi gangandi til n.k. áramóta. Umsögn hennar verður ekki misskilin. Þetta kemur alveg greinilega þar fram.
Þetta er skýringin á jákvæðri afstöðu þessara aðila, og hún er út af fyrir sig skiljanleg miðað við þá aðstöðu, sem þeir voru í, þegar samkomulagið var gert. En það er mjög rangtúlkað og fær á engan hátt staðizt, að þeir að fyrra bragði hafi óskað eftir þessum ráðstöfunum við hæstv. sjútvrh. eða ríkisstj. í heild. Þeir óttuðust ekki síður en aðrir, að hér væri um fordæmi að ræða, sem gengið yrði á lagið með að nota, jafnvel kannske þegar um næstu áramót, og er það ekki að ástæðulausu, þar sem hæstv, sjútvrh. hefur ekki fengizt til að gefa yfirlýsingu um, að svo verði ekki gert.
Í þeirri glórulausu græðgi hæstv. núv. ríkisstj. að tæma alla sjóði, hvar sem til næst, er hér vissulega um stórhættulegt fordæmi að ræða, ekki einasta fyrir Verðjöfnunarsjóð fiskiðnaðarins, heldur einnig fyrir aðra sjóði. Hver er öruggur um það, að hæstv. ríkisstj. detti ekki í hug að ganga á lagið og grípa til t.d. atvinnuleysistryggingasjóðs, ef hún þyrfti í bili að brúa bilið milli getu atvinnuveganna til kaupgreiðslu og kröfu launafólks um hærra kaup? Það má segja, að þar sé um alveg hliðstætt dæmi að ræða og um verðjöfnunarsjóðinn. Hvorir tveggja þessir sjóðir hafa verið myndaðir sem nokkurs konar tryggingasjóðir til að mæta tímabundnum erfiðleikum þeirra aðila, sem þar eiga hlut að máli. Og báðir eru þessir sjóðir byggðir upp á svipaðan hátt eða með beinum og óbeinum framlögum verkafólks, sjómanna og atvinnurekenda. Ég tel því alveg nauðsynlegt til þess að hreinsa andrúmsloftið og létta kvíða af mönnum, að hæstv. forsrh., — ég sé nú, að hann hefur einnig, því miður, vikið úr salnum og er það að mínum dómi mjög óheppilegt undir umr. eins og hér eiga sér stað, — en ég tel það mjög mikilvægt, að hæstv. forsrh. gefi nú við þessa umr. skýlausa yfirlýsingu um, að ríkisstj. muni ekki gripa til greiðslna úr Verðjöfnunarsjóði fiskiðnaðarins umfram það, sem lög heimila í dag, þegar rekstrargrundvöllur sjávarútvegs og fiskiðnaðar verður lagður um næstu áramót. Ég veit, að það er mjög mikill uggur í öllum um, að til þessa ráðs muni verða gripið og að Verðjöfnunarsjóður fiskiðnaðarins verði þar með uppétinn. Ég tel alveg nauðsynlegt, að slík yfirlýsing liggi fyrir, áður en Landssamband ísl. útvegsmanna heldur aðalfund sinn, sem mun vera ákveðið að halda innan skamms. Og ég vil leyfa mér að skora á hæstv. forsrh. og vænti þess, að hæstv. forseti komi þessum boðum til hans, að gefa slíka yfirlýsingu, annaðhvort nú við 2. umr. eða við 3. umr., áður en frv. fer út úr þessari d. Hann mun vissulega verða um þetta krafinn, áður en umr. um málið lýkur endanlega hér í d., og væri að mínum dómi langbezt, að þessi yfirlýsing kæmi þegar við 2. umr., því að það mundi mjög breyta afstöðu manna til málsins og gera það ekki eins stórt í augum margra og það er í dag, og það mundi létta af þeim ótta og kvíða, sem er í mörgum manni vegna þessarar ráðstöfunar og þeirrar heimíldar, sem í frv. felst.
Ég sagði í upphafi máls míns, að ég mundi gera grein fyrir brtt. þeirri, sem fram kemur í nál. okkar hv. 10. þm. Reykv., þar sem við leggjum til, að ríkisstj. ábyrgist endurgreiðslu á því fé, sem úr sjóðnum kann að verða tekið, ef frv. verður samþ. óbreytt. Ég sé, að hæstv. forsrh. er kominn í salinn og vil því endurtaka þá áskorun mína til hans, sem ég flutti hér að honum fjarverandi, en hún er sú, að ég tel alveg nauðsynlegt, að yfirlýsing komi frá hæstv. forsrh., annaðhvort nú við 2. umr. um þetta frv. eða við 3. umr., áður en frv. fer út úr d., um það, að Verðjöfnunarsjóður fiskiðnaðarins verði ekki notaður eins og frv. gerir nú ráð fyrir að nota hann til bráðabirgða, þegar rekstrargrundvöllur atvinnuveganna, sjávarútvegs og fiskiðnaðar, verður lagður um n.k. áramót. Ég benti á það, ég tel það nauðsynlegt, að þessi yfirlýsing liggi fyrir til þess að losa menn við þann kvíða og ótta, sem í mörgum er um, að þessi leið verði farin, og tel enda, að alveg sé nauðsynlegt, að slík yfirlýsing liggi fyrir, áður en fundur Landssambands ísl. útvegsmanna verður haldinn, sem gert mun verða mjög innan skamms, því að þar verður þetta mál örugglega mjög mikið til umr., það er mér kunnugt um.
Viðaukatill. okkar hv. 10. þm. Reykv. byggist á því, að við viðurkennum ekki og teljum það í fullu ósamræmi með tilgangi við stofnun verðjöfnunarsjóðs að veita óafturkræft framlag úr sjóðnum, nema um sé að ræða verðlækkun á sjávarafurðum á erlendum markaði. Þetta er í samræmi við 1. gr. l. um verðjöfnunarsjóð, eins og ég hef áður bent á. Hins vegar gerum við okkur það ljóst, að ef frv. yrði fellt, mundi það valda útgerð og fiskvinnslu erfiðleikum, sem sennilega mundu leiða til rekstrarstöðvunar hjá þessum atvinnugreinum þann tíma, sem eftir er til áramóta. Við teljum því eðlilegast, eins og málum er komið, að framlagið úr sjóðnum verði veitt sem lán, sem ríkisstj. ábyrgist endurgreiðslu á. Hér er ekki um svo stóra upphæð að ræða, að slíkt ætti að skapa hæstv. ríkisstj. nokkurn vanda, enda á hennar valdi að taka upphæðina inn í heildardæmið, þegar rekstrargrundvöllur sjávarútvegsins verður fundinn fyrir næsta ár. Við leyfum okkur því að vænta þess, að hv. Nd. geti fallizt á þessa lausn málsins í stað þess að skapa fordæmi, sem enginn sér fyrir endann á, til hvers mundi leiða, ef frv. verður samþykkt óbreytt.