15.11.1972
Neðri deild: 15. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 750 í B-deild Alþingistíðinda. (464)
79. mál, hafnalög
Félmrh. (Hannibal Valdimarsson):
Herra forseti. Aðeins örfá orð. — Ég vona, að það hafi verið ljóst af framsöguræðu minni áðan, að ég legg mikið kapp á, að þetta hafnalagafrv. fái afgreiðslu, ekki aðeins á þessu þingi, heldur á fyrri hluta þess, nógu snemma til þess, að hægt sé að taka niðurstöður þess allar til greina varðandi afgreiðslu fjárframl. til hafnamála, þ.e.a.s. áður en frá fjárl. er gengið. Og ég veit það, að það veltur á miklu, að hv. samgn. vinni fljótt og rösklega að afgreiðslu málsins, og vil líka vænta þess, að hv. þm. fallist á það sjónarmið að láta ágreiningsefni, sem upp kynnu að koma, heldur bíða en frv. nái ekki gildistöku fyrir áramót.
Varðandi till. þær, sem hv. þm. réttilega gat um, að fram hefðu komið frá þingi Hafnasambands sveitarfélaga, þá er það að segja, að við kynntum okkur þær brtt. í rn., tókum nokkrar þeirra til greina, vinzuðum þær úr, sem við töldum, að sízt gæti orðið ágreiningur um, og þær eru komnar inn í frv. Að öðru leyti tel ég alveg sjálfsagt, að till. Hafnasambandsins í heild fari til hv. samgn., sem þá gerir samanburð á þeim brtt. og kemst að niðurstöðu um, hverjar þeirra n. gæti fallizt á, og að öðru leyti verður meginstarf n. að bera þetta frv. saman við gildandi hafnalög. Ég vona því, að þetta starf n. geti gengið fljótt.
Það er rétt, sem hv. 2. þm. Vestf. sagði hér áðan, að nú, þegar frv. er lagt fram, hefur verið fellt niður bráðabirgðaákvæði 2, sem var með frv. í fyrra. Það er að nokkru leyti vegna þess, að aðstæður hafa breytzt. Það bráðab. ákvæði snerti að nokkru leyti skipabrautina á Akranesi, sem þá hafði nokkru áður orðið fyrir stóráfalli, og var hugsað til þess að vera við því búinn að taka þátt í að leysa vanda þessarar dráttarbrautar með ákvæðinu. Nú hefur sá vandi verið leystur með öðrum hætti, og þess vegna féllst ég nú á að fella bráðabirgðaákvæði 2 niður. En ég tek því ekki nema vel, að fram er komin till. frá hv. þm. um það að taka þetta ákvæði upp aftur, og fjallar þá hv. samgn. um það, og á þessu augnabliki skal ég ekki lýsa yfir neinni andstöðu a.m.k. við fyrstu athugun á því ákvæði og könnun á því, hvar það gæti komið að gagni eða leyst vanda, sem steðjaði að og við værum óviðbúnir að leysa.
Varðandi svo það, hvort ég ætli mér að verða við ákvæði til bráðabirgða, sem frv. fylgir, þá liggur það í augum uppi. Ég lét það fylgja með frv. og tel það mjög mikilsverðan þátt í afgreiðslu frv., eins og högum hafnasjóðanna yfirleitt er háttað. Og eftir þessu bráðabirgðaákvæði vil ég, að bæði rn. vinni og hafnamálastofstofan og fjvn., þegar málið kemur til hennar. En í upphafi ákvæðisins segir:
„Gera skal sérstakar ráðstafanir til að létta greiðslubyrði þeirra hafnarsjóða af löngum lánum., sem verst eru settir, og skal þá miða við lánin eins og þau eru, er lög þessi taka gildi.“
Það verður því nú að leggja fyrir hafnamálaskrifstofuna að gera yfirlit yfir efnahagsstöðu hafnanna, eins og hún er nú, og byggja síðan till. til úrbóta á þeirri niðurstöðu. Ég geri mér ljóst, að hér er um mjög vandasama hluti að ræða. að finna út reglu, sem réttilega létti hlut hinna ýmsu hafnasjóða og sé ekki einum meira í vil en öðrum. En þá reglu verðum við að finna. Og ég held, að það sé grundvöllur, sem rétt sé að byggja á, að hafa hliðsjón af tekjum og gjöldum hafnarsjóðs, framlagi sveitarfélagsins til hafnarsjóðs, fólksfjöldanum á staðnum og öðrum þeim atriðum, sem áhrif geta haft á greiðslugetu hafnarsjóðsins. Þetta er grundvöllurinn, sem þessar reglur verða að byggjast á, hvaða reglu sem við finnum út til þess að fullnægja þessu. En svar mitt við spurningu hans varðandi þetta allt saman er játandi.