16.11.1972
Sameinað þing: 17. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 759 í B-deild Alþingistíðinda. (488)

45. mál, lagasafn í lausblaðabroti

Flm. (Ragnar Arnalds):

Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. forsrh. fyrir þær upplýsingar, sem hann hefur gefið í þessu máli. Hann hefur upplýst, að nýtt lagasafn sé væntanlegt þegar á næsta ári, og benti réttilega á það, að eftir að það er komið út, gæti svo farið, að nokkuð drægist, að nýtt átak yrði gert á þessu sviði, vegna þess mikla kostnaðar, sem er útgáfunni samfara. Hann hefur einnig upplýst, að prentun sé hafin á þessu verki. Nú er það svo, að ég veit að sjálfsögðu ekki, hversu langt þetta verk er komið frá tæknilegu sjónarmiði, en ég vil leyfa mér að vekja athygli á því hér, að framkvæmd þessarar hugmyndar eða þessarar till. er raunverulega fyrst og fremst spursmál um bókband og endanlegan frágang skjalanna. Það er svo, að það er hægt að hugsa sér útgáfu af þessu tagi með tvenns konar hætti, annars vegar að lögum sé raðað í tímaröð, þannig að fremst í slíku safni séu þau lög, sem elzt eru, og síðan stöðugt bætt við eftir aldri laga. Hin skiptingin, sem til greina kemur, er efnisskipting, að lögum sé raðað í lagasafnið eftir efni þeirra, og það er sú skipting, sem verið hefur í lagasafninu lengst af. Ég lít svo á, að að flestu leyti væri skynsamlegra að halda þeim hætti áfram að raða lögum niður í lagasafn eftir efni, og þar af leiðandi sýnist mér, að það mætti í sjálfu sér nota alveg sömu kaflaskipan í væntanlegt lagasafn og er í núverandi lagasafni. Þar af leiðir, að allt það verk, sem unnið hefur verið við ritstjórn bókarinnar, ætti að geta komið að góðum notum, og raunverulega ætti ekki mikið að þurfa til þess að breyta þessu í það form, að um geti verið að ræða útgáfu, sem þannig sé útbúin, að hægt sé að bæta nýjum lögum inn í safnið. Það þyrfti sem sagt fyrst og fremst að vera um það að ræða, að ekki væri beinlínis blaðsíðutalskerfi í bókinni, heldur eitthvert annað kerfi.

Ég get að sjálfsögðu ekkert um það sagt, hvort till. er óraunhæf af þessum ástæðum, sem hæstv. forsrh. nefndi, eða hvort það er enn möguleiki á því að koma þessari hugmynd á framfæri og í framkvæmd. En ég vil eindregið leyfa mér að óska eftir því, að kannað verði af hálfu þeirrar n., sem málið fær til meðferðar, hvort ekki sé hægt að nota þá prentun, sem nú er hafin á lagasafninu, í því skipulagi, sem ég hef hér lýst. Að öðru leyti vil ég þakka hæstv. forsrh. fyrir almennt jákvæðar undirtektir við málið. Ef svo reynist, að ekki er hugsanlegt eða framkvæmanlegt að koma þessu skipulagi á við útgáfu lagasafnsins nú, verður það að sjálfsögðu svo að vera. En ég tek undir það með hæstv. forsrh., að það kæmi þá vel til greina, að Alþ. gerði ályktun um að endurskoðuð yrði almennt birting skjala af hálfu hins opinbera. Það fer ekkert á milli mála, að það skipulag, sem nú er í gildi á þessu sviði, er orðið nokkuð úrelt, og er þörf á, að það verði endurskipulagt.