20.11.1972
Neðri deild: 16. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 781 í B-deild Alþingistíðinda. (508)

79. mál, hafnalög

Gísli Guðmundsson:

Herra forseti. Ég mun hafa kvatt mér hljóðs, þegar þetta mál var síðast til umr., og má segja, að tilefnið hafi ekki verið mikið, en ætlunin var að bera fram fsp. til hæstv. samgrh. Í grg. þessa frv. til nýrra hafnalaga stendur um 7. gr.

„Á þessari gr. er sú mikilsverða breyting gerð frá gildandi l., að ríkissjóður greiðir nú 75% stofnkostnaðar við bryggjur og viðlegukanta, svo og siglingamerki.“

Ég hef alltaf litið svo á, að samkv. 6. gr. l. hafi átt að greiða 75% af stofnkostnaði við viðlegukanta, sem gerðir eru innan á hafnargarða, en þar stendur í lögunum, með leyfi hæstv. forseta: „75% stofnkostnaðar hafnargarða (öldubrjóta), þótt þeir nýtist til viðlegu.“ Nú var nokkur ágreiningur um það um skeið, hvernig ætti að skilja þetta ákvæði og hvort greiða ætti 75% eða 40% út á legukanta, sem byggðir eru innan á öldubrjót. Og ég vil spyrja hæstv. ráðh., hvort það sé ekki rétt skilið hjá mér, að rn. hafi verið búið að ákveða þá lögskýringu, að það skyldi greiða 75% út á þessa viðlegukanta. Ég byggi þessa fsp. á viðtölum, sem ég hef átt við starfsmenn í samgrn., en vil samt gjarnan fá svar við þessu frá hæstv. ráðh., ef hann er viðbúinn að veita það. En auðvitað má vera, að hann hafi ekki kynnt sér það mál til hlítar og geti ekki svarað því á stundinni, en ég vildi samt gjarnan fá svar við þessu nú eða síðar og hef svo ekki meira um þetta að segja.