21.11.1972
Sameinað þing: 18. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 802 í B-deild Alþingistíðinda. (533)
82. mál, söngkennsla í skólum
Fyrirspyrjandi (Helgi F. Seljan):
Herra forseti. Ég hef leyft mér að bera fram svo hljóðandi fsp. til hæstv. menntmrh.:
„Hefur verið hugað að því sérstaklega, hvernig efla megi alhliða tónlistaruppeldi í skólum, svo og hversu leysa megi vanda þeirra skóla, sem enga söngkennslu hafa? Hvað voru þeir skólar margir á skyldunámsstigi s.l. skólaár?“
Fsp. er borin fram m.a. í þeim tilgangi að fá um það nokkra vitneskju, hvernig háttað er um eina og ekki þá þýðingarminnstu af skyldugreinum barnaskólastigsins, þ.e. hversu almennt henni er sinnt. Að vísu verður hér aldrei nema hálfsögð sagan, þótt refjalaust sé svarað, því að vitað er, að þótt söngkennslan sé á stundaskrá, getur þar verið um að ræða nánast nafnið eitt. Til þess að söngur sé kenndur svo sem vera ber, þarf töluverða sérmenntun, helzt söngkennaramenntun. Einmitt í þessu efni er ég hræddur um, að víða sé á nokkur misbrestur.
Sem skólastjóri reyndi ég t.d. ár eftir ár að hafa söng á stundaskrá, en eiginleg söngkennsla var þar ekki á ferðinni, en þó hlaut viðleitnin að vera betri en algert söngleysi.
Söngur er mikilvæg grein. Ásamt hinni menntandi hlið er söngurinn afar dýrmætur fyrir tjáningarþörf barna, og hópsöngurinn þroskar félagskenndina. Söngkennsla á framar öðru að vera lifandi og aldrei reyrð í form og fjötra.
Fsp. lýtur einnig að því, hve brýnt er að ráða bót á því ástandi, sem ég veit, að ríkt hefur og ríkir enn í tónlistaruppeldi mikils hluta barna hér á landi. Söngkennsla skólanna er snarasti þáttur þessa uppeldis viðast hvar. Ástandið hefur vissulega batnað síðustu árin, og er það ekki sízt að þakka áhuga fólks víðs vegar um land og forgöngu þess um stofnun tónlistarskóla, oft við erfiðar aðstæður. Við höldum uppi dýrri sinfóníuhljómsveit, sem ég neita ekki, að er þarft fyrirtæki til flutnings æðri tónlistar fyrir hljómelsk eyru þeirra, sem hafa nægan tónlistarsmekk, nægt tónlistaruppeldi til að njóta. En á sama tíma er ég ekki viss um, að við leggjum okkur nóg fram um söng og tónlistarmennt þeirra barna og unglinga, sem í dag telja poppið einu sönnu tónlistina fyrir sín eyru, og er ég þó alls ekki að fordæma þá tónlist, því að ég er sennilega sjálfur lýsandi dæmi um skort á tónlistaruppeldi eða tónlistarsmekk, þar sem ég kýs heldur létta tónlist fyrir mín eyru, þar með talið poppið, en flest af því, sem ég heyri af framleiðslu Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
Ég vildi svo aðeins víkja að aðalhluta fsp. um tónlistaruppeldið, þ.e. um aukna tónmennt í skólum almennt. Nú, þegar opnuð er ný námsbraut í tónlist við menntaskóla, hlýtur þessi vandi að knýja fastar á en áður í skólakerfinu. Þarft verkefni tel ég það vera að tryggja hverju barni á landi hér möguleika á að kynnast tónlist, bæði í söng og hljóðfæraleik, tjá sig í tónum, ef nokkur kostur er. Erfiðleikarnir á framkvæmd þessa eru sannarlega miklir, en kleift hlýtur það að vera. Enn er allt tónlistarnám hér stundað á einkaskólagrundvelli, þegar frá er talið það takmarkaða tónlistarnám, sem skyldunámið veitir. Hér þarf að verða á breyting. Tónlistarnám á að verða snar þáttur í öllu okkar uppeldisstarfi.
Við ræðum oft um unglingavandamál. Aðgerðaleysi í tómstundum er þar veigamikil orsök. Ég efa ekki, að aukin tónmennt í skólum mundi auðga og fylla tómstundir ærið margra og leysa þannig vanda einhverra. Því spyr ég almennt um þessi mál á breiðum grundvelli til að forvitnast um, hvort og þá hvernig að þessum málum er unnið.