18.10.1972
Neðri deild: 4. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 107 í B-deild Alþingistíðinda. (59)
18. mál, Landhelgisgæsla Íslands
Flm. (Jóhann Hafstein):
Herra forseti. Ég vil fyrst í stað þakka hæstv. forsrh. fyrir mjög góðar undirtektir við þetta frv. Og það styrkir auðvitað vonir mínar um það, að það geti náð fram að ganga nú á fyrri hluta þessa þings og fyrir afgreiðslu fjárl., eins og ég vék að. Ég hef áður sagt, að þær skipta ekki öllu máli fjárupphæðirnar, sem nefndar eru í frv., ef n. kæmist að einhverri annarri niðurstöðu. Eins er það líka, sem vikið var að hér, um ákvörðun í 2. gr. um staðsetningu Landhelgisgæzlunnar, að auðvitað er það ekki höfuðatriði í þessu máli. Ég óttaðist aðeins, og þar hef ég kannske ráðið mestu um sem þm. Reykv. og 1. flm. frv., að ef ekki væri kveðið á um hana, þá hæfust hér í þinginu deilur um það, hvar Landhelgisgæzlan ætti að vera staðsett og það er mjög skiljanlegt, að þar otar hver sínum tota. En ég vil undir öllum kringumstæðum ekki hefja neinar umr. um það nú og segja strax við þá n., sem fær þetta frv. til meðferðar, að þetta atriði megi með engu móti tefja framgang frv. Þá vil ég miklu heldur, að það sé samkomulag um að láta það standa opið, þegar frv. er samþykkt. Hitt er svo bjargföst skoðun mín, að einmitt hér á þessum landshlutanum sé langbezt aðstaðan fyrir Landhelgisgæzluna, en aðrir geta haft aðrar skoðanir á því og um þetta vil ég ekki meira segja.
Ég hafði fyrirvara um það í minni fyrri ræðu, hvort ég færi rétt með, að það væri ekkert fjármagn áætlað til Landhelgissjóðsins til byggingar í landi eða byggingar varðskips, og ég hafði skilið fjárl. þannig. Hæstv. forsrh. vildi nú meina, að það væri áætlað til Landhelgissjóðs, eins og hann sagði tæpar 15 millj, kr., ófyrirséð 15 millj. kr. Ég hélt, að þetta væri eingöngu nauðsynlegt til Landhelgissjóðs í framhaldi af því, sem verið hefur til að standa undir afborgunum og vöxtum af varðskipum, sem þegar hafa verið keypt. Árið 1969 þurfti að auka framlag ríkissjóðs til Landhelgissjóðsins úr 3.5 millj. 1968 upp í 14 millj. kr. 1969 og 16.8 millj. kr. 1970, m.a. vegna þess, að þá féllu til afborganir af varðskipunum í ríkara mæli heldur en sektarfé og björgunarlaun og vextir gátu risið undir. Og í grg. í fjárl., þar sem vikið er að Landhelgisgæzlunni, þá er ekkert á það minnzt, að varið sé neinu til Landhelgissjóðs til bygginga í landi né heldur til kaupa á varðskipi, og þess vegna ályktaði ég, að það væri ekkert umfram það venjulega, sem í fjárl. er ákveðið að verja til Landhelgissjóðsins.
Þær hafa farið nokkuð á víð og dreif umr. um þetta mál. Forsrh. sagði að vísu, að hann vildi ekki hefja neitt pex um landhelgisgæzluna. Svo byrjaði hann náttúrulega að pexa beint upp úr því. Það voru ekki sérstaklega mikil afrek unnin í tíð fyrrv. ríkisstj. og það væri nú ekki góður vitnisburður um 12 ára stjórn fyrrv. ríkisstj., að Landhelgisgæzlan væri húsnæðislaus. Núv. hæstv. ríkisstj. er búin að taka húsnæðið af Landhelgisgæzlunni, sem fyrrv. ríkisstj. ætlaði henni. Það er þess vegna, sem hún er í þeim vandræðum, sem hún er. En það var um langan tíma, sem ætlað var rúm fyrir Landhelgisgæzluna í hinni nýju lögreglustöð, sem hefur kostað mikið fé og mun kosta enn mikið fé, áður en hún verður fullgerð, og það var talið að dómi Landhelgisgæzlunnar og fyrirsvarsmanna hennar, að þá væri vel fyrir séð, ef hún gæti fengið það húsnæði, sem henni var ætlað þar til umráða.
Varðandi það, hvort unnin hafi verið mikil afrek í tíð fyrrv. stjórnar eða ekki, getur hver metið eins og hann vill. Óðinn kom, eins og hæstv. ráðh. sagði, til landsins 1961, Ægir 1968 eða 7 árum seinna. Ég tók við dómsmrh.- embættinu um áramótin 1963–1964, og 1966 skrifuðum við undir samninga um byggingu á Ægi. 1967 og 1968 var okkur ljós þörfin á því að efla tækjakost Landhelgisgæzlunnar. En þá voru hér mikil efnahagsvandræði í landinu, eins og öllum er kunnugt. Það þurfti að skera niður fjárlög og skera við nögl hvað eina, eins og hv. þm. rekur minni til. Þá var það, sem Landhelgisgæzlan gerði samning við Bandaríkin um að fá lánaða tvo flugbáta, björgunarflugbáta frá Bandaríkjunum, Albatross, sam kallaðir hafa verið, en þetta eru flugbátar með mikið flugþol og var ástæða til þess að ætla, að þeir gætu leyst úr okkar vanda og það vel, meðan á þessum erfiðleikum stæði í efnahagsmálum okkar. Því miður reyndist það svo þannig, þegar þessir flugbátar voru afhentir, að vonir manna brugðust um það, að þeir væru í því standi, sem þeir áttu að vera eða þurftu að vera til þess, að Landhelgisgæzlan gæti haft þeirra not. En leigukjörin voru mjög góð og þurfti engu til að kasta í sambandi við þessa bráðabirgðaleigu, en eins og ég segi, það voru mikil vonbrigði, að flugbátarnir voru slitnir og úr sér gengnir og þess vegna þurfti að skila þeim fyrr en varði. Þar sem hæstv. ráðh. taldi, að nú hefði Landhelgisgæzlan verið efld með kaupum á flugvél. þá var það allt saman ráðið í tíð fyrrv. ríkisstj., kaupin á þeirri flugvél. sem var til endurnýjunar á Sif. Það er út af fyrir sig ekkert afkastameiri vél en Sif, nema síður sé, en Sif var gömul Skymastervél, sem reyndist ákaflega vel og var mjög afkastamikil. En hún var dýr í rekstri og ég vildi mega vona, að þessi Fokker Friendshipvél, sem nú hefur verið keypt, reynist hagkvæmari að því leyti fyrir Landhelgisgæzluna og reynist henni í alla staði hagkvæm.
Um þessi minni atriði, sem nefnd hafa verið, skal ég svo ekki fjölyrða. En það er mjög erfitt að ræða ýmis mál að mínum dómi hér á opnum þingfundum í sambandi við samningagerðir hæstv. ríkisstj. og hvernig að þeim er staðið, og ég ætlað að leiða það hjá mér á þessu stigi málsins. Við höfum rætt það mál í utanrmn. á siðasta fundi hennar að hæstv. utanrrh. viðstöddum, og hann veit nokkuð um skoðanir stjórnarandstöðunnar, beggja stjórnarandstöðuflokkanna í því sambandi, og ég tel nú fara bezt á því, að við brýnum ekki hverjir aðra of mikið í þeim efnum. Það er vissulega rétt, sem hv. 1. þm. Sunnl. sagði, að það er auðvitað mjög æskilegt, að almenningur í landinu viti að hverju stefni, og um þetta skal ég svo aðeins bæta því við, sem á ekki að skapa nein vandkvæði, að það er auðvitað höfuðnauðsyn, að hæstv. ríkisstj, geri það upp við sig sem allra fyrst, hvort samstaða er milli okkar, skulum við segja, okkar allra, um samninga eða ekki, — að það liggi fyrir. Við uppskerum ekki neina ávexti af drætti óvissunnar í þessu sambandi.
Fleiri orð skal ég svo ekki hafa að þessu sinni, en ég endurtek þakkir minar til hæstv. forsrh. vegna þeirra góðu ummæla, sem hann viðhafði og hinna góðu undirtekta hans við þetta frv. Það var eitt smáatriði, sem ég kannske ætti að drepa á, áður en ég fer úr ræðustólnum, að hæstv. ráðh. sagði, að það dygðu engar úrtölur í sambandi við landssöfnunina, og ég vil mega vona það, að mitt mál hafi ekki á neinn hátt skilizt hér áðan sem einhverjar úrtölur í sambandi við gang þeirrar söfnunar og þessu sé stefnt gegn öðrum en mér, enda er ég einu af þeim, sem ásamt hæstv. forsrh. hef beint áskorun til þjóðarinnar um að standa að þessari söfnun.