27.11.1972
Neðri deild: 18. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 896 í B-deild Alþingistíðinda. (597)

93. mál, almannatryggingar

Lárus Jónsson:

Herra forseti. Það var einkum út af þeim ummælum hæstv. ráðh., að setning almannatryggingal. árið 1971 hefði verið sýndarmennska af allra ómerkilegasta tagi, sem ég

kvaddi mér hér hljóðs. Mér finnst dálítið djúpt tekið í árinni af hæstv. ráðh., sérstaklega þegar tekið er tillit til þess, að þetta eru að meginstofni þau lög, sem hann er að framkvæma nú og hefur ekki lagt til neinar verulegar breytingar á, að öðru leyti en hækkun tekjutryggingarinnar. En það má segja, að hækkun tekjutryggingarinnar, sem var gerð af núv. ríkisstj., hafi í fyrsta lagi auðvitað gert þetta svokallaða jaðarvandamál, sem hæstv. ráðh. vill nefna svo, að stærra vandamáli en áður. Í öðru lagi hefur það verið upplýst við þessar umr., að einungis munar um 8% af heildarútgjöldum almannatrygginganna um þetta ákvæði. Ég er ekki með þessu að draga neitt úr gildi ákvæðisins fyrir það fólk, sem fær þessar greiðslur. Það liggur í augum uppi, að það á við sérstök vandamál að stríða, sem yrðu e.t.v. ekki leyst með öðrum hætti. En á hinn bóginn verður ekki dregin fjöður yfir það, það hefur komið greinilega fram hjá hæstv. ráðh: sjálfum, að ekki er um meiri réttarbót í heild að ræða en þetta, og var þó þetta ákvæði fyrr í l., þannig að hækkunin frá því, að það var sett í lög árið 1971, og hækkunin, sem hæstv. núv. ríkisstj. gerði á því, er ekki einu sinni þessi stærð. Aftur á móti felldi núv. ríkisstj. niður sérstakan skattfrádrátt aldraðra upp á 46 þús. kr. fyrir einstakling og 76 þús. fyrir hjón. Það stendur því alveg óhaggað, sem stóð í þessu bréfi Bæjarpóstsins, að ríkisstj. gaf aldraða fólkinu með annarri hendinni og tók með hinni.

Hún gerði fleira. Hún felldi niður nefskatta, sem ekki voru á gamla fólkinu, og hagræddi með því vísitölunni, þannig að vísitalan mælir ekki aldraða fólkinu bætur í samræmi við hækkanir á verðlagi, eins og verið hefði. Þetta hafa hv. núv. stjórnarsinnar raunverulega viðurkennt margir hverjir í blaðaskrifum, þegar ríkisstj. neyddist til þess að leiðrétta skattalögin.

Ég tel, að það hefði kannske verið réttara hjá hæstv. ráðh. að kalla þessar aðfarir sýndarmennsku af allra versta tagi. Hann talaði um það hér, að það þyrfti að afla fjár til réttarbóta á almannatryggingal., menn mættu ekki koma fram með óraunhæfar till., það þyrfti að afla fjár til þess. Þetta er alveg hárrétt. En þegar lögin 1971 voru sett, voru fjárlög afgreidd, og ég man ekki betur en hér á hv. Alþ. hafi sérstaklega verið talað um það sem einn af vondum arfi frá viðreisnarstjórninni, að afla þyrfti fjár til að framkvæma þessi lög. Ekki getur það bæði verið sýndarmennska af allra ómerkilegasta tagi að setja þessi lög og líka vondur arfur, þegar afla þarf til þeirra fjár, og þá sé á það bent, að það sé vegna viðreisnarstjórnarinnar, sem þurfi að afla þessara tekna og hækka skatta af þeim sökum.

Mér sýnist, að nauðsynlegt sé að gera heildarúttekt á kjörum aldraðra, þannig að það komi skýrt í ljós, hvað núv. ríkisstj. hefur raunverulega gert gagnvart kjörum þeirra. Hún hefur komið fram með ýmsar réttarbætur, eins og t.d. tekjutrygginguna, sem er mjög óveruleg, miðað við heildarupphæð almannatryggingagreiðslna. En hún hefur tekið þetta aftur með hinni hendinni með sköttum, sem voru óverulega leiðréttir. Allt þetta er hægt að kalla sýndarmennsku, — ég vil ekki segja eins og hæstv, ráðh, af ómerkilegasta tagi, ég er vonandi ekki eins óorðvar maður og hann, — en þetta er sýndarmennska.

Ég vil svo aðeins ljúka þessum umr. af minni hálfu með því, af því að hæstv. ráðh. man aldrei eftir öðru, þegar hann er að tala um þetta margumtalaða tekjutryggingaákvæði og jaðarvandamál sitt, en lesendabréfi Morgunblaðsins, að vitna í aðra grein í Þjóðviljanum, ekki þá, sem ég vitnaði í áðan. Þar skrifar maður grein um þetta mál og lýsir því, hvernig það, að menn vinna sér fyrir einhverjum tekjum, dregur af rétti þeirra til þess að fá greitt úr almannatryggingunum. Hann víkur að vísu mikið máli sínu að hæstv. félmrh., Hannibal Valdimarssyni, og þykist vera að skamma hann undir rós, af því að þetta er í Þjóðviljanum. Sjálfsagt meinar hann Magnús Kjartansson, hæstv. heilbrmrh., því að hann ber ábyrgð á framkvæmd almannatryggingal. Hann segir hér, þessi ágæti maður, þegar hann er búinn að lýsa þessu öllu undir fyrirsögninni „Smásálarskapur“:

„Ég sé ekki annað en ríkisstj. sé með þessum smásálarskap að hvetja gamla fólkið, sem hefur vilja til smáígripavinnu eftir sínu starfsþreki, að sitja heima, því að ég held, að það séu fáir, sem hafa löngun til að vinna og láta allar atvinnutekjurnar renna til ríkissjóðs óskertar.“

Þetta segir Þjóðviljinn. Þetta mættu hv. stjórnarsinnar allir hafa í huga, þegar þeir eru að tala um, að það sé einungis Morgunblaðið og við sjálfstæðismenn, sem litum svo á, að þessi ákvæði hafi letjandi áhrif á fólk.

Ég vil svo að lokum aðeins undirstrika það, sem raunar hefur komið hér fram hjá hv. 12. þm. Reykv., að við, sem erum meðflm. að þessu frv., teljum, að þarna sé um að ræða algera lágmarksleiðréttingu á þessu svokallaða jaðarvandamáli, sem hæstv. ráðh. hefur nefnt svo og er ágætisheiti á þessu fyrirbrigði, þó að hann hafi ekki enn skýrt nægjanlega, í hverju vandamálið sjálft er fólgið.