28.11.1972
Sameinað þing: 21. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 901 í B-deild Alþingistíðinda. (606)

84. mál, Sigölduvirkjun

Geir Hallgrímsson:

Herra forseti. Ég vil aðeins gera nokkrar aths. Í fyrsta lagi vil ég geta þess, að tafir hafa orðið á samningaumleitunum við Alþjóðabankann og í sambandi við hönnunarundirbúning Sigölduvirkjunar, en hvort tveggja þetta er tengt. Tafirnar á samningunum við Alþjóðabankann stafa af því, að Alþjóðabankinn dregur í efa fjárhagslegan grundvöll Sigölduvirkjunar án stóriðjusamninga.

Í öðru lagi vil ég benda á það, að allar horfur eru nú á því, að fyrsta vél verði ekki tekin í notkun í Sigölduvirkjun 1. des. 1975, heldur fyrst 1. apríl 1976, en almenningsþörf fyrir aukna raforku veturinn 1975–1976 er svo mikil. að fyrirsjáanlegur er orkuskortur, ef þessi töf verður að veruleika, og þá verður að kaupa gastúrbínustöð, sem auðvitað mundi auka virkjunarkostnaðinn í heild mjög mikið.

Í þriðja lagi er það svo, að þrátt fyrir sölu á 20 megawöttum til ÍSALs og hámarkssölu til hitunar samkv. bjartsýnustu áætlunum, — áætlunum, sem m.a. eru gerðar til þess að sannfæra Alþjóðabankann og ég skal út af fyrir sig ekki draga í efa, þá verður fyrirsjáanleg 25% hækkun á heildsöluverði rafmagns frá Landsvirkjun, ef ekki nást samningar um rafmagnssölu til stóriðju.

Í fjórða lagi vil ég svo benda á það, að orkusölusamningur til stóriðju í tengslum við Sigölduvirkjun þarf nú að vera helmingi hærri en hann var áður. Hæstv. iðnrh. gagnrýndi, þegar orkusölusamningur frá Búrfelli var gerður að upphæð 2.5–3 mills, að þar væri um allt of lágt raforkuverð að ræða. Nú þyrfti slíkur samningur að nema 5–6 mills miðað við virkjunarkostnað annars vegar að Búrfelli og hins vegar að Sigöldu. Ég er mjög ánægður, að hæstv. ráðh. er hjartsýnn um, að slíkir samningar geti tekizt, því að ekki verður um hann trúað, að hann sé að hugsa um óhagstæðari samninga en hann gagnrýndi svo mjög áður fyrr.