28.11.1972
Sameinað þing: 21. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 905 í B-deild Alþingistíðinda. (612)

278. mál, Laxárvirkjun III

Heilbr:

og trmrh. (Magnús Kjartansson): Herra forseti. Fyrsta fsp. hv. þm. er þessi: „Hefur iðnrh. ekki í huga að freista þess að afla sér lagaheimildar til að láta fullbyggja Laxárvirkjun III?“

„Iðnrn. hefur margsinnis áður lýst yfir því, að virkjanir í Laxá umfram þær, sem nú er unnið að, séu ekki á dagskrá. Þar af leiðir, að ekki verður leitað neinnar lagaheimíldar um frekari virkjanir þar.

Þá spyr hv. þm.: „Hvert væri kostnaðarverð hennar á núgildandi verðlagi?“

Virðist mér, að þar muni vera átt við þá Laxárvirkjun, sem yrði með 23 metra stíflu. Sigurður Thoroddsen verkfræðingur tjáir mér, að heildarkostnaðarverð slíkrar virkjunar yrði 720 millj. kr. að meðtöldum kostnaði við háspennulínu frá Laxá til Akureyrar. En kostnaður við þá virkjun, sem nú er verið að vinna að og er senn lokið, er 473 millj.

Í þriðja lagi spyr hv. þm.: „Hvert væri kostnaðarverð á rafmagni frá henni miðað við stöðvarvegg á Akureyri?“

Mér skilst, að þar sé átt við, hvert yrði kostnaðarverð á rafmagni frá þessari stóru virkjun, sem ekki er fyrirhuguð af iðnrn. hálfu. Sigurður Thoroddsen verkfræðingur hefur tjáð mér, að meðalorkukostnaður 1. og 2. stigs Laxár III ásamt tengilínu yrði 70 aurar á kwst., en orkukostnaður við fullnýtingu 1. og 2. stigs yrði 58 aurar á kwst. Meðalorkukostnaður hins vegar frá því stigi Laxár, sem nú er unnið að, er 1.10 kr. á kwst., og orkukostnaður við fullnýtingu frá þeirri stöð yrði 98 aurar á kwst. Það er þannig ljóst, eins og ég hygg, að allir viti, að með því að stækka þessa virkjun fæst þar hagkvæmara orkuverð, þó að þar sé ekki um að ræða hagkvæmara orkuverð en fæst úr mörgum öðrum virkjunum. Þetta var rn. að sjálfsögðu fullkunnugt um, þegar það tók þá ákvörðun að leita ekki eftir frekari lagaheimild um virkjanir á þessum stað. Ákvörðun rn. um það efni byggðist á allt öðru, sem sé því, að önnur sjónarmið beri stundum að setja ofar en hin efnahagslegu og svo beri að gera varðandi virkjun Laxár. Þetta vil ég, að komi skýrt fram. Ákvörðun rn. um, að ekki verði um frekari virkjanir að ræða í Laxá, er tekin út frá því einu sjónarmiði, að við ákvörðun um framtíð Laxár beri að setja önnur markmið ofar því að afla ódýrari raforku en takast mun með þeirri virkjun, sem nú er verið að ljúka.