28.11.1972
Sameinað þing: 21. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 907 í B-deild Alþingistíðinda. (614)

278. mál, Laxárvirkjun III

Heilbr.- og trmrh. (Magnús Kjartansson):

Herra forseti. Ég vil leiðrétta þá missögn hv. þm., að orkukostnaður frá Laxá III yrði 32 aurar á kwst. hað er hrein fjarstæða. Orkukostnaður þeirrar viðbótar, sem fengist með stíflu og línu til Akureyrar, yrði 32 aurar á kwst., en það byggist að sjálfsögðu á því, að inn í fyrri áfanga þessarar virkjunar, eins og hún var fyrirhuguð á sínum tíma, þann áfanga, sem nú er unnið að, var lagður mjög verulegur kostnaður með tilliti til þessa síðari áfanga, sem engin lagaheimild var þó fyrir. Þetta leiðir til þess, að sú virkjun, sem nú er unnið að þarna, verður mun dýrari en hún hefði ella orðið, ef unnið hefði verið að henni á þeim forsendum, að það yrði endanleg virkjun. En hún var öll miðuð við það, að hægt væri að bæta þarna við, enda þótt engin lagaheimild væri fyrir þessari viðbót. Reikningskúnstir eins og þær að leggja meginkostnaðinn á fyrri hlutann og taka svo hugsaðan seinni hluta út af fyrir sig eru auðvitað ekki í samræmi við nokkurn veruleika.

Svo var að heyra á hv. þm., að iðnrn. bæri einhverja ábyrgð á því, að orkuskortur kynni að verða á Norðurlandi í vetur. Þetta er mikil fjarstæða. Iðnrn. hefur ekki tafið framkvæmdirnar við Laxárvirkjun um einn einasta dag. Það hefur ekki staðið á neinu atriði, sem Laxárvirkjun hefur farið fram á til rn. í sambandi við það mál. Ef það verður orkuskortur á Norðurlandi í vetur, bera þeir menn einir ábyrgð á því, sem stjórnuðu raforkumálum fyrir minn tíma í stjórnarráðinu, því að þá voru teknar ákvarðanir um þær virkjanir, sem nú eiga að framleiða raforku handa Norðlendingum. Sú töf, sem orðið hefur á framkvæmdum við Laxá, stafar á engan hátt frá stjórnarvöldum, heldur stafar hún af því, að verkið hefur gengið miklum mun hægar en áætlað var, vegna þess að verktakarnir hafa ekki staðið við þá tímaáætlun, sem sett var. Þar við bætist svo að sjálfsögðu Laxárdeilan, sem allir þekkja, og það er að sjálfsögðu forsenda þess, að þessi virkjun geti hafið starfsemi, að það takist að ná sáttum í þessari deilu. Ég hef áður lýst því yfir hér á þingi, að ég geri mér vonir um, að slíkt megi takast. En það tekst að sjálfsögðu því aðeins, að allir menn hafi á því góðan vilja og leggi sig fram til þess að lægja þá miklu og alvarlegu óvild, sem komin var upp á Norðurlandi í sambandi við þetta mál. Ég vil beina því til hv. þm., að þeir geri sér ekki leik að því að blása þar að glæðum á nýjan leik. Ég hygg, að það sé skynsamlegt fyrir alla aðila að vinna að þessum málum af stillingu, og þá geri ég mér vonir um, að takast kunni sættir í þessu máli, áður en mjög langur tími líður.