18.10.1972
Neðri deild: 4. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 113 í B-deild Alþingistíðinda. (63)
18. mál, Landhelgisgæsla Íslands
Hæstv. ráðh. sagði, að það mundi greiða mjög fyrir samningaviðræðum, ef Bretar og Vestur-Þjóðverjar vildu nú vera svo góðir að fara út fyrir 50 mílna línuna, áður en samningar hæfust. Þá vil ég spyrja:
Hefur Vestur-Þjóðverjum og Bretum verið gert það ljóst, að þetta væri í sjálfu sér ekki nema eðlileg kurteisi, að þeir gerðu þetta, áður en að samningaborði væri setzt? Það má vel vera, að hæstv. forsrh. eða aðrir ráðh. í ríkisstj. hafi farið þess á leit við Breta, að þeir gerðu þetta, og gert þeim skiljanlegt, að það mundi greiða fyrir málinu. En hafi þeir ekki gert það, þá væri tímabært að gera það sem allra fyrst. Vegna þess, að nú er hættuástand á miðunum, ber brýna nauðsyn til að ganga sem fyrst úr skugga um það, hvort nokkrir möguleikar eru til samkomulags. Séu þeir möguleikar ekki fyrir hendi, er mikil þörf á að gera ýmsar ráðstafanir í þessu máli, til þess að tryggt verði, að við getum unnið fullan sigur sem fyrst.