29.11.1972
Efri deild: 18. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 942 í B-deild Alþingistíðinda. (640)

94. mál, orkulög

Steingrímur Hermannsson:

Herra forseti. Ég stend vissulega ekki upp til þess að andmæla þessu frv. Þvert á móti vil ég gjarnan í upphafi míns máls lýsa yfir stuðningi mínum við það frv., sem er til umr. Ég vil einnig lýsa yfir ánægju minni með þá miklu framkvæmd, sem nú er á rafvæðingarmálum, þar sem ætlunin er að koma rafmagni frá samveitum til þeirra bæja og býla, sem unnt má telja, að geti fengið slíka orku, og að framkvæma það á næstu þremur árum.

Ég stend upp fyrst og fremst til þess að leggja ríka áherzlu á, að sú fyrirgreiðsla, sem þetta frv. gerir ráð fyrir, má alls ekki verða til þess að draga á nokkurn máta úr því, að býli fái rafmagn frá samveitum. Okkur er öllum kunnugt um það, að sú áætlun, sem lögð var fram á síðasta þingi, er nú til endurskoðunar, og við vitum, að það hafa komið fram ýmsar mjög góðar hugmyndir til fjölgunar þeim býlum, sem gætu fengið slíka orku frá samveitum, og þó innan þeirra marka, sem talin hafa verið hagkvæm og skynsamleg. Þetta mun nú vera allt í endurskoðun.

Ég get ekki neitað því, að mér hefur stundum þótt, að þau sjónarmið, sem ráðið hafa því, hvaða býli fá rafmagn frá samveitum, séu ekki nægilega mannleg. Iðulega virðist gæta listarinnar. Stundum virðist fremur leitazt við en ég vil fyrir mitt leyti sætta mig við að útiloka. einstök býli, sem eru á mörkum, heldur en að reikna þau inn, ef ég má orða það svo.

Þetta vildi ég gjarnan láta koma hér fram, um leið og ég lýsi sérstakri ánægju minni með rafvæðingarmálin sem heild. Ég vil einnig taka það fram, að ég ber fullt traust til þeirra embættismanna, sem störfin vinna. Það er mannlegt að reyna að spara, eins og kallað er, en ég held, að það þurfi að taka ríkara tillit til hinna mannlegu sjónarmiða en í sumum tilfellum er gert, að því er mér virðist. Því er það von mín, að sú endurskoðun, sem nú fer fram, verði til þess að fjölga heim býlum, sem fá rafmagn frá samveitum. Ég get jafnframt getið þess hér, að í sambandi við framkvæmdir í Vestfjarðakjördæmi, sem mér er að sjálfsögðu kunnugastar, liggja fyrir slíkar till. úti.