29.11.1972
Efri deild: 18. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 944 í B-deild Alþingistíðinda. (642)

94. mál, orkulög

Þorv. Garðar Kristjánsson:

Herra forseti. Ég vil eins og þeir, sem hér hafa talað á undan mér, lýsa ánægju minni með þetta frv. Það stefnir vafalaust í rétta átt, því að gera verður ráð fyrir, að við komumst aldrei svo langt í rafvæðingu landsins, að öll býli undantekningarlaust njóti rafmagns frá samveitum. Þess vegna verður að gera ráð fyrir því, að einhver býli þurfi sérstaka aðstoð, eins og þetta frv. gerir ráð fyrir.

En ég vil leyfa mér að leggja áherzlu á það sjónarmið, sem fram kom hjá 1. þm. Vestf., að þessi stuðningur við einkarafstöðvar verði ekki til þess, að það verði síður haldið áfram þeirri viðleitni, sem hefur markað þessi mál frá upphafi, að sem flest býli njóti rafmagns frá samveitum. Það þarf ekki að færa rök fyrir því, hvað það er hagkvæmara fyrir ábúendur jarðanna að vera þannig settir, heldur en þurfa að standa í því að reisa einkarafstöðvar.

Ég vil taka undir þær ábendingar, sem fram komu í ræðu hv. 6. þm. Sunnl. Mér finnst, að það sé nauðsynlegt að taka þær til gagngerðrar athugunar í þeirri n., sem kemur til með að hafa þetta mál til meðferðar.

En ég vil leyfa mér að vekja athygli á einu atriði. Í þessu frv. er talað um lán til að koma upp mótorrafstöðvum. Þetta, sýnist mér, nær ekki til þess, ef einstök býli eru þannig sett, að það kunni að vera hagkvæmt og jafnvel hagkvæmara að koma upp vatnsaflsstöðvum. (Heilbr.- og trmrh.: Það er þegar í lögunum.) — Ráðh. segir, að það sé í orkulögunum, — mig grunaði það reyndar, en var ekki búinn að fá tækifæri til þess að fletta því upp, en ég sé, að Stjórnartíðindin eru nú, meðan ég er að tala, komin á borðið við sæti mitt.

En ég vil leyfa mér þá að spyrja, hvort þau ákvæði í orkul. ná eins langt og gert er ráð fyrir í þessu frv., að aðstoðin nái, ef um mótorrafstöðvar er að ræða, þ.e.a.s. að samkv. gildandi orkul. sé heimilt að veita lán fyrir öllu kostnaðarverði vatnsaflsstöðva. Ef svo er ekki, þá tel ég, að það sé þörf á því að koma slíku ákvæði inn í þetta frv.