30.11.1972
Sameinað þing: 23. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 968 í B-deild Alþingistíðinda. (658)

70. mál, öryggismál Íslands

Ragnar Arnalds:

Herra forseti. Ég vil taka undir það með hæstv. utanrrh., að till. sú til þál., sem hér er til umr., er fullrar athygli verð. Það verður ekki annað séð en hér sé um að ræða athyglisverða breytingu á stefnu Alþfl. varðandi þau mál, sem hér um ræðir, og raunverulega sé um það að ræða, að Alþfl. hafi nálgazt stefnu ríkisstj. á þessu sviði.

Það mikilvægasta í þessari till. er að sjálfsögðu það, að í henni kemur fram það grundvallarviðhorf, að hér eigi að stefna að því, að ekki séu herstöðvar í landinu á friðartímum og raunverulega alls ekki, hvort heldur ástandið er á þennan veginn eða hinn í heiminum. Ég held, að þetta sé kjarni málsins, að till. gengur út frá því, að hér sé ekki erlendur her. Það er langt síðan Alþfl. hefur komið fram með slík sjónarmið, og ég held, að það sé fyllsta ástæða til þess að óska flokknum til hamingju með þessa endurheimtu stefnu sína.

Í grg. till. eru miklar vangaveltur um skipaferðir umhverfis Ísland og þá sérstaklega um Rauða flotann, og það reyndist vera það mál, sem var hv. síðasta ræðumanni, hv. 1. þm. Reykv., hugstæðast í ræðu hans hér áðan.

Það er út af fyrir sig alveg rétt, sem fram kemur í grg., að Bandaríkjamenn og Engilsaxar almennt hafa verið allsráðandi á Atlantshafi í margar aldir og haft þar alger yfirráð. Það er einnig rétt, sem þar kemur fram, að Sovétríkin hafa ráðizt í miklar skipabyggingar og byggt upp mikinn flota, sem siglir um flest heimsins höf. Þetta er í sjálfu sér ekkert umdeilt. Ég held líka, að þessi þróun geti tæpast komið neinum á óvart að einu eða neinu leyti. Það kann að vera visst áhyggjuefni fyrir hershöfðingja í Atlantshafsbandalaginu og í Bandaríkjunum, að fleiri sovézk herskip sigla um Atlantshafið en áður var. Það er þeirra starf að hafa áhyggjur af þess háttar hlutum. Ef þeir hefðu það ekki, héldu þeir ekki atvinnu sinni, og það er þeirra verkefni að velta fyrir sér valdahlutföllunum milli stórveldanna. En ég tel algerlega fráleitt af okkur Íslendingum að fara að gera mikið veður út af þessum staðreyndum, enda er það svo, að þær virðast ekki geta breytt einu eða neinu um stöðu okkar.

Það er nú svo og er nú sem betur fer flestum kunnugt, að vopnaburður hefur breytzt mjög verulega frá því, sem var fyrir 30 árum, þegar skipaferðir á Norður-Atlantshafi höfðu úrslitaþýðingu og Ísland var í lykilaðstöðu hvað skipaferðir snerti milli Evrópu og Ameríku. Það hefur orðið mjög veigamikil breyting á vopnaburði, og herskip skipta ekki jafnmiklu máli, þegar á heildina er litið, eins og áður var. Og ég held, að flestir hljóti að geta verið sammála um það, að spurningin um erlenda hernaðarinarás á Íslandi velti tæpast á því, hversu mörg skip af þessu eða hinu þjóðerninu eru á sveimi hér í kringum landið. Það er áreiðanlegt, að þeir, sem hefðu áhuga á því að ná tangarhaldi á Íslandi, gætu haft til þess allmiklu fleiri ráð heldur en þau að fylla fyrst hafið af skipaflota.

Ég held, að það sé sízt af öllu ástæða fyrir okkur Íslendinga til þess að láta hræða okkur með stórum og miklum tölum um fjölda erlendra skipa á höfunum hér í kring. Ég held, að við eigum sem sagt ekki að láta hræða okkur frá því að lifa einir í þessu landi án erlendrar hersetu, og við eigum að hafa það skýrt fyrir augum, að bezta vörn íslendinga er einmitt sú að flækja sig ekki í stríðskerfi annars hvors hernaðaraðilans, heldur er okkar vörn fyrst og fremst í því fólgin að reyna að halda okkur utan við þess konar hernaðarbrölt.

Í till. Alþfl. er vikið að þeim möguleika, að Ísland geti orðið óvopnuð eftirlitsstöð. Ég tel, að þarna sé um athyglisverða hugmynd að ræða og vil vekja á því athygli, að þarna er í raun og veru um sama atriði að ræða og það, sem varpað var fram hér á Alþ. í fyrra, reyndar í svolítið öðru samhengi, en þá af hv. 5. þm. Vesturl., Jónasi Árnasyni, þegar hann vakti athygli á þeim möguleika, að Norður-Atlantshaf yrði lýst friðað eða friðlýst svæði. Það er augljóst, að til þess að sú hugmynd verði að veruleika, þarf að sjálfsögðu að ná samkomulagi um eftirlit á þessu svæði. Og Jónas benti réttilega á það, að þá kæmi einmitt til greina, að Keflavíkurflugvöllur yrði óvopnuð eftirlitsstöð í þessu skyni. Ég verð hins vegar að viðurkenna það, að mér finnst það heldur ógeðfelld hugsun, sem kemur fram í till. þeirra flm., að þessi óvopnaða eftirlitsstöð verði í sambandi við það öryggisbandalag, sem landið er aðili að, eins og orðað er í till. Mér lízt stórum betur á niðurlag þessarar mgr., þar sem gefið er í skyn, að til greina kæmi, að eftirlitsstöðin yrði á vegum Sameinuðu þjóðanna. Ég vil sem sagt láta það hér koma fram, að ef flm. till. væru reiðubúnir að hnika þar til orðalagi í nokkrum, — að vísu veigamiklum atriðum, þannig að þessi óvopnaða eftirlitsstöð yrði hugsanlega á vegum Sameinuðu þjóðanna, — yrði ekki á vegum hernaðarbandalags, ekki í þágu þröngra hernaðarhagsmuna, heldur í þágu allra þjóða, bæði þeirra, sem eru í hernaðarbandalögum, og þeirra, sem eru ekki í hernaðarbandalögum, — ef þannig gæti tiltekizt, að unnt væri að ná samkomulagi um að hnika til orðalagi, bæði hvað. þetta snertir og reyndar nokkur fleiri atriði í till., þá teldi ég ekki óhugsandi, að Alþfl. og Alþb. gætu átt samleið í þessu mjög svo mikilvæga máli.