04.12.1972
Efri deild: 19. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 980 í B-deild Alþingistíðinda. (669)

23. mál, framkvæmd eignarnáms

Frsm. (Björn Fr. Björnsson):

Herra forseti. Allshn. þessarar hv. d. hefur orðið sammála um að mæla með samþykkt þess frv., sem hér er til 2. umr. Þetta frv. fjallar um framkvæmd eignarnáms og á að koma í stað eldri löggjafar um það efni eða laga nr. 61 frá 1917.

Í stjórnarskrá okkar segir í 67. gr.: „Eignarrétturinn er friðhelgur. Engan má skylda til að láta af hendi eign sína, nema almenningsþörf krefji. Þarf til þess lagafyrirmæli, og komi fullt verð fyrir.“ Þrátt fyrir fortakslaust orðalag 1. málsliðar hafa eignarréttindi, svo sem alkunna er, bæði fyrr og síðar verið margvíslegum takmörkunum háð. Strax segir framhald þessarar tilvitnuðu greinar frá veigamikilli takmörkun á eignarrétti almennt. Þetta sérstaka frávik, sem hér um ræðir, kallast eignarnám. Eignarnám er í því fólgið, að eigandi er skyldaður að láta eign sína af hendi og stofnast nýr réttur samsvarandi til handa öðrum aðila. Þó getur fjárnám því aðeins farið fram, að til komi lagaheimild. Lagaheimildirnar eru með tvennu móti: lagaheimild, sem er veitt í eitt skipti fyrir öll. þegar vissar þarfir eru fyrir hendi, eða heimild veitt í lögum í ákveðnu tilviki og á tiltekinni eign. Þá er eitt skilyrðanna til eignarnáms, að almenningsþörf krefji. Hér mun það vera löggjafarvaldsins að kveða á um þörfina. Loks skal fullt verð koma fyrir þau réttindi, sem eignarnámi eru tekin.

Um framkvæmd varðandi þetta ákvæði fjallar frv., sem hér er til umr., þ.e. um þær réttarreglur, sem fylgja skal við ákvörðun eignarnámsbóta. Að sjálfsögðu hlýtur það að vera hverju sinni matsatriði, hvað sé fullt verð. Það skiptir því verulegu máli, á hvern hátt matsnefnd er skipuð. Einnig þarf til að koma vönduð málsmeðferð ágreiningsmála út af Fjárhæð bótanna. Rök þurfa að koma fram sem allra gleggst, og allar eða sem flestar staðreyndir, sem matsgerð varða, séu matsnefnd hverju sinni tiltækar.

Eignarnámsmálin eru mjög viðkvæmur þáttur í mannlegum viðskiptum, og þess vegna ber að tryggja sem allra bezt, að eigi sé eignarnámsþoli sviptur eign sinni án þeirra bóta, sem honum ber. Enn fremur verður að hafa fyllstu hliðsjón af hagsmunum eignarnema, þ.e.a.s. þess, sem óskar eftir eignarnáminu. Bæði er það, að ekki má ofþyngja eignarnema með fjarstæðukenndri greiðslubyrði og eigi fremur tefja um skör fram nauðsynlegar athafnir af eignarnemans hálfu. Um þessi atriði geymir frv. mikilsverð ákvæði, sem öll eru að áliti allshn. til mikilla bóta.

Í frv. er fyrst og fremst gert ráð fyrir þeirri breytingu frá eldri löggjöf um framkvæmd eignarnáms, að sérstök matsnefnd skeri úr ágreiningi um fjárhæð eignarnámsbóta. Fastskipaður sé aðeins formaður matsnefndar svo og varaformaður hennar. Formaðurinn kveður til meðferðar hvers einstaks máls tvo eða fjóra menn eftir því, hvernig málinu er háttað. Hér er gengið út frá því, og um það greinir í grg. fyrir frv., að valið sé úr sem þrengstum hópi, án þess þó að komi til skorts á nægilegri staðarþekkingu matsnefndarmanna eða sérfræðilegri kunnáttu. Með þessum hætti og skipan matsnefndar á þennan veg er reynt að koma á nauðsynlegu og sem beztu samræmi og tryggja sem allra bezt öryggi í störfum matsnefndar. Samkv. núgildandi eignarnámslögum eru matsstigin tvö, þ.e.a.s. undirmat og yfirmat. Við þessa breytingu má gera ráð fyrir því, að matsstörfin taki mun skemmri tíma yfirleitt og kostnaður af mati hverju sinni verði minni en oft hefur verið áður. Auk þess yrði hinn skipaði formaður sérstaklega vegna reynslu þjálfaður í þeim verkefnum, sem. fyrir matsnefnd kunna að koma. Ágreiningi út af meðferð eignarnámsmáls og ákvörðun um bætur má svo skjóta til dómstólanna, og þeir eiga þannig endanlegt úrskurðarvald um fjárhæð bótanna. Það er náttúrlega ekki líklegt, að áfrýun til dómstóla hraði máli, heldur muni málið ganga mun seinna fyrir sig, þegar svo stæði á. En alla vega mundi áfrýjun til dómstóla í ágreiningsmáli um úrskurð matsnefndar leiða til öruggari málaloka.

Hingað til hefur stundum þótt á skorta nægilega rökstuddar og vandaðar forsendur fyrir matsfjárhæð. Í frv. er ákvæði, sem tryggja á sem fyllstar og skýrastar forsendur að niðurstöðu. Til ágreiningsatriða beggja aðila skal matsnefnd hverju sinni taka skýra afstöðu. Áður hefur það nokkuð tíðkazt, eftir því sem mér er bezt kunnugt, að í niðurstöðu mats hafi — aðeins verið ákveðin fjárhæð, en harla lítt rökstudd.

Kostnað af starfi matsnefndar á að greiða úr ríkissjóði, en matsnefnd skal ákveða í úrskurði, þegar ríkið sjálft er ekki eignarnemi, hverja greiðslu eignarnemi skal inna af hendi til ríkissjóðs vegna matsins. Í frv. segir enn fremur, að settar skuli nánari reglur um greiðslu þessa kostnaðar svo og þóknun til nm. Hér er nýmæli og væntanlega til mikilla bóta. Allan kostnað af rekstri matsmáls, sem hæfilegur telst, ber eignarnema að greiða til eignarnámsþola.

Formaður matsnefndar á að varðveita alla úrskurði matsnefndar. Þetta ákvæði er mikilvægt nýmæli. Það verður greiðarí aðgangur að úrlausnum matsnefndar, þar sem finna má þær á einum stað, og svo má ætla, að meira samræmi verði í gerðardómsmálum og ekki sízt þeim, sem að einhverju eða öllu leyti eiga sammerkt.

Það er álit allshn., að frv. sé í heild til aukinnar festu, bæði í forsendum og að því er varðar niðurstöður matsmáls, og til meiri nákvæmni í útlistun á þeim meginatriðum, sem taka verður hliðsjón af við meðferð hins vandasama og ábyrgðarmikla málaflokks, þar sem eignarnámsmálin eru.

Allshn. leitaði til þriggja aðila um umsagnir og fékk umsagnir frá tveim þeirra, þ.e.a.s. frá Búnaðarfélagi Íslands og Sambandi ísl. sveitarfélaga. N. hafði sent frv. til umsagnar þriðja aðila þ.e. Hús- og landeigendasambands Íslands, en þaðan hefur ekki enn borizt umsögn um málið. Þeir, sem sendu umsögn, mæltu eindregið með samþykkt frv.

Ég vil geta þess, að í umsögn Sambands ísl. sveitarfélaga kom fram, að stjórn þess leggur mikla áherzlu á, að lokið verði sem fyrst endurskoðun lagaákvæða þeirra, sem í þáltill. frá 22. apríl 1970 er gert ráð fyrir. Í þessari þáltill. var fyrst og fremst farið fram á, að endurskoðuð yrðu lög um eignarnám, og það hefur verið gert með frv. þessu, og enn fremur var vikið að því í þáltill., að lögfestar yrðu vissar meginreglur, sem gætu orðið til leiðbeiningar við ákvörðun eignarnámsbóta. Þetta atriði, sem þannig kemur fram í umsögn Sambands ísl. sveitarfélaga, er mjög mikilvægt. Það er hvorki meira né minna en annar og raunar höfuðþátturinn í eignarnámsmálameðferð og í raun og veru sá, sem sker alveg úr um það, að eðlilegri niðurstöðu verði náð. En það eru margvísleg vandkvæði á því að taka í lög afgerandi ákvæði um fjárhæð eignarnámsbóta. Stjórnarskrárgreinin, sem ég gat um, kveður á um fullar bætur, og þetta ákvæði setur löggjöf, sem ætti að fjalla um fjárhæð bótanna, ákveðnar skorður, sem matsnefnd verður að virða í hverju einstöku dæmi, þannig að tæmandi reglur um fjárhæð fjárnámsbóta yrðu því vart settar. Hitt er svo allt annað mál. að það er líklegt, að festa megi með lögum vissar grundvallarreglur um bótafjárhæð eða hvernig hún skuli fundin, svo sem til leiðbeiningar, og gæti komið að verulegu gagni. En hvernig sem á þessa hlið málsins er litið, er ákvörðun um bæturnar oftast býsna flókið og mjög vandmeðfarið mál, að ekki sé talað um, hversu viðkvæmt það er aðilum og hætt við margs konar árekstrum.

Í áliti þeirrar n., sem undirbjó það frv., sem við ræðum hér, kemur fram, að n. hefur talið rétt að semja frv. til l. um fjárhæð fjárnámsbóta, hvað sem öðru líður, og þá eingöngu að því er varðar eignarnám á fasteignum. Ég tel sennilegt, að n. hafi þegar hafið störf í þessu skyni.

Ég hef þá í allra stærstu dráttum vikið að því, hverjum breytingum frv. gerir ráð fyrir á eldri löggjöf um sama efni.

Allshn. þessarar hv. d. telur, að þetta frv. sé til mikilla bóta á núgildandi löggjöf, — löggjöf, sem er orðin ærið gömul eða frá árinu 1917. Slíkar eru þær breytingar, sem hafa orðið á þjóðlífsháttum í landi okkar, og þá ekkert síður breytingar á því sviði, sem snertir það efni, sem hér er fjallað um. Eins og ég sagði í upphafi, hefur allshn. einróma mælt með samþykkt frv. Læt ég þá máli mínu lokið, herra forseti.