04.12.1972
Efri deild: 19. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 983 í B-deild Alþingistíðinda. (671)
54. mál, alþjóðasamningur um varnir gegn mengun sjávar
Frsm. (Halldór Kristjánsson):
Herra forseti. Það er óþarfi að eyða hér mörgum orðum að því, að eyþjóð eins og Íslendingar hefur eðlilega ríkan skilning á þýðingu þess, að hafið sé svo hreint og ómengað sem verða má. Því mun ekki þykja nema eðlilegt og sjálfsagt, að sjútvn. hefur mælt einróma með samþykkt þessa frv., sem er ekki um annað en heimild fyrir ríkisstj. til þess að staðfesta fyrir Íslands hönd alþjóðasamning, sem gerður var 15. febr. 1972, um varnir gegn mengun sjávar vegna losunar úrgangsefna frá skipum og flugvélum. Það er svo annað mál. að sumum kann að finnast, að hér hefðu mátt vera einbeittari ákvæði og viðurlög meiri, en um það er ekki að ræða, en enginn ágreiningur er um það, að samningurinn miði í rétta átt.