04.12.1972
Efri deild: 19. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 987 í B-deild Alþingistíðinda. (675)

29. mál, rannsóknir í þágu atvinnuveganna

Páll Þorsteinsson:

Herra forseti. 1. flm. þessa frv., hv. 1. þm. Vestf., hefur gert svo skýra grein fyrir málinu í heild, að ég þarf engu við það að bæta. En ég kvaddi mér hljóðs í því skyni að segja hér fáein orð í sambandi við brtt. á þskj. 121.

Frv. um þetta efni var borið fram á síðasta þingi. Þá var þannig gengið frá málinu, að það voru taldir upp nokkrir staðir, þar sem starfrækja skyldi rannsóknastofu fiskiðnaðarins, og þessir staðir, sem taldir voru þá upp í frv., eru Ísafjörður, Sauðárkrókur, Húsavík, Höfn í Hornafirði og Vestmannaeyjar. Þegar þetta frv. fékk athugun í n., þá minnir mig, að það yrði niðurstaða n. að fella niður þessa upptalningu á einstökum stöðum, en orða frvgr. almennt þannig, að það skuli starfrækja rannsóknastofur, a.m.k. eina í hverjum landsfjórðungi. Og ég ætla, að orðalag 1. gr. frv., sem hér liggur fyrir, sé mjög í samræmi við það, sem n. lagði til við athugun málsins á síðasta þingi. Það liggur því í augum uppi, að hér er um tvenns konar til högun að ræða, annars vegar þá, að lögin séu almennt orðuð, án þess að telja upp einstaka staði, en það sé meginefni lagagr., að það skuli reisa a.m.k. eina rannsóknastofu í hverjum landsfjórðungi. Hin tilhögunin á málinu er sú, sem upphaflega var lagt til, að lögfesta vissa, tiltekna staði, þar sem þessar rannsóknastofur skulu reistar. Mér þykir eðlilegt, að hér sé haft samræmi á og annaðhvort séu teknir til vissir staðir í öllum landsfjórðungum eða lagagr. verði almennt orðuð og það sé lagt á vald ráðh. að koma þessu á fót og ákveða staðarval. En í brtt. á þskj. 121 felst það, að hvorugri þessari leið er fylgt til hlítar, heldur er lagt til í þeirri brtt. að lögbjóða að þessu leyti tvo staði, þ.e.a.s. í Sunnlendingafjórðungi og Vestfirðingafjórðungi, en láta það liggja á milli hluta eða láta það ekki koma fram í lagagr., hvar slíkar rannsóknastofur skuli reistar á Austurlandi og Norðurlandi. Ég felli mig ekki vel við þessa afgreiðslu. Mér finnst eðlilegt, að þarna sé fylgt hreinni línu á annan hvorn veginn. Og ég fæ ekki séð af því, sem fram hefur komið í umr. um þetta mál, að Vestmannaeyjar eða Ísafjörður séu í nokkurri hættu við framkvæmd þessa máls, þó að frvgr. yrði samþ. eins og hún liggur fyrir í frv. sjálfu. Það hefur komið fram, að vísir að svona stöð sé þegar fyrir hendi í Vestmannaeyjum, og ég hygg, að það muni enginn óska þess eða fara fram á það, að þeirri starfsemi, sem þar er þegar komið á fót, verði hætt eða hún lögð niður. Og það hefur einnig komið fram í umr., að þm. Vestfirðinga telja Ísafjörð vel valinn og sjálfsagðan stað fyrir þessa starfsemi á Vestfjörðum, og vitanlega mundi það styrkja aðstöðu Ísafjarðar, ef kæmi inn í fjárlagafrv. nú fjárveiting til slíkrar stöðvar, og meira að segja mætti láta það koma fram í fjárl., að þetta væri fjárveiting bundin við svona starfsemi á Ísafirði. Mér sýnist þess vegna þessi brtt. á þskj. 121 vera í fyrsta lagi óþörf og e.t.v. til þess fallin á vissan hátt að draga úr þeirri einingu, sem annars gæti verið um málið. Ég mun því ekki sjá mér fært að styðja þessa brtt.