05.12.1972
Sameinað þing: 25. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1012 í B-deild Alþingistíðinda. (709)

103. mál, framkvæmdaáætlun fyrir Norðurlandskjördæmi vestra

Fyrirspyrjandi (Pétur Pétursson):

Herra forseti. Á s.l. þingi, nánar tiltekið 2. maí s.l., var samþykkt þáltill., sem hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Alþingi ályktar að skora á ríkisstj. að fela Framkvæmdastofnun ríkisins að gera í samráði við Fjórðungssamband Norðlendinga sérstaka framkvæmdaáætlun fyrir Norðurlandskjördæmi vestra vegna hins mikla og stöðuga atvinnuleysis í kjördæminu.“ Nú er það að vísu svo, að atvinnuástand í kjördæminu hefur nokkuð batnað, en engu að siður eru undirstöður atvinnuveganna í þessu kjördæmi mjög veikar, eins og alþjóð veit. Ég geri mér grein fyrir því, að það þarf þó nokkurn undirbúning til að gera slíkar framkvæmdaáætlanir, en það eru liðnir 7 mánuðir síðan þessi samþykkt var gerð, og því hef ég leyft mér að beina þeirri fsp. til hæstv. forsrh.: „Hvernig gengur undirbúningur að gerð framkvæmdaáætlunar fyrir Norðurl. v., sem samþ. var á síðasta þingi?“ Og í annan stað: „Hvenær er gert ráð fyrir, að þessari áætlunargerð verði lokið?“ Ég legg mjög mikið upp úr því, að þessari áætlunargerð verði hraðað sem allra mest, því að mér finnst nauðsynlegt að reyna að koma þarna á ákveðinni áætlun, sem síðan verði hægt að fara að vinna eftir.