05.12.1972
Sameinað þing: 25. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1028 í B-deild Alþingistíðinda. (736)
285. mál, tryggingamál sjómanna
Fyrirspyrjandi (Guðlaugur Gíslason):
Herra forseti. Ég vil leyfa mér að þakka hæstv. trmrh. fyrir þær upplýsingar, sem hann veitti varðandi þetta mál. Ég held, að það sýni mjög vel, að þarna þarf einhverra aðgerða við, þegar það virðist vera mjög erfitt fyrir þm. og þá auðvitað alla aðra að finna út, undir hvaða mál tryggingarnar heyra. Hæstv. trmrh. benti á, að siglingar heyrðu undir samgrh., og er það án efa alveg rétt, enda rákum við okkur á það fyrir nokkru í n, þeirri, sem L. Í. Ú. kaus til þess að eiga viðræður við hæstv. ríkisstj. um þessi mál, og var ég þar einn nm., að það tók okkur þó nokkurn tíma að finna út, við hvaða ráðuneytisembættismenn við ættum raunverulega að tala. Við fórum í góðri trú upp í trmrn., hittum þar ráðuneytisstjórann, og hann hafði á þeim tíma ekki neinar upplýsingar að veita þessari n. frá L.Í.Ú. Af tilviljun hittum við einnig hæstv. samgrh., og þá kom í ljós, að hann taldi, að þessar tryggingar heyrðu undir hann og við hefðum ekki átt að vera neitt að ónáða annað rn. með þetta. Þegar þetta lá fyrir, að það virtist vera ágreiningur á milli rn. um það, undir hvort þeirra þessi mál heyrðu, snerum við okkur til hæstv. forsrh. til þess að koma a.m.k. okkar málum og því efni, sem okkur var falið að koma á framfæri, rétta boðleið til hæstv. ríkisstj. A.m.k. átti að vera tryggt, ef hæstv. forsrh. tæki við okkar erindi, að það kæmist endanlega í það rn., sem þessi mál heyra undir. Það skiptir auðvitað máli. Aðalatriðið er þó það, sem hér hefur verið rætt um, að stefna að því að einfalda þetta kerfi, og tel ég mjög vel farið, að það skuli vera komnar í gang viðræður milli réttra aðila, þ.e.a.s. fulltrúa útvegsmanna annars vegar og sjómannasamtaka hins vegar, um lausn á þessu máli. Það var einmitt þetta, sem við fórum fram á við hæstv. forsrh., sú n., sem ég var að ræða um hér áðan, að hann sem forsrh. og forsvarsmaður hæstv. ríkisstj. beitti sér fyrir, að slíkar viðræður yrðu upp teknar. Við þeim tilmælum hefur hann orðið, og vil ég lýsa ánægju minni yfir því, að það skuli hafa gerzt, því að vitanlega er bezt fyrir alla aðila, að þarna verði um samkomulag að ræða, sem báðir geti sætt sig við, og þá alveg sérstaklega ef það er hægt að gera það á þann veg, að um mjög mikla einföldun á kerfinu verði að ræða frá því, sem nú er, því að ég tel ástandið alveg óviðunandi fyrir atvinnurekendur, eins og þeim málum er nú komið.