06.12.1972
Neðri deild: 21. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1064 í B-deild Alþingistíðinda. (763)
21. mál, Jafnlaunaráð
Halldór Blöndal:
Herra forseti. Ég verð í upphafi máls míns að lýsa yfir sérstakri ánægju yfir þeim ummælum hv. flm., vegna þess fyrir hvaða flokk hún á sæti hér á Alþ., að hún skyldi hafa lagt á það áherzlu í ræðu sinni hér áðan, að ríki væri ekki frjálst, nema allir þegnar þess væru frjálsir. Vænti ég þess, að hún taki skoðanir sínar á ýmsum málum til endurskoðunar með hliðsjón af þessari sannfæringu sinni.
Að því er þetta frv. varðar, þykja mér ýmis atriði þess óljós og ætlaði að varpa fram nokkrum fsp. til hv. þm. og æskja svars við þeim.
Það er þá fyrst að nefna, að heiti dómstólsins hefur verið breytt í Jafnlaunaráð úr Jafnlaunadómi, og væri skemmtilegt að fá upplýsingar um, hvernig á því stendur.
Það væri einnig skemmtilegt að fá upplýsingar um það, hvaða sérstöku rök lágu til þess, að Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja skuli ætlað að skipa lögfræðimenntaðan fulltrúa fyrir sína hönd í dóminn, en hins vegar ekki Alþýðusambandi Íslands eða Vinnuveitendasambandi Íslands.
Enn fremur er nauðsynlegt, áður en afstaða er tekin til þessa máls, að fá upplýst um 3. gr. frv., hvað við er átt með orðunum: „að því leyti sem við verður komið“ í sambandi við það, að málsmeðferð fyrir Jafnlaunaráði skuli lúta reglum laga um meðferð einkamála í héraði, nr. 85 1936.
Annars var það ekki fyrst og fremst þetta, sem mig langaði til þess að fá upplýsingar um. Í 4. gr. stendur, að það skuli vera eitt af verkefnum Jafnlaunaráðs að „taka til rannsóknar af sjálfsdáðum, hver brögð kunni að vera að misrétti í kjaramálum að því leyti, er lög þessi varða“. Nú er náttúrlega spurningin, hvernig hv. þm. hugsar sér, að Jafnlaunaráð sinni þessu verkefni sínu. Er hugmyndin sú að koma á sérstakri stofnun í þessu skyni, enn einni stofnuninni? Þá vaknar einnig sú spurning, hvaða hátt hv. þm. hugsar sér, að Jafnlaunaráð hafi á, ef það telur eitthvað athugavert. Ég álít, að eftir því sem í grg. stendur um misrétti kynja, sé þetta ekkert smámál, sem þarna er ætlazt til. að ráðið taki til rannsóknar af sjálfsdáðum, og það er að sjálfsögðu nauðsynlegt, að það komi skýrt fram, hvernig hv. þm. hugsar sér það.
Að síðustu ætla ég aðeins að taka undir það, sem hv. síðasti ræðumaður sagði, að sú grg. er í hæsta máta vafasöm, að kveða á um það, að atvinnurekandi skuli ekki hafa endurkröfurétt á launþega, þótt æðra dómstig falli honum í vil. Ég fæ ekki séð, að slíkt ákvæði geti samrýmzt þeim hugmyndum, sem a.m.k. allur þorri þjóðarinnar gerir sér um réttarríki, og ég sé heldur ekki, að allir þegnar þjóðfélagsins séu jafnfrjálsir, ef slíku ákvæði er skotið inn í lög. Það væri t.d. hægt að hugsa sér, að atvinnurekandinn, sem í hlut á, væri kona.
Annars vil ég segja það almennt um lagasmíð sem þessa, að það hlýtur að þarfnast afskaplega mikillar íhugunar og rannsóknar að setja á stofn nýjan dómstól í landinu. Þetta er ekki á færi leikmanna. Þess vegna tel ég einkar mikilsvert, að hv. þm. leiði okkur í allan sannleika um, hvernig hann telur, að Jafnlaunaráð eigi að sinna þessum verkefnum.