07.12.1972
Sameinað þing: 27. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1073 í B-deild Alþingistíðinda. (771)
98. mál, þyrluflug milli lands og Vestmannaeyja
Flm. (Ingólfur Jónsson):
Herra forseti. Við höfum leyft okkur, þm. Sunnl., að flytja till. á þskj. 122 um þyrluflug milli lands og Vestmannaeyja. Það hefur lengi verið erfitt með samgöngur milli lands og Vestmannaeyja. Að vísu hefur þetta batnað mikið síðari árin, eftir að flugvöllur kom í Vestmannaeyjum og sérstaklega eftir að þverbraut kom, þá hefur flugdögum fjölgað verulega. Eigi að síður munu flugdagar tæplega verða fleiri en 280 á ári, miðað við þær kannanir, sem gerðar hafa verið. Eru þá 85 dagar á ári, sem ekki er unnt að fljúga þangað. Að vetrinum til geta orðið margir dagar í röð, sem ekki verður flogið. Það er að vísu verið að vinna að því að bæta samgöngur á sjó milli lands og Eyja. Eftir að höfnin kom í Þorlákshöfn, hafa verið næstum daglegar ferðir að sumrinu milli Þorlákshafnar og Vestmannaeyja. En á meðan höfnin í Þorlákshöfn er ekki betri en hún enn er, verður tæplega hægt að treysta á daglegar ferðir til Þorlákshafnar að vetrinum. Af því leiðir, að ferðir á sjó milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja geta ekki orðið daglega, í mesta lagi þrisvar í viku. Það er því eðlilegt, að Vestmanneyingar óski eftir því að fá betri samgöngur og meira öryggi og leitast við að tryggja það, að menn, sem fara til Vestmannaeyja að morgni, geti komizt aftur að kvöldi, ef þess þarf með, og þurfi ekki að bíða veðurtepptir í Vestmannaeyjum í marga daga, eins og komið hefur fyrir.
Það er skoðun manna, að það mætti bæta úr þessu til bráðabirgða með þyrluflugi milli Vestmannaeyja og Landeyja. Það er fljótlegt flug, tæki ekki nema 5–10 mínútur að fljúga frá Vestmannaeyjum í Landeyjar. Og þetta þyrfti ekki að vera mjög kostnaðarsamt með tilliti til þess, að flugtíminn er stuttur.
Ég hef rætt þetta mál við forstöðumann Landhelgisgæzlunnar, og hann segist vera reiðubúinn að athuga möguleika á því, hvort Landhelgisgæzlan gæti tekið þetta að sér oftast nær. Landhelgisgæzlan mun hafa nú yfir að ráða þremur þyrluflugvélum. Að vísu yrði landhelgisgæzlan að ganga fyrir og eins ef um slys væri að ræða, þá yrðu vitalega farþegar, sem biðu í Vestmannaeyjum, að una því, ef annað nauðsynlegra þyrfti að ganga fyrir. En með því að Landhelgisgæzlan tæki þetta að sér, þyrfti kostnaður við þetta ekki að verða óviðráðanlegur. Forstjóri Landhelgisgæzlunnar vildi ekki gefa mér nákvæmlega upp kostnaðinn í þessu efni, en lofaði að kanna það, áður en sú n., sem fær þetta mál til meðferðar, tekur það fyrir og kallar hann til viðræðna um málíð. Verður hann þá reiðubúinn til að gera grein fyrir því, hvort Landhelgisgæzlan vildi taka þetta að sér og hver kostnaðurinn af því ætti að verða.
Það er unnið að því nú að bæta höfnina í Þorlákshöfn, og við teljum, að það muni ekki líða mörg ár, þangað til hægt verður oftast nær að nota þá höfn daglega, einnig yfir vetrarmánuðina. Með því gætu orðið daglegar ferðir á sjó milli lands og Eyja, og má segja, að það sé lítil eða a.m.k. miklu minni þörf á ráðstöfunum eins og þessum, þegar það er orðið. En það hljóta að líða 2, 3, 4–5 ár, þangað til höfnin í Þorlákshöfn er orðin þannig, að hún verði örugg vetrarhöfn í hvaða veðri sem er.
Ég tel ekki ástæðu til, herra forseti að fara fleiri orðum um þetta mál að svo stöddu. Við teljum, að ef þessi till. yrði samþ. og kæmi til framkvæmda, þá væri leyst úr brýnasta vanda til bráðabirgða, þangað til samgöngur á sjó verða öruggari og betri en þær nú eru. Og verði kostnaður af þessu ekki ýkjamikill, hann verði vel viðráðanlegur, þá mætti vitanlega hugsa sér, að þarna mætti grípa inn í framvegis, jafnvel eftir að sjósamgöngur væru orðnar góðar, því að vissulega er það svo, að margir menn eru heilsulitlir, vilja helzt vera lausir við að fara í sjóferðir í vondum vetrarverðum, og vildu þá heldur kjósa að geta komizt flugleiðis.
Ég vil svo, þegar þessari umr. hefur verið frestað, leggja til. að till. verði vísað til hv. atvmn.