11.12.1972
Neðri deild: 22. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1087 í B-deild Alþingistíðinda. (794)

30. mál, leigunám hvalveiðiskipa

Pétur Pétursson:

Herra forseti. Ég skrifaði undir þetta nál. í allshn. með fyrirvara, sem byggist á eftirfarandi:

Í fyrsta lagi finnst mér í raun og veru að þessu máli sé í reyndinni lokið. Það var gerður samningur, og hann er með venjulegum ákvæðum, en mér er nær að halda, að nauðsynin fyrir brbl. hafi fyrst og fremst byggzt á því, að það hafi verið verulegur ágreiningur um það, hver leiguupphæðin skyldi verða. Það var upplýst, að skipið er heppilegt fyrir landhelgisgæzluna, eins og á stendur. Það var ekki um það að ræða að fá annað heppilegra skip, hvorki innanlands né utan, og auðvitað eru allir sammála um, að það mátti ekki láta neitt ógert, sem gæti flokkazt undir það að efla landhelgisgæzluna. Ég sem sé er almennt á móti því, að slíkar aðferðir sem þessi séu hafðar, en mér finnst það afsakanlegt í þessu tilviki. Og ef stjórnvöld þurfa að hafa þessi lög á bak við sig, þegar kemur að áframhaldandi samningum, sem ég vil ætla að takist, þá finnst mér eftir atvikum rétt að fallast á samþykkt frv.