11.12.1972
Neðri deild: 22. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1088 í B-deild Alþingistíðinda. (796)

30. mál, leigunám hvalveiðiskipa

Frsm. minni hl. (Halldór Blöndal):

Herra forseti. Ég get ekki séð, að nein ástæða sé til þess fyrir hæstv. forsrh. og dómsmrh. að snúa út úr nál. minni hl. allshn, í þessu máli. Það, sem stendur í nál. á þskj. 138 er, að þar sem samningar hafi tekizt millí landhelgisgæzlunnar og Hvals h/f, sé lagasetning um leigunám hvalveiðiskips til landhelgisgæzlustarfa óþörf. Það kom ekkert fram í ræðu hæstv. dómsmrh. um það, að til neins frekara leigunáms þyrfti að grípa, og ég get ekki heldur á það fallizt, að þótt í septembermánuði s.l. hafi verið nauðsyn að setja löggjöf um leigunám hvalveiðiskips, þá eigi það að standa í landslögum um aldur og ævi, að ríkisstj. sé heimilt um ótiltekinn tíma að taka eitt eða tvö hvalveiðiskip leigunámi. Það er þetta, sem við teljum óþarft. Við erum ekki að deila um þær aðgerðir, sem gerðar voru á s.l. hausti, heldur erum við hér að ræða um það, hvort um ótiltekinn tíma sé nauðsynlegt að lögfesta þessi ákvæði. Enn sem komið er hefur hæstv. dómsmrh. ekkert sagt þeim málflutningi sínum til stuðnings, að þetta muni vera nauðsynlegt í framtíðinni.