12.12.1972
Sameinað þing: 28. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1099 í B-deild Alþingistíðinda. (809)
106. mál, viðbótarritlaun til rithöfunda
Fyrirspyrjandi (Gunnar Thoroddsen):
Herra forseti. Samtök rithöfunda hafa gert um það samþykktir á þingum sínum að beina því til stjórnvalda, að söluskattur af bókum skuli renna til rithöfundanna sjálfra sem viðbótarritlaun. Í samræmi við þessar óskir var samþykkt á Alþingi 18. maí s.l. að fela ríkisstj. að leggja fyrir næsta þing till. um, að fjárhæð, er nemi sem næst andvirði söluskatts af bókum og renni til rithöfunda og höfunda fræðirita sem viðbótarritlaun eftir reglum, er samdar verði í samráði við Rithöfundasamband Íslands og félög rithöfunda. Ýmsir þeir, sem að þessari ályktun stóðu, vonuðust eftir því, að þegar þing kæmi saman hefði hæstv. ríkisstj. málið tilbúið, annaðhvort á þann veg, að till. væri gerð í fjárlagafrv. í þessu skyni eða yrði sérstakt frv. eða till. til þál. flutt. Hvorugt hefur gerzt og ekkert heyrzt um málið frá hálfu hæstv. ríkisstj., þótt tveir mánuðir séu liðnir af þingtímanum.
Þegar þessi fyrirspurn var flutt, hafði, eftir því sem ég veit bezt, ekki verið haft samráð við Rithöfundasamband Íslands og félög rithöfunda um samningu á reglum, sem úthlutun skuli fara eftir. Af þessum ástæðum er sú fyrirspurn lögð hér fyrir hæstv. menntmrh., hvað liði undirbúningi þessa máls og hvenær megi vænta tillagna þeirra, sem fjalla um það.